Jesajabók 48Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 48

Heyrið þetta, þér Jakobsniðjar, þér sem nefndir eruð eftir Ísrael og runnir eruð úr Júda lindum, þér sem sverjið við nafn Drottins og tignið Ísraels Guð, þótt eigi sé í sannleika og réttlæti.

Því að þeir kenna sig við hina helgu borg og leita trausts hjá Ísraels Guði; nafn hans er Drottinn hersveitanna.

Það sem nú er fram komið, hefi eg kunngjört fyrir löngu, það er útgengið af mínum munni, og eg hefi gjört það heyrum kunnugt; skyndilega færði eg það til vegar og það kom fram.

Af því að eg vissi, að þú ert þrjózkur og háls þinn seigur sem járnseymi og enni þitt hart sem kopar,

fyrir því kunngjörði eg þér það löngu fyrir og lét þig vita það áður en það kom fram, til þess að þú skyldir ekki segja: goð mitt hefir komið því til leiðar, og skurðgoð mitt og hið steypta líkneski mitt hefir ráðstafað því.

Þú hefir heyrt það, sjá, nú er það alt komið fram! Og þér, hljótið þér ekki að játa það? Nú boða eg þér nýja hluti og hulda, sem þú ekkert veizt um.

Þeir eru nú að skapast, en eigi fyr; fyr en í dag hefir þú ekkert um þá heyrt, svo að þú skyldir ekki geta sagt: Sjá, eg vissi það!

Þú hefir hvorki heyrt það né vitað það, né heldur hefir eyra þitt verið opið fyrir löngu; því að eg vissi, að þú ert mjög ótrúr og að þú hefir kallaður verið »trúrofi« frá móðurlífi.

Fyrir sakir nafns míns sefa eg reiði mína og vegna lofs míns hefti eg hana þér í vil, svo að eg uppræti þig eigi.

Sjá, eg hefi hreinsað þig, þó eigi sem silfur, eg hefi reynt þig í Þbræðsluofni hörmungarinnar.

Mín vegna, sjálfs mín vegna gjöri eg það — því að hversu mjög er Natan mitt vanhelgað — og dýrð mína gef eg eigi öðrum.

Heyr mig, Jakob, og þú Ísrael, sem eg hefi kallað: eg er hann, eg er hinn fyrsti, eg er einnig hinn síðasti.

Hönd mín hefir grundvallað jörðina, og hægri hönd mín hefir þanið út himininn; þegar eg kalla á þær, koma þær allar.

Safnist allir saman og heyrið: Hver á meðal þeirra hefir kunngjört þetta: Sá, er Drottinn elskar, skal framkvæma vilja hans á Babel og vera armleggur hans meðal Kaldea?

Það er eg, það er eg, sem hefi talað það, eg hefi og kallað hann; eg hefi leitt hann fram og veitt honum sigurgengi.

Komið til mín og heyrið þetta: Frá upphafi hefi eg eigi talað í leyndum; þegar kominn var sá tími, að það skyldi verða, kom eg. Og nú hefir Drottinn Guð sent mig með sinn anda.

Svo segir Drottinn, frelsari þinn, hinn Heilagi í Ísrael: Eg Drottinn, Guð þinn, er sá, sem kenni þér að gjöra það sem þér er gagnlegt, sem vísa þér þann veg, er þú skalt ganga.

Æ, að þú vildir gefa gaum að boðorðum mínum, þá mundi heill þín verða sem fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjávarins;

niðjar þínir mundu þá verða sem fjörusandur og lífsafkvæmi þín semsandkorn; nafn hans mun aldrei afmáð verða og aldrei hverfa burt frá mínu augliti.

Gangið út úr Babel, skundið burt frá Kaldeum með fagnaðarópi; boðið þetta og birtið það, útbreiðið það til endimarka jarðarinnar; segið: Drottinn hefir frelsað þjón sinn Jakob!

Og þá þyrsti ekki, þegar hann leiddi þá um öræfin; hann lét vatn spretta upp úr kletti handa þeim, og hann klauf klettinn, svo að vatnið vall þar upp.

Hinum óguðlegu, segir Drottinn, er enginn friður búinn.