Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Í hvílu minni um nótt leitaði eg hans, sem sál mín elskar, eg leitaði hans, en fann hann ekki.
Eg skal fara á fætur og ganga um borgina, um strætin og torgin. Eg skal leita hans, sem sál mín elskar! Eg leitaði hans, eh fann hann ekki.
Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig: »Hafið þér séð þann, sem sál mín elskar?
Óðara en eg var frá þeim gengin, fann eg þann, sem sál mín elskar. Eg þreif í hann og sleppi honum ekki, í fyr en eg hefi leitt hann í hús móður minnar og í herbergi hennar, er mig Ól.
Eg særi yður, Jerúsalem-dætur, við skógargeiturnar eða við: hindirnar í haganum: vekið ekki, vekið ekki elskuna, fyr en hún sjálf vill.
Hvað er það, sem kemur úr heiðinni, eins og reykjar-súlur, angandi af myrru og reykelsi, af alls konar kaupmanns-kryddi.
Það er burðarrekkja Salómós, sextíu kappar kring um hana af köppum Ísraels.
Allir með sverð í hendi, vanir hernaði, hver og einn með sverð við lend, vegna næturóttans.
Burðarstól lét Salómó konungur gjöra sér úr viði frá Líbanon.
Stólpa hans lét hann gjöra af silfri, bakið úr gulli, sætið úr purpuradúk, lagt hægindum að innan af elsku Jerúsalem-dætra.
Gangið út, Zíon-dætur, og horfið á Salómó konung, á sveiginn, sem móðir hans hefir krýnt hann á brúðkaupsdegi hans og á gleðidegi hjarta hans.