Jónasarbók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jónasarbók 2

Þá sendi Drottinn stórfisk, til þess að svelgja Jónas. Og Jónas var í kviði fiskjarins þrjá daga og þrjár nætur.

Og Jónas bað til Drottins, Guðs síns, í kviði fiskjarins

og sagði: Eg kallaði til Drottins í neyð minni og hann svaraði mér; frá skauti Heljar hrópaði eg, og þú heyrðir raust mína.

Þú varpaðir mér í djúpið, út í mitt hafið, svo að straumurinn umkringdi mig; allir boðar þínir og bylgjur gengu yfir mig.

Eg hugsaði: Eg er burtrekinn frá augum þínum. Mun eg nokkurn tíma framar líta þitt heilaga musteri?

Vötnin luktu um mig og ætluðu að sálga mér; hyldýpið umkringdi mig; höfði mínu var faldað með marhálmi.

Eg steig niður að grundvöllum fjallanna; slagbrandar jarðarinnar voru lokaðir á eftir mér að eilífu. Þá færðir þú líf mitt upp úr gröfinni, Drottinn, Guð minn!

Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá mintist eg Drottinn, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri.

Þeir, sem dýrka fánýt falsgoð, þeir hafna hjálpræði sínu.

En eg vil færa þér fórnir með lofgjörðarsöng; eg vil greiða það, er eg hefi heitið; hjálpin kemur frá Drottni.

En Drottinn bauð fiskinum að spúa Jónasi upp á þurt land.