Jósúabók 24Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Jósúabók 24

Því næst stefndi Jósúa saman öllum ættkvíslum Ísraels í Sikem og kallaði fyrir sig öldunga Ísraels og höfðingja hans, dómendur hans og tilsjónarmenn, og þeir gengu fram fyrir auglit Guðs.

Þá mælti Jósúa við allan lýðinn: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Forfeður yðar bjuggu í fyrndinni fyrir handan fljótið, þeir Tara, faðir Abrahams og Nahors, og dýrkuðu aðra guði.

Þá tók eg Abraham forföður yðar handan yfir fljótið, og lét hann fara fram og aftur um alt Kanaanland, og eg margfaldaði kyn hans og gaf honum Ísak.

Og Ísak gaf eg þá Jakob og Esaú, og Esaú gaf eg Seír-fjöll, að hann skyldi taka þau til eignar; en Jakob og synir hans fóru suður til Egiptalands.

Síðan sendi eg Móse og Aron, og laust Egiptaland með undrum þeim, er eg framdi þar; síðar leiddi eg yður út þaðan.

Og eg leiddi feður yðar út af Egiptalandi, og þér komuð að hafinu. En Egiptar veittu feðrum yðar eftirför með vögnum og riddurum til Rauðahafs.

Þá hrópuðu þeir til Drottins, og hann setti myrkur milli yðar og Egipta; og hann lét hafið falla yfir þá, svo að það huldi þá. Og þér sáuð með eigin augum, hvernig eg fór með Egipta; eftir það dvölduð þér langa hríð í eyðimörkinni.

Síðan leiddi eg yður inn í land Amórita, sem bjuggu hinumegin Jórdanar, og þeir börðust við yður; en eg gaf þá í hendur yður, og þér tókuð land þeirra til eignar, og eg eyddi þeim fyrir yður.

Þá reis upp Balak Zippórsson, konungur í Móab, og barðist við Ísrael. Sendi hann þá og lét kalla Bíleam Beórsson, til þess að bölva yður.

En eg vildi ekki heyra Bíleam, og hann blessaði yður þvert á móti; frelsaði eg yður þannig úr höndum hans.

Þá fóruð þér yfir Jórdan og komuð til Jeríkó; og Jeríkó-búar börðust við yður, þeir Amórítar, Peresítar, Kanaanítar, Hetítar, Gírgasífar, Heyílar og Jebúsítar, en eg gaf þá í yðar hendur.

Þá sendi eg geitunga á undan yður, og þeir stöktu þeim burt undan yður, Amóríta konungunum tveimur, en hvorki sverð þitt né bogi þinn.

Og eg gaf yður land, sem þér ekkert höfðuð fyrir haft, og borgir, sem þér höfðuð ekki reist, en þó tókuð þér yður bólfestu í þeim; þér njótið nú ávaxtanna af víngörðum og olíutrjám, sem þér hafið ekki gróðursett.

Óttist því Drottin og þjónið honum einlæglega og dyggilega, og kastið burt guðum þeim, er feður yðar þjónuðu fyrir handan fljótið og í Egiptalandi, og þjónið Drottni.

En líki yður ekki að þjóna Drottni, kjósið þá í dag, hverjum þér viljið þjóna, hvort heldur guðum þeim, er feður yðar þjónuðu, þeir er bjuggu fyrir handan fljótið, eða guðum Amóríta, hverra land þér nú byggið; en eg og mínir ættmenn munum þjóna Drottni.

Þá svaraði lýðurinn og sagði: Fjarri sé það oss að yfirgefa Drottin, til að þjóna öðrum guðum.

Því að Drottinn er vor Guð, hann Sem leitt hefir oss og feður vora af Egiptalandi, úr þrælahúsinu, og Sjört hefir þessi miklu undur að oss ásjáandi og varðveitt oss á allri Þeirri leið, sem vér höfum nú farið, og meðal allra þeirra þjóða, þar Sem vér höfum lagt um leið vora.

Og Drottinn stökti burt undan oss Öllum þjóðunum og Amórítum, íbúum landsins. Vér viljum einnig Þjóna Drottni, því að hann er vor Guð!

Jósúa sagði þá við lýðinn: Þér Selið ekki þjónað Drottni, því að hann er heilagur Guð; vandlátur Guð er hann; hann mun ekki fyrirgefa misgjörðir yðar og syndir.

Ef þér yfirgefið Drottin og þjónið útlendum guðum, þá mun hann Snúa við og láta út yfir yður koma og tortíma yður, í stað þess að hann áður hefir gjört vel til yðar.

Þá sagði lýðurinn við Jósúa: Nei, því að Drottinn viljum vér þjóna.

Þá sagði Jósúa við lýðinn: Þér Eruð vottar að því gegn sjálfum yður, að þér hafið kosið að þjóna Drottni, Og þeir sögðu: Vér erum það.

Og kastið nú burt útlendu Buðunum, sem hjá yður eru, og hneigið hjörtu yðar til Drottins, Ísraels Guðs.

Og lýðurinn sagði við Jósúa: Drottni, Guði vorum, viljum vér hjóna og hlýða hans röddu.

Og Jósúa gjörði sáttmála við lýðinn á þeim degi og setti honum lög og rétt þar í Sikem.

Og Jósúa ritaði þessi orð í lögmálsbók Guðs, tók því næst stein mikinn og reisti hann þar upp undir eikinni, Sem stóð í helgidómi Drottins.

Og Jósúa sagði við allan lýðinn: Sjá, fina þessi skal vera vitni gegn oss, því að hann hefir heyrt alt, sem Drottinn hefir við oss talað, og hann skal vera vitni gegn yður, til þess að þér afneitið ekki Guði yðar.

Síðan lét Jósúa fólkið fara, hvern til síns óðals.

Eftir þessa atburði andaðist Jósúa Núnsson, þjónn Drottins, hundrað og tíu ára gamall,

og var hann grafinn í eignarlandi sínu, hjá Timnat-Sera, sem liggur á Efraím-fjöllum, fyrir norðan Gaas-fjall.

Og Ísrael þjónaði Drottni meðan Jósúa var á lífi og öldungar þeir, er lifðu Jósúa og þektu öll þau verk, er Drottinn hafði gjört fyrir Ísrael.

En bein Jósefs, sem Ísraelsmenn höfðu haft með sér sunnan af Egiptalandi, grófu þeir í Síkem, í landspildu þeirri, sem Jakob hafði keypt af sonum Hemors, föður Síkems, fyrir hundrað kesíta, og varð hún eign Jósefs sona.

Og Eleasar, sonur Arons, andaðist og var grafinn í Gíbeu, er átti Pínehas sonur hans og honum hafði gefin verið á Efraím-fjöllum.