Habakkuksbók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Habakkuksbók 1

Spádómur, sem opinberaður var Habakúk spámanni.

Hversu lengi hefi eg kallað, Drottinn, og þú heyrir ekki; hversu lengi hefi eg hrópað til þín: »Ofríki!te og þú hjálpar ekki!

Hví lætur þú mig sjá rangindi, hví horfir þú upp á rangsleitni? Eyðing og ofríki standa fyrir augum mér; af því koma þrætur og deilur rísa upp.

Fyrir því verður lögmálið magnlaust og fyrir því kemur rétturinn aldrei fram. Því að hinir óguðlegu umkringja hina réttlátu; fyrir því kemur rétturinn fram rangsnúinn.

Lítið upp, þér hinir sviksömu, og litist um! Fallið í stafi og undrist! Því að hann framkvæmir verk á yðar dögum — þér munduð ekki trúa því, ef sagt væri frá því.

Því sjá, eg reisi upp Kaldea, hina harðgjöru og ofsafullu þjóð, sem fer um víða veröld til þess að leggja undir sig bústaði, sem hún ekki á.

Ægileg og liræðileg er hún; frá henni sjálfri út gengur réttur hennar og tign.

Hestar hennar eru frárri en pardusdýr og skjótari en úlfar að kveldi dags; riddarar hennar þeysa áfram og riddarar hennar koma langt að; þeir fljúga áfram eins og örn, sem hraðar sér að æti.

Allir koma þeir til þess að fremja ofbeldisverk, brjótast beint áfram og raka saman herleknum mönnum eins og sandi.

Og hann — hann gjörir gys að konungum, og höfðingjar eru honum að hlátri. Hann hlær að öllum virkjum; hann hrúgar upp mold og vinnur þau.

Þá fær hann nýjan kraft og brýzt inn og gjörist brotlegur, hann, sem trúir á mátt sinn og megin.

Ert þú, Drottinn, ekki Guð minn frá öndverðu, minn Heilagi, sem aldrei deyr? Drottinn, þú hefir falið honum að framkvæma dóm; bjargið mitt, þú hefir sett hann til að refsa.

Augu þín eru of hrein til þess að líta hið illa og þú getur ekki horft upp á rangsleitni. Hví horfir þú á svikarana, hví þegir þú, þegar hinn óguðlegi uppsvelgir þann, sem honum er réttlátari?

Og þannig hefir þú látið mennina verða eins og fiska sjávarins, eins og skriðkvikindin, sem engan drotnara hafa.

Hann dró þá alla upp á öngli sínum, hrífur þá í net sitt og safnar þeim í vörpu sína. Fyrir því gleðst hann og fagnar;

Gfyrir því færir hann neti sínu sláturfórn og vörpu sinni reykelsisfórn. Því að þau afla honum ríkulegs lilutskiflis og ríflegs matar.

Fyrir því bregður hann sverði sínu án afláts, til þess að drepa þjóðir vægðarlaust.