Jósúabók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Jósúabók 10

En er Adónízedek, konungur í Jerúsalem, frétti að Jósúa hefði unnið Af og gjöreytt hana, að hann hefði farið með Af og konung hennar eins og hann fór með Jeríkó og konung hennar, og að Gíbeon-búar hefðu gjört frið við Ísrael og byggju meðal þeirra,

þá urðu þeir mjög hræddir; því að Gíbeon var stór borg, engu minni en konungaborgirnar, og hún var stærri en Aí og allir borgarbúar hreystimenn.

Sendi Adónízedek, konungur í Jerúsalem, þá til Hóhams konungs í Hebron, til Pírams, konungs í Jarmút, til Jafía, konungs í Lakís, og til Debírs, konungs í Eglon, og lét segja þeim:

Komið til móts við mig og veitið mér fulltingi, að vér megum vinna Gibeon, því að hún hefir gjört frið við Jósúa og Ísraelsmenn.

Þá söfnuðust saman fimm konungar Amóríta og fóru þangað með öllu liði sínu; konungurinn í Jerúsalem, konungurinn í Hebron, konungurinn í Jarmút, konungurinn í Lakís og konungurinn í Eglon; settust þeir um Gíbeon og tóku að herja á hana.

Gíbeon-menn sendu þá til Jósúa í herbúðirnar í Gilgal, og létu segja honum: Slá ekki hendi þinni af þjónum þínum. Kom sem skjótast oss til hjálpar og veit oss fulltingi, því að allir konungar Amóríta, þeirra er búa í fjalllendinu, hafa safnast saman í móti oss.

Þá fór Jósúa frá Gilgal með alt lið sitt og alla kappa sína.

Og Drottinn sagði við Jósúa: Þú skalt ekki hræðast þá, því að eg mun gefa þá í þínar hendur; enginn þeirra mun fá staðist fyrir þér.

Jósúa kom nú að þeim óvörum, því að hann hélt áfram ferðinni alla nóttina frá Gilgal.

Og Drottinn gjörði þá felmtsfulla fyrir Ísrael og biðu þeir mikinn ósigur við Gibeon, en hinir eltu þá í áttina til stígsins, er liggur upp að Bet-Hóron, og feldu menn á flóttanum alt til Aseka og Makeda.

En er þeir ílýðu fyrir Ísrael og voru á Leið niður frá BetHóron, þá lét Drottinn stóra steina falla yfir þá af himni alla Leið til Aseka, svo að þeir dóu; voru þeir íleiri, er féllu fyrir haglsteinunum, en þeir, er Ísraelsmenn drápu með sverðseggjum.

Þá talaði Jósúa við Drottin, þann dag er Drottinn gaf Amórita á vald Ísraelsmönnum; og hann mælti í áheyrn Ísraels: Sól, statt þú kyr í Gibeon, og þú, tungl, í Ajalon-dal!

Og sólin stóð kyr og tunglið staðnaði, unz lýðurinn hafði hefnt sín á óvinum sínum. Svo er skrifað í Bók hinna réttlátu. Þá staðnaði sólin á miðjum himni og hraðaði sér eigi að ganga undir nær því heilan dag.

Og enginn dagur hefir þessum degi líkur verið, hvorki fyr né síðar, að Drottinn skyldi láta að orðum manns; því að Drottinn barðist fyrir Ísrael.

Jósúa fór þá aftur til herbúðanna í Gilgal og allur Ísrael með honum.

En konungarnir fimm, er fyr var getið, flýðu og leyndust í hellinum hjá Makeda.

Þá var Jósúa sagt svo frá: Konungarnir fimm se fundnir; þeir leynast í hellinum hjá Makeda.

Úa sagði Jósúa: eltið stórum steinum fyrir hellismunnann og setjið menn við hann, að gæta þeirra.

En sjálfir skuluð þér eigi staðar nema; veitið óMnum yðar eftirför, vinnið á þeim, sem aflastir fara, og látið þá ekki ýomast inn í borgir sínar, því að Drottinn, Guð yðar, hefir gefið þá yður u vald.

Og er Jósúa og Ísraelsmenn höfðu unnið mikinn sigur á þeim, svo að þeir voru frá með öllu — en þeir af þeim, er undan höfðu komist, höfðu farið inn í víggirtu borgirnar —,

þá sneri alt liðið aftur til Jósúa í herbúðirnar við Makeda heilu og höldnu; þorði enginn framar orð að mæla gegn Ísraelsmönnum.

Þá sagði Jósúa: Opnið hellismunnann og leiðið þessa fimm konunga út til mín úr hellinum.

Þeir gjörðu svo og leiddu þessa fimm konunga til hans úr hellinum: konunginn í Jerúsalem, konunginn í Hebron, konunginn í Jarmút, konunginn í Lakís og konunginn í Eglon.

Og er þeir höfðu leitt konunga þessa út til Jósúa, þá kallaði Jósúa saman alla menn í Ísrael og sagði við fyrirliða hermannanna, þá er með honum höfðu farið: Komið hingað og stígið fæti á háls konungum þessum! Þeir gengu þá fram og stigu fæti á háls þeim.

Þá sagði Jósúa við þá: Óttist ekki og látið ekki hugfallast; verið hughraustir og öruggir, því að svo mun Drottinn fara með alla óvini yðar, er þér berjist við.

Eftir það lét Jósúa drepa þá, og er hann hafði líflátið þá, lét hann hengja þá á fimm tré; og þeir héngu á trjánum alt til kvelds.

En er komið var undir sólarlag, bauð Jósúa að taka þá ofan af trjánum; þá köstuðu þeir þeim í hellinn, sem þeir höfðu leynst í, og báru síðan stóra steina fyrir hellismunnann, og eru þeir þar enn í dag.

Þennan sama dag vann Jósúa Makeda og tók hana herskildi, og hann bannfærði konung hennar, svo og borgina og alla þá menn, sem í henni voru; lét hann engan komast undan; og með konunginn í Makeda fór hann, eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.

Síðan fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Makeda til Líbna, og herjaði á Líbna.

Og Drottinn gaf einnig hana í hendur Ísrael, svo og konung hennar, og hann tók hana herskildi og drap alla þá menn, er í henni voru; lét hann þar engan komast undan; og hann fór með konung hennar, eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.

Því næst fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Líbna til Lakís og settist um hana og herjaði á hana.

Og Drottinn gaf Lakís í hendur Ísrael; og hann vann hana á öðrum degi og tók hana herskildi og drap alla menn, sem í henni voru, öldungis eins og hann hafði farið með Líbna.

Þá fór Hóram, konungur í Geser, til liðs við Lakís, en Jósúa feldi hann og lið hans, svo að enginn þeirra komst undan.

Því næst fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Lakís til Eglon, og þeir settust um hana og herjuðu á hana.

Og þeir unnu hana samdægurs og tóku hana herskildi; og alla menn, er í henni voru, bannfærði hann þennan sama dag, öldungis eins og hann hafði farið með Lakís.

Þá fór Jósúa og allur Ísrael með honum frá Eglon til Hebron, og þeir herjuðu á hana.

Og þeir unnu hana og tóku hana herskildi; og þeir feldu konung hennar og alla íbúana í borgunum þar umhverfis og alla menn, sem í henni voru, svo að enginn komst undan, öldungis eins og hann hafði farið með Eglon; og hann bannfærði borgina og alla menn, er í henni voru.

Þá sneri Jósúa og allur Ísrael með honum aftur til Debír og herjaði á hana.

Náði hann henni og konungi hennar og öllum borgunum þar umhverfis á sitt vald; feldu þeir þá með sverðseggjum og bannfærðu alla menn, er í henni voru, svo að enginn komst undan. Eins og hann hafði farið með Hebron, svo fór hann og með Debír og konung hennar, og eins og hann hafði farið með Líbna og konung hennar.

Þannig braut Jósúa undir sig landið alt: fjalllendið, suðurlandið, láglendið og hlíðarnar; og hann feldi alla konunga þeirra, svo að enginn komst undan; og hann bannfærði alt, sem lífsanda dró, eins og Drottinn, Ísraels Guð, hafði boðið honum.

Og Jósúa lagði undir sig land alt frá Kades-Barnea til Gasa og alt Gósenland til Gíbeon.

Og alla þessa konunga og land þeirra vann Jósúa í einu, því að Drottinn, Ísraels Guð, barðist fyrir Ísrael.

Sneri nú Jósúa og allur Ísrael með honum aftur til herbúðanna í Gilgal.