Hóseabók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 1

Orð Drottins, sem kom til Hósea Beerísonar á dögum Ússía, Jótams, Akasar og Itiskía, Júda-konunga, og á dögum Jeróbóams Jóassonar, ísraels-konungs.

Þá er Drottinn hóf að tala við Hósea, sagði Drottinn við Hósea: Far og tak þér hórkonu og eignast hórbörn; því að landið drýgir hór og hefir snúist frá Drottni.

Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur; hún varð þunguð og fæddi honum son.

Og Drottinn sagði við hann: Lát hann heita Jesreel. Því að innan skamms vitja eg blóðskuldar Jesreel á ætt Jehú og gjöri enda á konungdómi Ísraels húss.

Á þeim degi sundurbrýt eg boga Ísraels á Jesreel-völlum.

Og hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Þá sagði hann við hann: Lát þú hana heita Ló-rúhama, því að eg mun eigi framar auðsýna náð Ísraels húsi, svo að eg fyrirgefi þeim.

En eg mun auðsýna náð Júda húsi og hjálpa þeim fyrir Drottni, Guði þeirra; en eg mun eigi hjálpa þeim með boga, sverði, bardögum, hestum né riddurum.

Og er hún hafði vanið Ló-rúhama af brjósti, varð hún enn þunguð og ól son.

Þá sagði hann: Lát hann heita Ló-ammií, því að þér eruð ekki minn lýður og eg er ekki yðar Guð.

En tala Ísraelsmanna skal verða sem sandur á sjávarströnd, sem ekki verður mældur og ekki talinn. Og í stað þess að sagt var við þá: Þér eruð ekki minn lýður! skal við þá sagt verða: Synir hins lifanda Guðs!

Og Júdamenn og Ísraelsmenn skulu safnast saman og velja sér einn yfirmann og hefja ferð sína heim úr landinu; því að mikill mun Jesreel-dagur verða.