Gamla testamentiðSpámennirnir
Svo ÞaV til á fjórtánda ríkisári Hiskía konungs, að Sanherib Assýríu-konungur fór herför gegn öllum víggirtum borgum í Júda vann þær.
Þá sendi Assýríu-konungur Rabsake með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs; hann nam staðar hjá vatnstokknum úr efri tjörninni, við veginn út á bleiki-völlinn.
Þá gengu þeir út til hans Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanzlari og Jóak Asafsson sagnameistari.
Og Rabsake mælti til þeirra: Segið Hiskia: Svo segir hinn mikli konungur, Assýríu-konungur: Hvert er það athvarf, er þú treystir á?
Eg segi: er þú ráðgjörir hernað og hyggur þig fullstyrkan til, þá er það munnfleipur eitt. Á hvern treystir þú þá svo, að þú skulir hafa gjört uppreisn í gegn mér?
Sjá, þú treystir á þennan brotna reyrstaf, á Egiptaland; en hann stingst upp í höndina á hverjum þeim, er við hann styðst, og fer í gegnum hana. Slíkur er Faraó Egiptalands-konungur öllum þeim, er á hann treysta.
Ogsegir þú við mig: vér treystum á Drottin, Guð vorn, eru það þá ekki fórnarteæðir hans og ölturu, sem Hiskía hefir numið burt, er hann sagði við Júda og Jerúsalem: Fyrir jressu altari skuluð þér fram falla?
Kom til og veðja við herra minn, Assýríu-konunginn: Eg skal fá þér tvö þúsund hesta, ef þú getur sett riddara á þá.
Hvernig munt þú þá fá rekið af höndum þér einn höfuðsmann meðal hinna minstu þjóna herra míns? Og þó treystir þú á Egiptaland vegna hervagnanna og riddaranna!
Og hvort mun eg nú hafa farið til þessa lands án vilja Drottins, til þess að eyða það? Drottinn sagði við mig: »Far þú inn í þetta land og eyð það«.
Þá sögðu þeir Eljakím, Sébna og Jóak við Rabsake: Tala þú við þjóna þína á sýrlenzku, því að vér skiljum hana; en tala eigi við oss á Júda-tungu í áheyrn fólksins, sem uppi er á borgarveggnum.
En Rabsake sagði: Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín, til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt með yður, að eta sinn eiginn saur og drekka þvag sitt?
Þá gekk Rabsake fram og kallaði hárri röddu á Júda-tungu og mælti: Heyrið orð hins mikla konungs, Assýríu-konungs!
Svo segir konungurinn: í.álið eigi Hiskia tæla yður, því að hann fær ekki frelsað yður.
Og látið eigi Hiskía koma yður til að treysta á Drottin með því að segja: »Drottinn mun vissulega frelsa oss; þessi borg skal ekki verða Assýríu-konungi í hendur seld«.
Hlustið eigi á Hiskía! Því að svo segir Assýríu-konungur: Gjörið frið við mig og gangið mér á hönd, þá skal hver yðar mega eta af sínum vínviði og sínu fíkjutré og hver yðar drekka vatn úr sínum brunni,
þar til er eg kem og flyt yður í annað eins land og yðar land, í kornland og aldinlagar, í brauðland og vingarða.
Látið eigi Hiskía ginna yður, er hann segir: »Drottinn mun frelsa oss. Hefir nokkur af guðum þjóðanna frelsað land sitt undan hendi Assýriu-konungs?
BHvar eru guðir Hamathorgar og Arpadhorgar? Hvar eru guðir Sefarvaím? og hafa þeir frelsað Samaríu undan minni hendi?
Hverjir eru þeir af öllum guðum þessara landa,. er frelsað hafi lönd sín undan minni hendi, svo að Drottinn skyldi fá frelsað Jerúsalem undan minni hendi?
En menn þögðu og svöruðu honum engu orði, því að skipun konungs var þessi: Svarið honum eigi.
En þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanzlari og Jóak Asafsson sagnameistari gengu á fund Hiskía með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð Rabsake.