Gamla testamentiðSaga
Og Davíð kom til Nób, til Ahímeleks prests; en Ahímelek gekk skelkaður í móti Davíð og mælti til hans: Hví ert þú einsamall og enginn maður með þér?
Og Davíð svaraði Ahíinelek presti: Konungur fól mér erindi nokkurt og sagði við mig: Enginn maður má vita neitt um erindi það, er eg sendi þig í og eg hefi falið þér; fyrir því hefi eg stefnt sveinunum á vissan stað.
Og ef þú hefir nú fimm brauð hjá þér, þá gef mér þau eða hvað sem fyrir hendi er.
Prestur svaraði Davíð og sagði: Eg hefi ekkert óheilagt brauð hjá mér, en heilagt brauð er til, aðeins að sveinarnir hafi haldið sér frá konum.
Davíð svaraði presti og mælti til hans: Já, vissulegaKvenna hefir oss verið varnað undanfarið; þegar eg fór að heiman. voru ítál sveinanna heilög; og að vísu er þetta ferðalag óheilagt, en nú verða þeir heilagir fyrir ílátin.
Þá gaf prestur honum heilagt brauð; því að þar var ekkert brauð, nema skoðunarbrauðin, sem tekin er burt frá augliti Drottins, en volg brauð lögð í stað þeirra, þá er þau er! tekin.
En þar var þennan dag einn af þjónum Sáls, inni byrgður fyrir augliti Drottins; hann hét Dóeg og var Edómíti og yfirmaður hirða Sáls.
Og Davíð sagði við Ahímelek: Hefir þú ekki spjót eða sverð hér hjá þér? því að eg tók hvorki sverð mitt né vopn mín með mér; því að svo bar bráðan að um konungs erindi.
Þá sagði prestur: Hér er sverð Golíats Filista, sem þú lagðir að velli í Eikídal, sveipað dúk á bak við hökullíkneskið; ef þú vilt hafa það, þá tak það, því að hér er ekkert annað en það. Og Davíð sagði: Það er sverða bezt; fá mér það.
Síðan tók Davíð sig upp og flýði þennan sama dag fyrir Sál, og kom til Akís konungs í Gat.
Og þjónar Akís sögðu við hann: Er þetta ekki Davíð, konungur landsins? Var það ekki um hann, að sungið var við dansinn: Sál feldi sín þúsund og Davíð sín tíþúsund?
Og Davíð festi þessi orð í huga og var mjög hræddur við Akís konung í Gat.
Fyrir því gjörði hann sér upp vitfirringu fyrir augum þeirra og lét sem óður maður innan um þá, sló á vængjahurðir hliðsins sem á bumbu og lét slefuna renna ofan í skeggið.
Þá sagði Akís við þjóna sína: Þér sjáið að maðurinn er vitstola; hví komið þér með hann til mín?
Hefi eg ekki nóg af vitfirringum, úr því að þér hafið komið með þennan til að ærast frammi fyrir mér? Hvað á hann að gjöra í mitt hús?