Jobsbók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Jobsbók 2

Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottni, og kom Satan og meðal þeirra. Mælti þá Drottinn til Satans:

Mælti þá Drottinn til Satans: Hvaðan kemur þú? Og Satan svaraði Drottinn og sagði: Eg hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana.

Og Drottinn mælti til Satans: Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar. Og enn þá er hann staðfastur í ráðvendni sinni, og þó hefir þú egnt mig gegn honum, til að vinna honum tjón án saka.

Og Satan svaraði Drottinn og sagði: Húð er yfir húð, og alt, sem maðurinn á, gefur hann fyrir líf

sitt. En rétt þú út hönd þína og snert bú bein hans og hold, og mun hann formæla þér upp Í opið geðið.

Þá mælti Drottinn til Satans: Sjá, veri hann á þínu valdi; en þyrma skalt þú lífi hans.

Þá gekk Satan burt frá augliti Drottins og sló Job illkynjuðum kaunum frá hvirfli til ilja.

Og hann tók sér leirbrot, til að skafa sig með, þar sem hann sat í öskunni.

Þá sagði kona hans við hann: Heldur þú enn fast við ráðvendni þína? Formæltu Guði og farðu að deyja!

En hann sagði við hana: Þú talar svo sem heimskar konur tala. Fyrst vér höfum þegið hið góða af Guði, ættum vér þá ekki einnig að taka hinu vonda? Í öllu þessu syndgaði Job ekki með vörum sínum.

Og er vinir Jobs þrír fréttu, að öll þessi ógæfa væri yfir hann komin, þá komu þeir hver frá sínum stað, þeir Elífas Temaniti, Bildad Súíti og Zófar Naamiíti, og töluðu sig saman um að fara og votta honum samhrygð sína og hugga hann.

En er þeir hófu upp augu sín álengdar, þektu þeir hann ekki. Tóku þeir þá að gráta hástöfum, rifu skikkjur sínar og jusu mold yfir höfuð sér hátt í loft upp.

Og þannig sátu þeir hjá honum á jörðu sjö daga og sjö nætur, og enginn þeirra yrti á hann, því að þeir sáu að kvöl hans var afarmikil.