Gamla testamentiðSpámennirnir
Minstu þess, Drottinn, hvað yfir oss hefir gengið; lít þú á og sjá háðung vora.
Arfleifð vor er komin í hendur annarra, hús vor í hendur útlendinga.
Vér erum orðnir munaðarleysingjar, föðurlausir, mæður vorar orðnar sem ekkjur.
Vatnið, sem vér drekkum, verðum vér að kaupa, viðinn fáum vér aðeins gegn borgun.
Ofsækjendur vorir sitja á hálsi vorum; þótt vér séum þreyttir, fáum vér enga hvíld.
Egiptalandi réttum vér hönd, Assúr, til þess að seðjast af mat.
Feður vorir syndguðu; þeir eru eigi framar til, og vér berum misgjörð þeirra.
Þrælar drotna yfir oss; enginn hrífur oss úr höndum þeirra.
Með lífsháska sækjum vér matbjörg vora í eyðimörkinni, þar sem sverðið vofir yfir oss.
Hörund vort er orðið svart eins og ofn af hungurbruna.
Konur hafa þeir svívirt í Zion, meyjar Í Júda-borgum.
Höfðingjar voru hengdir af þeim, öldungum var engin virðing sýnd.
Æskumennirnir urðu að bera kvörn og sveinarnir duttu undir viðarbyrðunum.
Öldungarnir eru horfnir úr borgarhliðunum, æskumennirnir frá strengleikum.
Fögnuður hjarta vors er þrotinn, gleðidans vor snúinn Í sorg.
Kórónan er fallin af höfði voru; vei oss, því að vér höfum syndgað.
Af því er hjarta vort sjúkt orðið, vegna þess eru augu vor döpur,
vegna Zion-fjalls, sem er í eyði og refar nú hlaupa um.
Þú, Drottinn, ríkir að eilífu, þitt hásæti stendur frá kyni til kyns.
Hví vilt þú gleyma oss eiliflega, yfirgefa oss um langan aldur?
Snú þú oss til þín, Drottinn, þá snúum vér við; lát þú daga vora aftur verða eins og forðum!
Eða hefir þú hafnað oss fyrir full og alt, reiðst oss úr öllum máta? Esekíel.