Jobsbók 42Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 42

Þá svaraði Job Drottins og sagði:

Eg veit, að þú megnar alt og að engu ráði þínu verður varnað fram að ganga.

hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs í hyggjuleysi? Fyrir því hefi eg talað, án þess að skilja, um hluti, sem mér voru of undursamlegir og eg þekti eigi.

»Hlusta þú, eg ætla að tala; eg mun spyrja þig, og þú skalt fræða mig«.

Eg þekti þig af afspurn, en nú hefir auga mitt litið þig!

Fyrir því tek eg orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku.

Eftir að Drottinn hafði mælt þessum orðum til Jobs, sagði Drottinn við Elífas Temaníta: Reiði mín er upptendruð gegn þér og báðum vinum þínum, því að þér hafið ekki talað rétt um mig, eins og þjónn minn Job.

Takið yður því sjö naut og sjö hrúta og farið til þjóns míns Jobs og fórnið brennifórn fyrir yður, og Job þjónn minn skal biðja fyrir yður, því aðeins vegna hans mun eg ekki láta yður gjalda heimsku yðar, með því að þér hafið ekki talað rétt um mig, eins og þjónn minn Job.

Þá fóru þeir Elífas Temanítt, Bildad Súíti og Zófar Naamiti og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið þeim; og Drottinn lét að bæn Jobs.

Og Drottinn sneri við högum Jobs, þá er hann bað fyrir vinum sínum; og Drottinn gaf Job alt, sem hann hafði átt, tvöfalt aftur.

Þá komu til hans allir bræður hans og allar systur hans og allir þeir, er áður höfðu verið kunningjar hans, og neyttu máltíðar með honum í húsi hans, vottuðu honum samhrygð sína og hugguðu hann út af öllu því böli, sem Drottinn hafði látið yfir hann koma; og þeir gáfu honum hver einn kesíta og hver einn hring af gulli.

En Drottinn blessaði síðari æfiár Jobs enn meir en hin fyrri; og hann eignaðist fjórtán þúsund sauða, sex þúsund úlfalda, þúsund sameyki nauta og þúsund ösnur.

Hann eignaðist og sjö sonu og þrjár dætur.

Og hann nefndi eina Jemímu, aðra Kezíu og hina þriðju Keren-Happúk.

Og eigi fundust svo fríðar konur í öllu landinu sem dætur Jobs; og faðir þeirra gaf þeim arf með bræðrum þeirra.

Og Job lifði eftir þetta hundrað og fjörutíu ár og sá börn sín og barnabörn, fjóra ættliði.

Og Job dó gamall og saddur lífdaga.