Fyrri Samúelsbók 25Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Samúelsbók 25

Og Samúel dó, og allur Ísrael safnaðist saman og syrgði hann, og var hann grafinn hjá húsi sínu í Rama. Og Davíð tók sig upp og fór ofan í Maon-eyðimörk.

En í Mao var maður, er bú átti á Karmel; hann var auðugur mjög og átti þrjú þúsund sauðfjár og eitt þúsund geitur. Hann var þá að klippa sauði sína á Karmel.

Maður þessi hét Nabal og kona hans Abígail; bú? var kona vitur og fríð sýnum, en hann maður harður og illur viðureignar; hann var af ætt Kalebs.

Og Davíð frétti í eyðimörkinni, að Nabal væri að klippa sauði sína.

Þá sendi Davíð tíu sveina; og Davíð sagði við sveinana: Farið til Karmel og gangið á fund Nabals og berið honum kveðju

og mælið svo við bróður minn: Heill sért þú og heill sé húsi þínu og heill sé öllu, sem þú átt.

Nú hefi eg heyrt, að verið sé að klippa sauði þína; en fjárhirðar þínir hafa með oss verið og vér höfum þeim ekkert mein gjört, enda hefir þeim einkis vant orðið allan þann tíma, er þeir hafa verið á Karmel —

spyr þú sveina þína, og munu þeir segja þér af hið sanna —; lát því sveinana finna náð í augum þínum, því að á hátíðardegi erum vér komnir. Gef því þjónum þínum og Davíð syni þínum það, sem þú hefir fyrir hendi.

Og er sveinar Davíðs komu á fund Nabals, fluttu þeir honum öll þessi orð í nafni Davíðs og þögnuðu síðan.

En Nabal svaraði þjónum Davíðs og mælti: Hver er Davíð? og hver er Ísaíson? Margir gjörast Þeir nú þrælarnir, sem strjúka frá húsbændum sínum.

Á eg að taka brauð mitt og vín og sláturfé mitt, sem eg hefi slátrað handa sauðaklippurum mínum, og gefa það mönnum, sem eg ekki einu sinni veit hvaðan eru?

Þá sneru sveinar Davíðs á leið og hurfu aftur og komu Og fluttu honum öll þessi orð.

Þá mælti Davíð til sinna manna: Gyrðið yður nú, hver sínu sverði! Og þeir gyrtu sig, hver sínu sverði. Síðan girtist og Davíð sínu sverði, og lögðu þeir nú af stað undir forystu Davíðs, um fjögur hundruð manns; en tvö hundruð urðu eftir hjá farangrinum.

En einn af sveinunum sagði Abígail, konu Nabals, frá þessu og Mælti: Sjá, Davíð gjörði sendimenn úr eyðimörkinni með kveðju til húsbónda vors, en hann jós yfir þá fáryrðum.

Og menn þessir hafa þó Verið mjög góðir við oss; oss hefir ekkert mein verið gjört og oss hefir einkis vant orðið allan þann tíma, er vér héldum oss nálægt þeim, Meðan vér vorum Í haganum.

Þeir voru sem varnargarður í kring im oss bæði um nætur og daga allan þann tíma, er vér héldum fénu il haga nálægt þeim.

Hygg nú að og sjá til, hvað þú skalt gjöra, því að ógæfa er búin húsbónda vorum og öllu húsi hans, en hann er Slíkt hrakmenni, að ekki má við hann mæla.

Þá brá Abígail við og tók tvö hundruð brauð og tvo vínlegla, fimm tilreidda sauði og fimm mæla af bökuðu korni, hundrað rúsínukökur og tvö hundruð fíkjukökur og klyfjaði með asna

og sagði við sveina sína: Farið á undan mér; sjá, eg kem á eftir yður. En Nabal manni sínum sagði hún ekki frá þessu.

Og er hún kom ríðandi á asna ofan fjallið í hvarfi, sjá, þá kom Davíð með menn sína ofan í móti henni, og hún rakst þar á þá.

En Davíð hafði sagt: Já, til einkis hefi eg varðveitt alt, sem sá maður átti á eyðimörkinni, svo að einkis varð vant af öllu, sem hann átti; hann hefir launað mér gott með illu.

Guð láti Davíð gjalda þess nú og síðar, ef eg læt eftir verða einn karlmann af öllu því, sem hann á, þegar birtir á morgun.

En er Abígail sá Davíð, sté hún sem skjótast niður af asnanum og féll fram á ásjónu sína fyrir Davíð og laut til jarðar.

Og hún féll honum til fóta og mælti: Sökin hvílir á mér, herra minn! Leyf ambátt þinni að tala við þig og hlýð á orð ambáttar þinnar.

Skeyt eigi, herra minn, hrakmenni þetta, hann Nabal, því að hann ber nafn með réttu; heimskingi heitir hann og heimskur er hann; en eg, ambátt þín, hefi ekki séð sveinana, er þú, herra minn, sendir.

Og nú, herra minn, svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem þú lifir og Drottinn hefir aftrað þér frá að úthella blóði og hefna þín sjálfur, þá verði nú óvinir þínir sem Nabal og allir þeir, sem sitja um að gjöra þér ilt, herra!

Og gjöf þessa, sem þerna þín hefir fært þér, herra minn, — lát nú gefa hana sveinunum, sem eru í fylgd með þér, herra minn!

Fyrirgef afbrot ambáttar þinnar, því að veita mun Drottinn herra mínum staðfast hús, af því að herra minn heyir bardaga Drottins, og ilt mun ekki finnast í fari þínu meðan þú lifir.

Og rísi einhver maður upp, til þess að ofsækja þig og sitja um líf þitt, þá sé líf herra míns bundið í bundini lifandi manna hjá Drottni, Guði þínum, en lífi óvina þinna þeyti hann burt úr slöngunni.

Og þegar Drottinn veitir þér, herra minn, öll þau gæði, er hann hefir þér heitið, og hefir skipað þig höfðingja yfir Ísrael,

þá mun það ekki verða þér til ásteytingar né herra mínum að samvizkubiti, að herra minn hafi út helt blóði að orsakalausu og hefnt sín sjálfur. En þegar Drottinn gjörir vel við þig, herra minn, þá minstu ambáttar þinnar.

Þá mælti Davíð til Abígail: Lofaður veri Drottins, Ísraels Guð, sem sendi þig í dag á minn fund.

Og blessuð séu hyggindi þín og blessuð sért þú sjálf, sem aftrað hefir mér í dag frá að baka mér blóðskuld og að hefna mín sjálfur.

En svo sannarlega sem Drottinn, Ísraels Guð, lifir, sem varðveitt hefir mig frá að gjöra þér ilt: hefðir þú eigi hraðað þér svo á minn fund, þá myndi eigi nokkur af mönnum Nabals hafa beðið morguns ódrepinn.

Og Davíð tók við því af henni, sem hún færði honum, og sagði við hana: Far þú í friði heim til þín; sjá, eg hefi hlýtt á mál þitt og veitt þér bæn þína.

En er Abígail kom til Nabals, þá hafði hann veizlu í húsi sínu, sem konungsveizla væri. Var Nabal hinn kátasti og drukkinn mjög. Sagði hún honum ekkert, hvorki smátt né stórt, fyr en birti morguninn eftir.

En um morguninn, þá er víman var runnin af Nabal, sagði kona hans honum öll þessi tíðindi. Þá dó hjartað í brjósti honum og hann varð sem steinn.

Og að eitthvað tíu dögum liðnum laust Drottinn Nabal, svo að hann dó.

Og er Davíð frétti, að Nabal væri dáinn, mælti hann: Lofaður sé Drottinn, sem hefnt hefir svívirðu minnar á Nabal og haldið hefir þjóni sínum frá illu; en ilsku Nabals hefir Drottinn látið honum sjálfum í koll koma. Sendi þá Davíð menn til Abígail þess erindis, að hann vill fá hennar sér til eiginkonu.

Og þjónar Davíðs komu til Abígail á Karmel og mæltu svo til hennar: Davíð hefir sent oss á þinn fund þess erindis, að hann vill fá þín sér til eiginkonu.

Þá stóð hún upp og beygði andlit sitt til jarðar og mælti: Sjá, ambátt þín er þess albúin, að gjörast þerna, til þess að þvo fætur þjóna herra míns.

Síðan bjó Abígail sig í skyndi og steig á bak asna sínum, svo og meyjar hennar fimm, þær er með henn fóru; og hún fór með sendimönnum Davíðs og varð kona hans.

En Ahínóam hafði Davíð fengið frá Jesreel, og báðar urðu þær konur hans.

En Sál hafði gefið Míkal dóttur sína, konu Davíðs, Paltí Laíssyni frá Gallím.