Jeremíabók 21Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 21

Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, þegar Zedekía konungur sendi þá Pashúr Malkíason og Zefanía prest Maasejason til hans með þá orðsending:

Gakk til frétta við Drottin fyrir oss, því að Nebúkadrezar Babel-konungur herjar á oss, hvort Drottinn muni við oss gjöra samkvæmt öllum sínum dásemdarverkum, svo að hann fari burt frá oss aftur.

á sagði Jeremía við þá: Segið svo Zedekía:

Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Sjá, eg sný við hervopnunum í höndum yðar, sem þér berjist með við Babel-konung og við Kaldea, sem að yður kreppa, fyrir utan borgarmúrinn og safna þeim saman inni í þessari borg,

rgarmúrinn og safna þeim saman inni í þessari borg, B og eg berst sjálfur við yður með útréttri hendi og sterkum armlegg, og með reiði, heift og mikilli gremi;

og eg drep íbúa þessarar borgar, bæði menn og skepnur: þeir skulu deyja af mikilli drepsótt.

En eftir það, segir Drottinn, mun eg selja Zedekía Júdakonung og þjóna hans og lýðinn, þá er eftir verða í þessari borg eftir drepsóttina, sverðið og hungrið, í hendur Nebúkadrezars Babel-konungs og í hendur óvina þeirra og í hendur þeirra, er sækjast eftir lífi þeirra, og hann skal drepa þá með sverðseggjum hlífðarlaust, vægðarlaust og miskunnarlaust.

En við lýð þennan skalt þú segja: Svo segir Drottinn: Sjá, eg legg fyrir yður veg lífsins og veg dauðans.

Þeir sem verða kyrrir Í Þessari borg, munu deyja fyrir sverði, af hungri og af drepsótt; en þeir sem fara út og ganga á vald Kaldeum, sem að yður kreppa, Þeir munu lífi halda og hljóta líf sitt að herfangi.

Því að eg hefi snúið andliti mínu gegn þessari borg, til óheilla og ekki til heilla — segir Drottinn; hún skal ofurseld verða Babel-konungi, og hann skal brenna hana í eldi.

Og við hús Júdakonungs skalt þú segja: Heyrið orð Drottins, Davíðs hús!

Svo segir Drottinn: Haldið rétt að morgni dags og frelsið hími rænda af hendi kúgarans, til þess að heiftarreiði mín brjótist ekki út, eins og eldur, og brenni, svo að enginn fái slökt — sakir illverka yðar!

Sjá, eg skal finna þig, þú sem býr í dalnum, kletturinn á sléttunni — segir Drottinn —, yður sem segið: Hver skyldi koma ofan á hendur oss og hver skyldi brjótast inn í bústaði vora?

Og eg skal vitja yðar samkvæmt ávöxtum verka yðar — segir Drottinn — og leggja eld í skóg yðar, og hann skal eyða öllu, sem umhverfis hana er.