En höfuðinntak þess, sem sagt hefir verið, er þetta: Vér höfum þann æðsta prest, er settist til hægri handar hástóls hátignarinnar á himnum,
helgiþjón helgidómsins og tjaldbúðarinnar, hinnar sönnu, sem Drottinn reisti, eigi maður.
Því að sérhver æðsti prestur er skipaður til þess að bera fram bæði gáfur og fórnir; fyrir því er það nauðsynlegt, að þessi æðsti prestur hafi líka eitthvað fram að bera.
Væri hann nú á jörðu, mundi hann alls ekki vera prestur, þar sem þeir eru fyrir, sem lögmálinu samkvæmt frambera gáfurnar,
og eru það þeir, sem veita þjónustu eftir mynd og skugga hins himneska, eins og Móse fékk bendingu um frá Guði, er hann var að koma upp tjaldbúðinni: Því að gæt þess, segir hann, að þú gjörir alt eftir þeirri fyrirmynd, sem þér var sýnd á fjallinu.
En nú hefir hann fengið þeim mun ágætari helgiþjónustu, sem hann og er meðalgangari betri sáttmála, sem lögtrygður er betri fyrirheitum.
Því að hefði sá hinn fyrri sáttmáli verið óaðfinnanlegur, þá hefði ekki verið reynt að koma öðrum að.
Því að hann er að finna að, þegar hann segir við þá: Sjá, dagar koma, segir Drottinn, og eg mun gjöra nýjan sáttmála við hús Ísraels og við hús Júda,
ekki eins og sáttmálann, er eg gjörði við feður þeirra á þeim degi, er eg tók í hönd þeirra, til að leiða þá út af Egiptalandi, því að þeir héldu ekki minn sáttmála, og eg hirti eigi um þá, segir Drottinn.
Því að þetta er sáttmálinn, sem eg mun gjöra við hús Ísraels eftir þá daga, segir Drottinn: Eg mun gefa lög mín í hugskot þeirra og rita þau á hjörtu þeirra, og eg mun vera Guð þeirra, og þeir munu vera lýður minn.
Og alls enginn mun þá kenna samborgara sínum og enginn bróður sínum, svo mælandi: Þektu Drottin, því að allir munu þeir þekkja mig, jafnt smáir sem stórir.
Því að eg mun vera vægur við misgjörðir þeirra, og eg mun alls ekki framar minnast synda þeirra.
Þar sem hann nú kallar þetta nýjan sáttmála, þá hefir hann lýst hinn fyrri úreltan, en það sem er að úreldast og fyrnast, er að því komið að verða að engu.