Gamla testamentiðSpámennirnir
að Gangið nær, þér þjóðir, að þér megið heyra! Hlýðið til, þér lýðir! Heyri það jörðin og alt, sem á henni er, jarðarkringlan og alt, sem á henni vex!
Því að Drottinn er reiður öllum heiðingjunum og gramur öllum þeirra her; hann hefir vígt þá dauðanum og ofurselt þá til slátrunar.
Vegnum mönnum þeirra er burt kastað og hrævadaunn stígur upp af líkum þeirra, og fjöllin renna sundur af blóði þeirra.
Allur himinsins her hjaðnar og himininn vefst saman eins og bókfell; og allur hans her hrynur niður, eins og laufið fellur af vínviði og visin blöð af fíkjutré.
Því að sverð mitt hefir drukkið sig drukkið á himnum; nú lýstur því niður til dóms yfir Edóm og þá þjóð, sem eg hefi vígt dauðanum.
sverð Drottins er alblóðugt, löðrandi af feiti, af blóði lamba og kjarnhafra, af nýrnamör úr hrútum; því að Drottinn heldur fórnarveizlu í Bozra og slátrun mikla í Edómlandi.
Villinautin hniga með þeim, og ungneytin með uxunum; land þeirra flýtur í blóði og jarðvegurinn er löðrandi af feiti.
Því að nú er hefndardagur Drottins, endurgjaldsárið, til að reka réttar Zíonar.
Lækirnir skulu verða að biki og jarðvegurinn að brennisteini; landið skal verða að brennandi biki.
Það skal eigi slokna nætur né daga; reykurinn af því skal upp stíga um aldur og æfi; það skal liggja í eyði frá einni kynslóð til annarrar; enginn maður skal þar um fara að eilífu.
Pelíkanar og stjörnuhegrar skulu fá það til eignar, náttuglur og hrafnar búa þar; hann mun draga yfir það mælivað auðnarinnar og mælilóð aleyðingarinnar.
Tignarmenn landsins kveðja þar eigi til konungskosningar og allir höfðingjarnir verða að engu.
Í höllunum munu þyrnar upp vaxa og klungrar og þistlar í víggirtum borgunum; það mun verða sjakalabæli og strútsfuglagerði.
Urðarkettir og sjakalar skulu koma þar saman, og skógartröll mæla sér þar mót; næturgrýlan ein skal hvílast þar og finna sér þar hæli.
Stökkormurinn skal búa sér þar hreiður og klekja þar út, verpa þar eggjum og unga þeim út í skugganum; gleður einar skulu flykkjast þar hver til annarrar.
Leitið í bók Drottins og lesið: Ekkert af þeim vantar, ekkert þeirra saknar annars; því að munnur Drottins hefir svo um boðið, og það er andi hans, sem hefir stefnt þeim saman.
Hann hefir sjálfur kastað hlutum fyrir þau, og hönd hans hefir skift landinu milli þeirra með mælivað; þau munu eiga það um aldur og æfi og búa þar frá einni kynslóð til annarrar.