Gamla testamentiðLögmálið
Og dagar Söru voru hundrað tuttugu og sjö ár, það var aldur Söru.
Og Sara dó í Ivirjat-Arba — það er Hebron —í Kanaanlandi; og Abraham fór inn, til að harma Söru og gráta hana.
Síðan gekk hann burt frá líkinu, og kom að máli við Hetíta og sagði:
Eg er aðkomandi og útlendingur meðal yðar; látið mig fá legstað til eignar hjá yður, að eg megi koma líkinu frá mér og jarða það.
Þá svöruðu Hetítar Abraham og sögðu:
Heyr oss fyrir hvern mun, herra minn; þú ert Guðs höfðingi vor á meðal; jarða þú líkið í hinum bezta af legstöðum vorum; enginn meðal vor skal meina þér legstað sinn, að þú megir jarða líkið.
Þá stóð Abraham upp og hneigði sig fyrir landslýðnum, fyrir Hetítum,
mælti við þá og sagði: Ef það er yðar vilji, að eg megi jarða líkið og koma því frá mér, þá heyrið mig og biðjið fyrir mig Efron Zóarsson,
að hann láti mig fá Makpela-helli, sem hann á og er yzt í landeign hans; hann láti mig fá hann fyrir fult verð til grafreits meðal yðar.
En Efron sat þar meðal Hetíta. af svaraði Hetítinn Efron Abraham, í viðurvist Hetíta, frammi fyrir julum þeim, sem gengu út og inn um borgarhlið hans, og mælti:
Nei, herra minn, heyr mig! Landið gef eg þér, og hellinn, sem í því er, hann gef eg þér líka; í augsýn samlanda minna gef eg þér hann. Jarða þú þar líkið.
Þá hneigði Abraham sig fyrir landslýðnum;
mælti því næst til Efrons í viðurvist landslýðsins á þessa leið: Heyr nú, gef gaum að máli mínu! Eg greiði fé fyrir landið; tak þú við því af mér, að eg megi jarða líkið þar.
Þá svaraði Efron Abraham og mælti:
Herra minn, gef fyrir hvern mun gaum að máli mínu! Jörð, sem er fjögur hundruð silfur-sikla virði, hvað er það okkar í milli? jarða þú líkið.
Og Abraham lét að orðum Efrons, og Abraham vó Efron silfrið, sem hann hafði til tekið í viðurvist Hetíta, fjögur hundruð sikla í gangsilfri.
Þannig var landeign Efrons, sem er hjá Makpela gegnt Mamre: landeignin og hellirinn, sem í henni var, og öll trén, er í landeigninni voru, innan takmarka hennar hringinn í kring, —
fest Abraham til eignar, í viðurvist Hetíta, frammi fyrir öllum, sem út og inn gengu um borgarhlið hans.
Og eftir það jarðaði Abraham Söru konu sína í helli Makpela-lands gegnt Mamre — það er Hebron — í Kanaanlandi.
Þannig fékk Abraham landið og hellinn, sem í því var, hjá Hetítum til eignar fyrir grafreit.