Ljóðaljóðin 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Ljóðaljóðin 1

Ljóðaljóðin, eftir Salómó.

Hann kyssi mig kossi munns síns; því að ást þín er betri en vín.

Yndislegur ilmur er af smyrslum þínum, nafn þitt eins og úthelt olía; þess vegna elska meyjarnar þig.

Drag mig á eftir þér! Við skulum flýta okkur! — konungurinn leiddi mig í herbergi sín —. Vér viljum fagna og gleðjast yfir þér, vegsama ást þína meir en vin; með réttu elska þær þig!

Svört er eg, og þó yndisleg, þér Jerúsalem-dætur, sem tjöld Kedars, sem tjalddúkar Salómós.

Takið ekki til þess, að eg er svartleit, því að sólin hefir brent mig. Synir móður minnar reiddust mér, þeir settu mig til að gæta víngarða — míns eigin víngarðs hefi eg eigi gætt.

Seg mér, þú sem sál mín elskar, hvar heldur þú hjörð þinni til haga, hvar bælir þú um hádegið? Því að hví skal eg vera eins og villuráfandi hjá hjörðum félaga þinna?

Ef þú veizt það eigi, þú hin fegursta meðal kvenna, þá far þú og rek för hjarðarinnar og hald kiðum þínum til haga hjá kofum hirðanna.

Við hryssurnar fyrir vagni Faraós líki eg þér, vina mín.

Yndislegar eru kinnar þínar undir perluböndunum, háls þinn undir kóral-menjunum.

Gullfestar viljum vér gjöra þér, settar silfurhnöppum.

Meðan konungurinn hvíldi á legubekk sínum lagði ilminn af nardussmyrslum mínum.

Unnusti minn er sem knýti með myrru, sem hvílist milli brjósta mér.

Kýpur-ber er unnusti minn mér, úr víngörðunum í Engedí.

Hversu fögur ertu, vina mín, hversu fögur ertu! Augu þín eru dúfuaugu.

Hversu fagur ertu, unnusti minn, já inndæll; já, iðgræn er hvíla okkar.

Bjálkarnir í húsi okkar eru sedrusviðir, þiljur okkar kýprestré.