Jósúabók 22Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Jósúabók 22

Þá kallaði Jósúa Rúbeníta, Gadíta og hálfa kynkvísl Manasse fyrir sig

og sagði við þá: Þér hafið haldið alt það, sem Móse, þjónn Drottins, bauð yður; þér hafið og hlýtt röddu minni í öllu því, er eg hefi fyrir yður lagt.

Þennan langa tíma alt fram á þennan dag Ms Þér fylgi veitt bræðrum yðar, og varðveitt hlýðni við boðorð hvíld Guðs yðar.

En nú hefir Drottinn, Guð yðar, veitt bræðrum yðar hvíld, eins og hann hafði heitið þeim; snúið því nú á leið og farið til tjalda yðar, til eignarlands yðar, þess er Móse, þjónn Drottins, gaf yður hinumegin Jórdanar.

Gætið þess einungis, að þér haldið vel boðorð það og lögmál, er Móse, þjónn Drottins, fyrir yður lagði: að þér elskið Drottin, Guð yðar, gangið ávalt á vegum hans, geymið boð hans, haldið yður fast við hann og þjónið honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar.

Síðan blessaði Jósúa þá og lét þá burt fara, og þeir héldu til tjalda sinna.

Hálfri ættkvísl Manasse hafði Móse gefið land í Basan; en hinum helmingnum hafði Jósúa gefið land með bræðrum þeirra vestanmegin Jórdanar.

og sagði við þá: Hverfið nú aftur til tjalda yðar með mikil auðæfi, mjög mikinn fénað, með silfur og gull, eir og járn, og með mjög mikið af klæðnaði; miðlið bræðrum yðar nokkurn af því, er þér hafið tekið að herfangi af óvinum yðar.

sneru þeir Rúbens synir, Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse aftur og skildu við Ísraelsmenn í Síló, sem er í Kanaanlandi, og héldu til Gileað-lands, eignarlands síns, þar sem þeir höfðu fest bygð eftir boði Drottins fyrir Móse.

En er þeir komu til Gelilót við Jórdan, sem er í Kanaanlandi, þá reistu þeir Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse þar altari við Jórdan, og var það mikið til að sjá.

Ísraelsmenn fengu þá svolátandi fregn: Sjá, Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse hafa reist altari gegnt Kanaanlandi Í Gelilót við Jórdan, hinumegin við Ísraelsmenn.

Og er Ísraelsmenn spurðu það, þá safnaðist allur lýður Ísraelsmanna saman í Síló, til þess að fara í móti þeim til hernaðar.

Þá sendu Ísraelsmenn Pínehas, son Eleasar prests, til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gíleað-lands,

og með honum tíu höfuðsmenn, einn höfuðsmann af ætt hverri af öllum kynkvíslum Ísraels; var hver þeirra höfðingi yfir ættum feðra sinna meðal þúsunda Ísraels.

Og er þeir komu til Rúbens sona og Gaðs sona og hálfrar ættkvíslar Manasse til Gileað-lands, þá mæltu þeir við þá á þessa leið:

Svo segir allur söfnuður Drottins: Hvílík er sú ótrúmenska, sem þér hafið sýnt gegn Guði Ísraels, að þér í dag hafið snúið yður burt frá Drottni, er þér hafið reist yður altari, að þér í dag hafið gjört uppreisn gegn Drottni?

Er oss ekki nógur glæpur sá, að vér tilbáðum Peór, og höfum vér ekki hreinsað oss af þeim glæp fram á þennan dag og fyrir hann kom plágan yfir söfnuð Drottins.

Og þér snúið yður í dag burt frá Drottni! Mun þá svo fara: þér gjörið í dag uppreisn gegn Drottni, og á morgun mun hann úthella reiði sinni yfir allan söfnuð Ísraels.

En sé annars land það óhreint, er þér hafið hlotið til eignar, þá komið yfir í eignarland Drottins, þar sem búð Drottins hefir aðsetur, og setjist að meðal vor. En gjörið ekki uppreisn gegn Drottni og gjörið ekki uppreisn gegn oss, með því að reisa yður altari, annað en altari Drottins, Guðs vors.

Kom ekki reiði Guðs yfir allan söfnuð Ísraels, þá er Akan Serason fór sviksamlega með hið bannfærða, svo að hann dó ekki einn fyrir glæp sinn?

hJá svöruðu þeir Rúbens synir og Gaðs synir og hálf ættkvísl Manasse og sögðu við höfðingja Ísraels þúsunda:

Hinn máttki, Guð, Drottinn — Hinn máttki, Guð, Drottinn, hann veit það, og Ísrael skal vita það: Ef það er gjört í uppreisnar eða sviksemi skyni við Drottin — hjálpa þú oss þá eigi í dag! —

að vér höfum reist oss altari, til þess að snúa oss burt frá Drottni; ef það er gjört til þess, að færa þar brennifórn og matfórn, eða til þess að fórna þar heillafórnum, þá hefni Drottinn þess!

Heldur höfum vér gjört það af hræðslu við, hvernig fara kynni, með því að vér hugsuðum: Á síðan kynnu synir yðar að segja við sonu vora: »Hvað kemur Drottinn, Ísraels Guð, yður við?

Drottinn hefir sett Jórdan sem landamerki milli vor og yðar Rúbens sona og Gaðs sona. Þér eigið enga hlutdeild í Drottni!« Kynnu þá synir yðar að koma sonum vorum til þess, að hætta að óttast Drottin.

Fyrir því sögðum vér: Vér skulum reisa oss altari, ekki til brennifórna og ekki til sláturfórna,

heldur skal það vera til vitnis fyrir oss og fyrir yður, og fyrir niðja vora eftir oss, að vér viljum gegna þjónustu Drottins fyrir augliti hans með brennifórnum vorum, sláturfórnum Og heillafómum, og að synir yðar geti ekki á síðan sagt við sonu vora: þér eigið enga hlutdeild í Drottni!«

Og vér sögðum: Ef þeir á síðan jnæla svo til vor eða niðja vorra, þá munum vér segja: Lítið á lögunhia á því Drottins-altari, sem feður vorir hafa gjört, ekki til brennifórna eða sláturfórna, heldur átti það að vera til vitnis fyrir oss og yður.

Því fer fjarri, að vér vildum gjöra uppreisn gegn Drottni og snúa oss burt frá Drottni í dag, með því að reisa altari til brennifórna, matfórna og sláturfórna, annað en altari Drottins, Guðs vors, það er stendur fyrir framan búð hans.

Þegar Pínehas prestur og höfuðsmenn safnaðarins, höfðingjar Ísraels þúsunda, sem með honum voru, heyrðu andsvör þau, er Rúbens synir og Gaðs synir og Manasse synir veittu, þá létu þeir sér það vel líka.

Og Pínehas, sonur Eleasar prests, sagði við Rúbens sonu og Gaðs sonu og Manasse sonu: Í dag höfum vér sannreynt, að Drottinn er á meðal vor, þar sem þér hafið ekki sýnt ótrúmensku gegn Drottni í þessu; nú hafið þér frelsað Ísraelsmenn undan hendi Drottins.

Síðan sneri Pínehas, sonur Eleasar prests, og höfuðsmennirnir heim aftur frá Rúbens sonum og Gaðs sonum í Gíleað-landi til Kanaanlands til Ísraelsmanna og færðu þeim þessi svör.

Létu Ísraelsmenn sér það vel líka, og Ísraelsmenn lofuðu Guð og hugðu ekki framar á að fara herför á móti þeim, til þess að eyða land það, er Rúbens synir og Gaðs synir bjuggu í.

Og Rúbens synir og Gaðs synir nefndu altarið Galeð, því að það er vitni þess milli vor, að Drottinn er hinn sanni Guð.