Gamla testamentiðSaga
Og þegar allir konungar Amóriíta, þeirra er bjuggu fyrir vestan Jórdan, og allir konungar Kanaaníta, sem búa við hafið, heyrðu, að Drottinn hefði þurkað vatnið í Jórdan fyrir Ísraelsmönnum, unz þeir voru komnir yfir um, þá kom þeim æðra í brjóst og. þeim felst hugur fyrir Ísraelsmönnum.
Í það mund sagði Drottinn við Jósúa: Gjör þér steinknífa og umsker jsraelsmenn öðru sinni.
Jósúa gjörði sér þá steinknífa og umskar Ísraelsmenn á Yíirlniðahæð.
En sú var orsök til þess, að Jósúa umskar þá: allur lýðurinn, sem af Egiptalandi fór, karlmennirnir, allir vígir menn, höfðu dáið í eyðimörkinni á leiðinni, eftir að þeir voru farnir af Egiptalandi.
Því að allir þeir, er þaðan fóru, höfðu verið K umskornir, en allir þeir, sem fæðst höfðu í eyðimörkinni á leiðinni eftir brottför þeirra af Egiptalandi, höfðu eigi verið umskornir.
Því að í fjörutíu ár fóru Ísraelsmenn um eyðimörkina, unz alt það fólk, allir vígir menn, er farið höfðu af Egiptalandi, voru dánir, fyrir því að þeir hlýddu ekki raust Drottins. Því að Drottinn hafði svarið þeim, að þeir skyldu ekki fá að sjá landið, sem Drottinn sór feðrum þeirra að gefa oss — land, sem flýtur í mjólk og hunangi.
En hann hafði látið sonu þeirra koma í þeirra stað; þá umskar Jósúa, því að þeir voru óumskornir, þar eð þeir höfðu eigi verið umskornir á leiðinni.
Og er gjörvalt fólkið hafði verið umskorið, héldu þeir kyrru fyrir, hver á sínum stað, í herbúðunum, unz þeir voru grónir.
Þá sagði Drottinn við Jósúa: Í dag hefi eg velt af yður brigzli Egipta! Fyrir því heitir þessi staður Gilgal fram á þennan dag.
Þegar Ísraelsmenn höfðu sett búðir sínar í Gilgal, héldu þeir páska á Jeríkó-völlum hinn fjórtánda dag mánaðarins, að kveldi.
Og daginn eftir páska átu þeir ósýrð brauð og bakað korn af gróðri landsins, einmitt þennan dag.
Daginn eftir þraut manna, er þeir átu af gróðri landsins, og upp frá því fengu Ísraelsmenn ekki manna, heldur átu þeir af gróðri Kanaanlands það árið.
Það bar til, er Jósúa var staddur hjá Jeríkó, að hann leit upp og sá, hvar maður stóð gegnt honum með Þbrugðnu sverði í hendi. Jósúa gekk til hans og sagði við hann: Hvort ert þú vor maður eða af óvinum vorum?
Hann svaraði: Nei! heldur er eg fyrirliði fyrir hersveit Drottins; nú er eg kominn! Þá féll Jósúa fram á ásjónu sína til jarðar, laut og sagði: Hvað vilt þú, herra, mæla við þjón þinn?
Þá sagði fyrirliðinn fyrir hersveit Drottins við Jósúa: Drag skó þína af fótum þér, því að það er heilagur staður, er þú stendur á! Og Jósúa gjörði svo.