Gamla testamentiðSpámennirnir
Þegar eg sný við högum þjóðar minnar, jafnskjótt og eg ætla að lækna Ísrael, koma misgjörðir Efraíms í ljós og illverk Samaríu, því að þeir fremja svik og þjófar brjótast inn í húsin og ræningjasveitir ræna úti fyrir.
Og þeir hugsa ekki um það, að eg man eftir allri ilsku þeirra. Nú umkringja gjörðir þeirra þá, eru komnar fyrir auglit mitt.
Þeir gamna konunginum með ilsku sinni og höfðingjunum með lygum sínum.
Þeir eru allir hórkarlar; þeir eru eins og glóandi ofn, sem bakarinn aðeins hættir að kynda frá því hann hefir hnoðað deigið, unz það er gagnsýrt.
Á hátíðardegi konungs vors drekka höfðingjarnir sig sjúka í víni; hann leggur lag sitt við gárunga.
Því að innan eru þeir eins og ofn, hjarta þeirra brennur í þeim; alla nóttina sefur reiði þeirra, á morgnana brennur hún eins og logandi eldur.
Allir eru þeir glóandi eins og ofn, svo að þeir fyrirkoma yfirmönnum sínum; allir konungar þeirra eru fallnir, enginn ákallar mig á meðal þeirra.
Efraím hefir blandað sér saman við þjóðirnar; Efraím er orðinn eins og kaka, sem ekki hefir verið snúið.
Útlendir menn hafa eytt krafti hans, án þess að hann viti af því, já, hærur eru sprotnar í höfði honum, án þess að hann hafi veitt því eftirtekt.
Þrátt fyrir það, þótt vegsemd Ísraels hafi vitnað í gegn þeim, þá hafa þeir ekki snúið sér til Drottins, Guðs þeirra, og hafa ekki leitað hans, þrátt fyrir alt þetta.
En Efraím er orðinn eins og einföld, óskynsöm dúfa: þeir kalla á Egipta, fara á fund Assýringa.
Þegar þeir fara þangað, breiði eg net mitt yfir þá, steypi þeim niður eins og fugli í loftinu, lyfta þá, eins og söfnuði þeirra hefir boðað verið.
Vei þeim, að þeir reika langt í burt frá mér! Eyðing yfir þá, að þeir hafa brugðið trúnaði við mig! Eg hefi leyst þá, og þeir hafa talað lygar gegn mér,
og hrópuðu ekki til mín af hjarta, heldur kveinuðu í rekkjum sínum. Vegna korns og vínberjalagar ristu þeir á sig skinnsprettur, mér fráhverfir.
Og þó er það eg, sem hefi frætt þá, sem hefi gjört armleggi þeirra styrkva. En gagnvart mér hafa þeir alt í hyggju.
Þeir snúa sér, en ekki í hæðirnar. Þeir eru eins og svikull bogi. Höfðingjar þeirra munu falla fyrir sverði vegna ósvífni tungu sinnar — fyrir það munu menn hæða þá á Egiptalandi.