Jesajabók 46Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jesajabók 46

Bel er hokinn, Nebó er boginn; líkneski þeirra eru fengin eykjum og gripum; goðalíkneskin, sem þér áður báruð um kring, eru nú látin upp á þreyttan eyk, eins og önnur byrði.

Þeir eru bognir og hoknir allir saman; þeir megna ekki að frelsa byrðina, og sjálfir hljóta þeir að fara í útlegð.

Hlýðið á mig, þér kynsmenn Jakobs, og allir þér, sem eftir eruð af kyni Ísraels, þér sem eruð mér á herðar lagðir alt í frá móðurkviði og eg hefi borið alt í frá móðurlifi!

alt til elliára er eg hinn sami, og eg vil bera yður, þar til er þér verðið gráir fyrir hærum; eg hefi gjört yður, og eg skal bera yður; eg skal bera yður og frelsa.

Við; hvern viljið þér samlíkja mér og jafna mér? saman við hvern viljið þér bera mig sem jafningja minn?

Þeir sem steypa gullinu úr sjóðnum og vega silfrið á vogarskálum, leigja svo gullsmið til að smíða úr Því guð; síðan knékrjúpa þeir og falla fram.

Þeir lyfta honum á axlir sér, bera hann og setja hann á sinn stað, og þar stendur hann og víkur ekki úr stað; og þótt einhver ákalli hann, þá svarar hann ekki, frelsar hann eigi úr nauðum.

Minnist þessa og látið yður segjast, leggið það á hjarta, þér trúrofar.

Minnist þess hins fyrra frá upphafi, að eg er Guð og enginn annar, hinn sanni Guð og enginn minn líki,

eg sem kunngjörði endalokin frá öndverðu og sagði fyrir fram það, sem eigi var enn fram komið; sem segi: mín ráðsályktun stendur stöðug og alt, sem mér vel líkar, framkvæmi eg;

eg, sem kalla örninn úr austurátt, úr fjarlægu landi mann þann, er framkvæmir ráðsályktun mína; það sem eg tala, það læt eg einnig fram koma; það sem eg áset mér, það gjöri eg einnig.

Hlýðið á mig, þér harðsvíruðu, sem eruð fjarlægir réttlætinu!

Eg nálægi mitt réttlæti; það er ekki langt í burtu, og hjálp mín skal ekki dvelja; eg veiti hjálp í Zion og vegsemd mína Ísrael.