Fyrsta Mósebók 30Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 30

En er Rakel sá, að hún ól Jakob ekki börn, öfundaði hún systur sína og sagði við Jakob: Láttu mig eignast börn, ella mun eg deyja.

Jakob reiddist þá við Rakel og sagði: Er eg þá Guð? Það er hann sem hefir synjað þér lífsafkvæmis.

Þá sagði hún: Þarna er Bíla ambátt mín; gakk þú inn til hennar, að hún megi fæða á skaut mitt og afla mér afkvæmis.

Og hún gaf honum Bílu ambátt sína fyrir konu, og Jakob gekk inn til hennar.

Og Bíla varð þunguð og ól Jakob son.

Þá sagði Rakel: Guð hefir rétt hluta minn, og einnig bænheyrt mig og gefið mér son. Fyrir því nefndi hún hann Dan.

Og Bíla, ambátt Rakelar, varð þunguð í annað sinn og ól Jakob annan son.

Þá sagði Rakel: Stríð hefi eg þreytt um Guðs náð við systur mína og unnið sigur. Og hún nefndi hann Naftalí.

Og er Lea sá, að hún lét af að eiga börn, tók hún Silpu ambátt sína og gaf Jakob hana fyrir konu.

Og Silpa, ambátt Leu, ól Jakob son.

Þá sagði Lea: Til heilla! Og hún nefndi hann Gað.

Og Silpa, ambátt Leu, ól Jakob annan son.

Þá sagði Lea: Sæl er eg, því að allar konur munu mig sæla segja. Og hún nefndi hann Asser.

En Rúben gekk eitt sinn út um hveitiskurðartímann og fann ástarepli á akrinum og færði þau Leu móður sinni. Þá sagði Rakel við Leu: Gef þú mér nokkuð af ástareplum sonar þíns.

En hún svaraði: Er það ekki nóg, að þú tekur bónda minn frá mér, viltu nú einnig taka ástarepli sonar míns? Og Rakel mælti: Hann má þá sofa hjá þér í nótt fyrir ástarepli sonar þíns.

En er Jakob kom heim um kveldið af akrinum, gekk Lea út á móti honum og sagði: Þú átt að ganga inn til mín, því að eg hefi keypt þig fyrir ástarepli sonar míns. Og hann svaf hjá henni þá nótt.

En Guð bænheyrði Leu, og hún varð þunguð og ól Jakob hinn fimta son og sagði:

Guð hefir launað mér það, að eg gaf bónda mínum ambátt mína. Og hún nefndi hann Íssakar.

Og Lea varð enn þunguð og ól Jakob hinn sjötta son.

Þá sagði Lea: Guð hefir gefið mér góða gjöf; nú mun bóndi minn búa við mig, því að eg hefi alið honum sex sonu. Og hún nefndi hann Sebúlon.

Eftir það ól hún dóttur og nefndi hana Dínu.

Þá mintist Guð Rakelar og bænheyrði hana og opnaði móðurlíf hennar.

Og hún varð þunguð og ól son og sagði: Guð hefir numið burt smán mína.

Og hún nefndi hann Jósef og sagði: Guð bæti við mig öðrum syni!

Og er Rakel hafði alið Jósef, sagði Jakob við Laban: Leyf þú mér nú að fara, að Eg megi halda heim til átthaga minna og ættlands míns.

Fá mér konur mínar og börn mín, sem eg hefi þjónað þér fyrir, að eg megi fara, því að þú veizt, hvernig eg hefi þjónað þér.

Þá sagði Laban við hann: Hafi eg fundið náð í augum þínum, þá vertu kyrr; eg hefi tekið eftir því, að Drottinn hefir blessað mig fyrir þínar sakir.

Og hann Mælti: Set þú sjálfur upp kaup þitt við mig og skal eg gjalda það.

Og hann sagði við hann: Þú veizt sjálfur, hvernig eg hefi þjónað þér og hvað fénaður þinn er orðinn hjá mér.

Því að lítið var það, sem þú áttir, áður en eg kom, en það hefir aukist margfaldlega og Drottinn hefir blessað þig við hvert mitt fótmál. Og auk þess, hve nær á eg þá að veita forsjá húsi sjálfs mín?

Og Laban mælti: Hvað skal eg gefa þér? En Jakob sagði: Þú skalt ekkert gefa mér; en viljir þú gjöra þetta, sem eg nú segi, þá vil eg enn þá halda fé þínu til haga og gæta þess.

Eg ætla í dag að ganga innan um alt fé þitt og skilja úr því hverja flekkótta og spreklótta kind. Og hver svört kind meðal sauðanna og hið spreklótta og flekkótta meðal geitanna, það skal vera kaup mitt.

Og ráðvendni mín skal eftirleiðis bera mér vitni, er þú kemur að skoða kaup mitt: alt, sem ekki er flekkótt og spreklótt meðal minna geita og svart meðal minna sauða, skal teljast stolið.

Og Laban sagði: Svo skal þá vera sem þú hefir sagt.

Og á þeim degi skildi hann frá alla rílóttu og spreklóttu hafrana, og allar flekkóttu og spreklóttu geiturnar — alt það, sem hafði á sér einhvern hvítan díla, — og alt hið svarta meðal sauðanna og fékk sonum sínum.

Og hann lét vera þriggja daga leið milli sín og Jakobs; en Jakob gætti þeirrar hjarðar Labans, sem eftir varð.

Og Jakob tók sér stafi af grænni ösp, möndluviði og hlyni og skóf á þá hvítar rákir, með því að nekja hið hvíta á stöfunum.

Því næst lagði hann stafina, sem hann hafði birkt, í þrórnar, í vatnsrennurnar, sem féð kom að drekka úr, beint fyrir framan féð; en ærnar fengu, er þær komu að drekka.

Þannig fengu ærnar uppi yfir stöfunum og ærnar áttu rílótt, flekkótt og spreklótt lömb.

Og Jakob skildi lömbin úr og lét féð horfa á hið rílótta og alt hið svarta í fé Labans; þannig kom hann sér upp sérstökum fjárhópum og lét þá ekki saman við hjörð Labans.

Og um allan göngutíma vænu ánna lagði Jakob stafina í þrórnar fyrir framan féð, svo að þær skyldu fá uppi yfir stöfunum.

En er rýru ærnar gengu, lagði hann þá þar ekki. Þannig fékk Laban rýra féð, en Jakob hið væna.

Og maðurinn varð stórauðugur og eignaðist mikinn fénað, ambáttir og þræla, úlfalda og asna. Jakob flýr burt með fjölskyldu sína; gjörir sáttmála við Laban.