Gamla testamentiðLögmálið
En svo bar við að tveim árum liðnum, að Faraó dreymdi —— draum. Hann þóttist standa við ána.
Og sjá, upp úr ánni komu sjö kýr, fallegar útlits og feitar á hold, og fóru að bita sefgresið.
Og sjá, á eftir þeim komu sjö aðrar kýr upp úr ánni, ljótar útlits og magrar á hold, og staðnæmdust hjá hinum kúnum á árbakkanum.
Og kýrnar, sem ljótar voru útlits og magrar á hold, átu upp hinar sjö kýrnar, sem voru fallegar útlits og feitar á hold. Þá vaknaði Faraó.
Og hann sofnaði aftur og dreymdi í annað sinn, og sjá, sjö öx uxu á einni stöng, þrýstileg og væn.
Og sjá: sjö öx, grönn og skrælnuð af austvindi, spruttu á eftir þeim.
Og hin grönnu öxin svelgdu í sig þau sjö þrýstilegu og fullu. Þá vaknaði Faraó, og sjá: það var draumur.
En um morguninn var honum órótt í skapi; sendi hann því og lét kalla alla spásagnamenn Egiptalands og alla vitringa þess; og Faraó sagði þeim drauma sína; en enginn gat ráðið þá fyrir Faraó.
Þálók yfirbyrlarinn til máls og sagði við Faraó: Eg minnist í dag synda minna.
Faraó reiddist þjónum sínum og setti þá í varðhald í húsi lífvarðarforingjans, mig og yfirbakarann.
Þá dreymdi okkur sömu nóttina draum, mig og hann, sinn drauminn hvorn okkar, og hafði hvor draumurinn sína þýðingu.
Þar var með okkur hebreskur sveinn, þjónn hjá lífvarðarforingjanum; honum sögðum við drauma okkar og hann réð þá fyrir okkur; hvorum fyrir sig réð hann eins og draumur af hans þýddi.
Og svo fór sem hann hafði ráðið okkur draumana, því að eg var aftur settur í embætti mitt, en hinn var hengdur,
Þá sendi Faraó og lét kalla Jósef og leiddu þeir hann í skyndi út úr myrkvastofunni; því næst lét hann skera hár sitt og fór í önnur klæði; gekk síðan inn fyrir Faraó.
Þá sagði Faraó við Jósef: Mig hefir dreymt draum og enginn getur ráðið hann; en það hefi eg af þér frétt, að þú ræður hvern draum, sem þú heyrir.
Þá svaraði Jósef Faraó og mælti: Eigi er það á mínu valdi; Guð mun birta Faraó það, er honum má til heilla verða.
Og Faraó sagði við Jósef: Mig dreymdi að eg stæði á árbakkanum.
Og sjá, upp úr ánni komu sjö kýr, feitar á hold og fallegar útlits, og fóru að bíta sefgresið.
Og sjá, á eftir þeim komu upp sjö aðrar kýr, renglulegar og mjög ljótar útlits og magrar á hold; hefi eg engar séð jafnljótar á öllu Egiptalandi.
Og hinar mögru og ljótu kýrnar átu sjö fyrri feitu kýrnar.
En er þær höfðu etið þær, var það ekki á þeim að sjá, að þær hefðu etið þær, heldur voru þær ljótar útlits sem áður. Þá vaknaði eg.
Og eg sá í draumi mínum og sjá: sjö öx uxu á einni stöng, full og væn.
Og sjá: sjö öx, grönn og skrælnuð af austanvindi, spruttu á eftir þeim.
Og hin grönnu öxin svelgdu í sig sjö vænu öxin. Eg hefi sagt spásagnamönnunum frá þessu, en enginn getur úr leyst.
Þá mælti Jósef við Faraó: Draumur Faraós er einn; það, sem Guð ætlar að gjöra, hefir hann boðað Faraó.
Sjö vænu kýrnar merkja sjö ár og sjö vænu öxin merkja sjö ár; þetta er einn og sami draumur.
Og sjö mögru og ljótu kýrnar, sem á eftir hinum komu, merkja sjö ár, og sjö tómu öxin, sem skrælnuð voru af austanvindi, munu vera sjö hallærisár.
Það er það, sem eg sagði við Faraó: það, sem Guð ætlar að gjöra, hefir hann sýnt Faraó.
Sjá, sjö ár munu koma; munu þá verða miklar nægtir um alt Egiptaland.
En eftir þau munu koma sjö hallærisár; munu þá gleymast allar nægtirnar í Egiptalandi og hungrið eyða landið.
Og eigi mun nægtanna gæta í landinu sakir hallærisins, sem á eftir kemur; því að það mun verða mjög mikið.
En þar sem Faraó dreymdi tvisvar sinnum hið sama, þá er það fyrir þá sök, að þetta er fastráðið af Guði og Guð mun skjótlega framkvæma það.
Fyrir því velji nú Faraó til hygginn og vitran mann og setji hann yfir Egiptaland.
Faraó gjöri þetta og skipi umsjónarmenn yfir landið og taki fimtung af afrakstri Egiptalands á sjö nægtaárunum.
Og þeir skulu safna öllum vistum frá góðu árunum, sem fara í hönd, og draga saman kornbirgðir í borgirnar undir umráð Faraós og geyma.
Og vistirnar skulu vera forði fyrir landið á sjö hallærisárunum, sem koma munu yfir Egiptaland, að landið farist eigi af hungrinu.
Þetta líkaði Faraó vel og öllum þjónum hans.
Og Faraó sagði við þjóna sína: Munum vér finna slíkan mann sem þennan, er Guðs andi býr í?
Og Faraó sagði við Jósef: Með því að Guð hefir birt þér alt þetta, þá er enginn svo hygginn og vitur sem þú.
Þig set eg yfir hús mitt og þínum boðum skal öll mín þjóð hlýða, — að hásætinu einu skal eg þér æðri vera.
Og Faraó sagði við Jósef: Sjá, eg set þig yfir alt Egiptaland.
Og Faraó tók innsiglishring sinn af hendi sér og dró á hönd Jósefs og lét færa hann í dýrindis línklæði og lét gullmen um háls honum.
Og hann lét aka konum í öðrum vagni sínum og menn hrópuðu fyrir honum »abrek«, og hann setti hann yfir alt Egiptaland.
Og Faraó sagði við Jósef: Eg er Faraó, en án þíns vilja skal enginn hreyfa hönd eða fót í öllu Egiptalandi.
Og Faraó kallaði Jósef Zafenatpanea og gaf honum fyrir konu Asnat, dóttur Pótífera, prests í Ón. Og Jósef ferðaðist um Egiptaland.
En Jósef var þrítugur að aldri, er hann stóð frammi fyrir Faraó, Egiptalands konungi. Því næst fór Jósef burt frá augliti Faraós og ferðaðist um alt Egiptaland.
Og afrakstur landsins var afarmikill sjö nægtaárin.
Þá safnaði hann saman öllum vistum þeirra sjö ára, er nægtir voru í Egiptalandi, og safnaði vistum í borgirnar; í sérhverja borg safnaði hann vistunum af þeim ökrum, sem umhverfis hana voru.
Og Jósef hrúgaði saman korni sem sandi á sjávarströndu, ákaflega miklu, þar til hann hætti að telja, því að tölu varð eigi á komið.
En Jósef fæddust tveir synir áður en fyrsta hallærisárið kom; þá sonu fæddi honum Asnat, dóttir Pótífera, prests í Ón.
Og Jósef nefndi hinn frumgetna Manasse; því að Guð hefir, sagði hann, látið mig gleyma öllum þrautum mínum og öllu húsi föður míns.
En hinn nefndi hann Efraím; því að Guð hefir, sagði hann, gjört mig frjósaman í landi eymdar minnar.
Og sjö nægtaárin, sem voru í Egiptalandi, liðu á enda;
og sjö hallærisárin gengu í garð, eins og Jósef hafði sagt; var þá hallæri í öllum löndum, en í öllu Egiptalandi var brauð.
En er hungur gekk yfir alt Egiptaland, heimtaði lýðurinn brauð af Faraó. Þá sagði Faraó við alla Egipta: Farið til Jósefs; gjörið það, sem hann segir yður.
Og hungrið gekk yfir allan heiminn og Jósef opnaði öll forðabúrin og seldi Egiptum korn, og hungrið svarf að í Egiptalandi.
Komu menn þá úr öllum löndum til Egiptalands, til þess að kaupa korn hjá Jósef, því að hungrið svarf að í öllum löndum.