Kólossubréfið 1Krans-útgáfa

Kólossubréfið 1

Páll, postuli Krists Jesú fyrir vilja Guðs, og Tímóteus, bróðirinn,

til hinna heilögu og trúuðu bræðra í Kristi í Kólossaborg. Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum.

Vér þökkum Guði, föður Drottins vors Jesú Krists, biðjandi ávalt fyrir yður,

eftir að vér höfum heyrt um trú yðar í Kristi Jesú og kærleikann, sem þér hafið til allra hinna heilögu,

vegna vonar þeirrar, sem yður er geymd á himnum og þér áður hafið heyrt um í sannleiksorði fagnaðarerindisins,

sem til yðar er komið, eins og það einnig í öllum heiminum ber ávöxt og vex, sem það einnig gjörir hjá yður, frá þeim degi er þér heyrðuð og lærðuð að þekkja náð Guðs í sannleika,

eins og þér lærðuð af Epafrasi, vorum elskaða samþjóni, sem er trúr þjónn Krists í vorn stað,

sem og hefir sagt oss frá kærleika yðar í andanum.

Þess vegna höfum vér einnig frá þeim degi, er vér heyrðum það, ekki látið af að biðja fyrir yður og beiðast þess, að þér mættuð fyllast þekkingar á vilja hans með alls konar speki og andlegum skilningi,

svo að þér framgangið eins og drotni er samboðið, honum til þóknunar á allan hátt, og séuð ávaxtarsamir í öllu góðu verki og vaxið í þekkingunni á Guði;

verðið styrktir með hvers konar krafti eftir mætti dýrðar hans, til alls þolgæðis og umburðarlyndis með gleði,

og þakkið föðurnum, sem gjörði oss hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð hinna heilögu í ljósinu,

hann sem hreif oss frá valdi myrkursins og flutti oss inn í ríki sonar kærleika síns,

í hverjum vér höfum endurlausnina, fyrirgefningu syndanna;

hann, sem er ímynd hins ósýnilega Guðs, frumburður allrar skepnu;

því að í honum var alt skapað á himnum og á jörðunni, hið sýnilega og hið ósýnilega, hvort sem eru hásæti eða herradómar eða tignir eða völd; allir hlutir eru skapaðir fyrir hann og til hans;

og hann er fyrri en alt og alt hefir tilveru sína í honum;

og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar; hann, sem er upphafið, frumburðurinn frá hinum dauðu, til þess að hann skyldi vera fremstur í öllu;

því að í honum þóknaðist allri fyllingunni að búa,

og að koma öllu, eftir að hann hafði gjört frið fyrir blóð kross hans, fyrir hann í sátt við sig, hvort heldur er það, sem er á jörðunni, eða það sem er á himnum.

Og yður, sem áður fyrri voruð útilokaðir og óvinir í huga yðar í hinum vondu verkum,

hefir hann nú þó sátta gjört í líkama holds síns með dauðanum, til þess að láta yður koma fram fyrir sig sem heilaga og flekklausa og óaðfinnanlega,

ef þér aðeins standið í trúnni, grundvallaðir og stöðugir, og látið ekki hreyfast frá von þess fagnaðarerindis, sem þér hafið heyrt, og prédikað hefir verið í allri skepnunni undir himninum, hvers þjónn eg, Páll, er orðinn.

Nú er eg glaður í þjáningum mínum fyrir yður, og uppfylli á holdi mínu það, sem vantaði á þjáningar Krists, fyrir líkama hans, sem er kirkjan,

hvers þjónn eg er orðinn, eftir þeirri ráðstöfun Guðs, sem mér er á hendur falin yður viðvíkjandi, að flytja fyllilega Guðs orð,

leyndardóminn, sem hefir verið hulinn frá því að aldir og kynslóðir voru til, en nú er opinberaður hans heilögu,

er Guð vildi gjöra kunnugt, hvílíkur er dýrðarríkdómur þessa leyndardóms meðal heiðingjanna, sem er Kristur í yður, von dýrðarinnar.

Og hann boðum vér, með því að vér áminnum sérhvern mann og fræðum sérhvern mann með allri speki, til þess að vér getum leitt hvern mann fram fullkominn í Kristi;

og til þess erfiða eg einnig, þar sem eg er að berjast, eftir þeim mætti hans, sem með krafti verkar í mér.