Gamla testamentiðSpámennirnir
Hinir réttlátu líða undir lok, og enginn leggur það á hjarta, hinum guðhræddu er burt svift, og enginn veitir því athygli, því að vegna spillingarinnar er hinum réttlátu burt svift,
þeir ganga inn til friðar; þeir munu hvíla í legurúmum sínum, sem ganga beina braut.
En komið þér hingað, þér seiðkonusynir, þú afsprengi hórkarls og skækju!
Að hverjum skopist þér? framan í hvern eruð þér að bretta yður og reka út úr yður tunguna?
Eruð þér ekki syndarinnar börn og lyginnar afsprengi? F þér, sem brunnuð af girndarbruna hjá eikitrjánum, undir hverju grænu tré, sem slátruðuð börnum í dölunum, niðri í klettagjánum.
Þú áttir liluttieild í hnullungum dalanna; þeir, þeir voru hlutskifti þitt! þú útheltir drykkjarfórn einnig handa þeim, færðir þeim matforn — átti eg að unasliku?
Á háu og gnæfandi fjalli settir þú hvílurúm þitt, þú íorst og upp þangað, til þess að færa fórnir.
Á bak við hurð og dyrustafi settir þú minningarmark þitt; því að fráhverf mér flettir þú ofan af hvílu þinni, steigst upp Í hana og rýmkaðir til í henni og gjörðir samning við þá; þér voru kær hvílubrögð þeirra, þú sást blygðan þeirra.
Og þú fórst til konungsins með olíu og hafðir með þér mikil smyrsl, og þú sendir sendiboða þína langar leiðir og steigst niður alt til Heljar.
Þú varðst þreytt af hinu langa ferðalagi þínu, en þó sagðir þú ekki: Eg gefst upp! Þú fanst nýjan tifsþrótt í hendi þinni, fyrir því örmagnaðist þú ekki.
Hvern hræddist og óttaðist þú þá, að þú skyldir bregða svo trúnaði þínum, að þú skyldir ekki munu til mín, ekkert um mig hirða? Er eigi svo: eg hefi þagað, og það frá eilífð, mig óttaðist þú því ekki?
En eg skal gjöra réttlæti þitt kunnugt, og verkin þín — þau munu þér að engu liði verða.
Lát þú þá, sem þú hefir saman safnað, bjarga þér, er þú kallar á hjálp; vindurinn mun svifta þeim öllum í burt, gusturinn taka þá; en sá, sem leitar hælis hjá mér, mun erfa landið og eignast mitt heilaga fjall.
Og sagt mun verða: Leggið braut, leggið braut, greiðið veginn, ryðjið hverjum ásteytingarsteini úr vegi þjóðar minnar!
Því að svo segir hinn hái og háleiti, hann sem ríkir eilíflega og heitir Heilagur: Eg hý á háum og helgum stað, en einnig hjá þeim, sem hafa sundurkraminn og auðmjúkan anda, til þess að lífga anda hinna auðmjúku og til þess að lífga hjörtu hinna sundurkrömdu.
Því að eg þreyti ekki deilur eiliflega og reiðist ekki æfmlega, ella mundi andinn vanmegnast fyrirmér og sálirnar, sem eg hefi skapað.
Sökum hinnar syndsamlegu ágirndar hans reiddist eg og laust hann, eybyrgði andlit mitt og var reiður; þrjózkufullur hélt hann þá Leið, er hann lysti.
Eg sá vegu hans og eg vil lækna hann; eg vil leiða hann og veita honum hugsvölun, öllum þeim sem hryggir eru hjá honum.
Skapandi ávöxt Varanna segir Drottinn: Friður, friður fyrir fjarlæga og fyrir nálæga, eg lækna hann!
En hinir óguðlegu eru sem ólgusjór, því að hann getur ekki Verið kyrr og bylgjur hans róta upp aur og leðju.
Hinum óguðlegu, Segir Guð minn, er enginn friður búinn.