Hebreabréfið 13Krans-útgáfa

Hebreabréfið 13

Bróðurkærleikurinn haldist.

Gleymið ekki gestrisninni, því að vegna hennar hafa sumir sér óafvitandi hýst engla.

Minnist bandingjanna, sem væruð þér sambandingjar þeirra; minnist þeirra er ilt líða, þar sem þér sjálfir eruð einnig með líkama.

Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum, og hjónasængin sé óflekkuð, því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.

Sýnið enga fégirni í hegðun yðar, en látið yður nægja það sem þér hafið, því að sjálfur hefir hann sagt: Eg mun alls ekki sleppa þér og eigi heldur yfirgefa þig;

svo að vér getum öruggir sagt: Drottinn er minn hjálpari; eigi mun eg óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér?

Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað; virðið fyrir yður, hvaða afdrif æfi þeirra fékk, og líkið síðan eftir trú þeirra.

Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.

Látið yður ekki afvega leiða af ýmislegum og annarlegum kenningum, því að það er gott að hjartað styrkist við náð, ekki við matveislur, því að þeir sem gáfu sig að þeim, höfðu eigi happ af því.

Vér höfum altari, og hafa þeir, er tjaldbúðinni þjóna, ekki leyfi til að eta af því.

Því að brend eru fyrir utan herbúðirnar hræ þeirra dýra, sem æðsti presturinn ber blóðið úr inn í helgidóminn til syndafórnar.

Þess vegna leið og Jesús fyrir utan hliðið, til þess að hann helgaði lýðinn með blóði sínu.

Göngum því til hans út fyrir herbúðirnar og berum vanvirðu hans.

Því að vér höfum hér ekki borg er stendur, heldur leitum vér hinnar komandi.

Fyrir hann skulum vér því óaflátanlega frambera lofgjörðar fórn fyrir Guð, það er: ávöxt vara, er játa nafn hans.

En gleymið ekki velgjörðaseminni og hjálpseminni, því að slíkar fórnir eru Guði þóknanlegar.

Hlýðið leiðtogum yðar og verið þeim eftirlátir, því að þeir vaka yfir sálum yðar, svo sem þeir er reikning eiga að lúka fyrir þær, til þess að þeir geti gjört það með gleði, en ekki andvarpandi, því að yður væri það til ógagns.

Biðjið fyrir oss, því að vér erum þess fullvissir, að vér höfum góða samvisku og viljum í öllum greinum breyta vel.

En eg áminni yður enn rækilegar um að gjöra þetta, til þess að þér fáið mig brátt aftur heimtan.

En Guð friðarins, er leiddi aftur fram frá dauðum hinn mikla hirði sauðanna, með blóði eilífs sáttmála, Drottin vorn Jesúm,

hann fullkomni yður í öllu góðu, til að gjöra vilja hans, og komi því til leiðar í oss, sem þóknanlegt er í hans augum, fyrir Jesúm Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.

En eg áminni yður, bræður, að þér þolið áminningar-orðið, því að fáort hefi eg yður ritað.

Vita skuluð þér, að bróðir vor Tímóteus hefir fengið lausn, og ásamt honum mun eg sjá yður, komi hann bráðum.

Heilsið öllum leiðtogum yðar og öllum heilögum. Mennirnir frá Ítalíu senda yður kveðju.

Náð sé með yður öllum. Amen.