Gamla testamentiðSaga
En Davíð hugsaði með sjálfum sér: Nú fell eg einhvern daginn fyrir hendi Sáls; nú er það ráð vænst, að eg forði mér undan til Filistalands; þá gefst Sál upp við að elta mig um alt Ísraels land, og eg slepp úr greipum honum.
síðan tók Davíð sig upp og fór með þau sex hundruð manns, er með honum voru, yfir til Akís Maókssonar, konungs í Gat.
Og Davíð settist að hjá Akís í Gat, bæði hann og menn hans, hver með sína fjölskyldu, Davíð með báðum konum sínum: Ahinóam frá Jesreel og Abigail, þá er átt hafði Nabal á Karmel.
Og þegar Sál frétti, að Davíð væri flúinn til Gat, þá hætti hann að leita hans.
Og Davíð sagði við Akís: Hafi eg fundið náð í augum þínum, þá lát þú fá mér bústað í einhverri borg landsins; hví skal þjónn þinn búa hjá þér í höfuðborginni?
Þá fékk Akis honum Ziklag þann sama dag; fyrir því liggur Ziklag enn í dag undir Júda konunga.
En sá tími, sem Davíð bjó í Filistalandi, var eitt ár og fjórir mánuðir.
Og Davíð og menn hans fóru herför og gjörðu árás á Gesúríta og Gísrita og Amalekíta, því að þeir bjuggu í landinu, sem Í náði frá Telam alla leið til Súr og Egiptalands.
Og þegar Davíð brauzt inn í þessi lönd, lét hann hvorki menn né konur lífi halda, en tók sauðfé og nautgripi, asna og úlfalda og klæði, sneri síðan við og fór aftur til Akís.
Og ef Akís spurði: Hvar hafið þér á ráðið í dag? þá svaraði Davíð: Í Júda sunnan til, eða: Á suðurland Jerahmeelíta, eða: Á suðurland Kenita.
En Davíð lét hvorki menn né konur lífi halda, til þess að flytja það til Gat, með því að hann hugsaði: Þau kynnu að segja eftir oss og taka svo til orða: Svo hefir Davíð að farið. Og sá var siður hans allan þann tíma, sem hann bjó í Filistalandi.
Og Akís trúði Davíð, með því að hann hugsaði: Honum er ekki lengur vært hjá þjóð sinni Ísrael, og fyrir því mun hann æfinlega verða í minni þjónustu. Ófriður við Filista. Sál í Endór.