Gamla testamentiðSaga
Og Sál talaði við Jónatan son sinn og við alla þjóna sína um að drepa Davíð. En Jónatan, sonur Sáls, hafði miklar mætur á Davíð.
Fyrir því sagði Jónatan Davíð frá þessu og mælti: Sál faðir minn situr um að drepa þig; ver því var um þig á morgun snemma og fel þig og ver þú kyrr í því leyni.
En eg ætla sjálfur að fara út og nema staðar við hlið föður míns á grundinni, þar sem þú ert, og eg ætla að tala um þig við föður minn; og ef eg verð nokkurs vísari, mun eg segja þér það.
Og Jónatan talaði vel um Davíð við Sál föður sinn og sagði við hann: Syndgast þú ekki, konungur, á Davíð þjóni þínum, því að hann hefir ekki syndgað á móti þér og verk hans hafa verið þér mjög gagnleg;
hann lagði líf sitt í hættu og feldi Filistann, og þannig veitti Drottinn öllum Ísrael mikinn sigur. Þú sást það og gladdist; og hvers vegna vilt þú syndgast á saklausu blóði, með því að deyða Davíð án saka?
Og Sál skipaðist við orð Jónatans og Sál sór: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, þá skal hann ekki verða drepinn.
Þá kallaði Jónatan á Davíð og Jónatan tjáði honum öll þessi orð. Síðan leiddi Jónatan Davíð til Sáls, og hann var hjá honum sem áður.
Og er ófriður hófst að nýju, fór Davíð og barðist við Filista og feldi mikinn fjölda af þeim, svo að þeir flýðu fyrir honum.
Þá kom illur andi frá Drottni yfir Sál; en hann sat í húsi sínu og hafði spjót í hendi sér, og Davíð lék hörpuna með hendi sinni.
’á reyndi Sál að reka Davíð í gegn með spjótinu upp við vegginn; en hann skaut sér undan Sál, svo að hann rak spjótið inn í vegginn. En Davíð ílj’ði og komst undan.
Og hina sömu nótt sendi Sál sendimenn í hús Davíðs, til þess að hafa gætur á honum, svo að hann fengi drepið hann um morguninn. En Míkal, kona hans, sagði Davíð frá og mælti: Ef þú forðar ekki lífi þínu í nótt, þá verður þú drepinn á morgun.
Þá lét Míkal Davíð síga niður út um gluggann; og hann fór og ílýði og komst undan.
Síðan tók Míkal húsgoðið og lagði í rúmið, og hún lagði blæju úr geitarhári yfir höfðalagið og breiddi ábreiðu yfir.
Og þegar Sál sendi menn til þess að sækja Davíð, þá sagði hún: Hann er sjúkur.
Þá sendi Sál mennina aftur, til að vitja um Davíð og sagði: Færið mér hann í rúminu, til þess að eg geti drepið hann.
En er sendimennirnir komu, sjá, þá lá húsgoðið í rúminu og geitarhárs-blæjan yfir höfðalaginu.
Þá sagði Sál við Míkal: Hví hefir þú svikið mig svo og látið óvin minn í burt fara, svo að hann hefir komist undan. En Míkal sagði við Sál: Hann sagði við mig: Lát mig komast burt, ella mun eg drepa þig!
Og Davíð flýði og komst undan og kom til Samúels í Rama og sagði honum frá öllu, sem Sál hafði gjört honum; og hann fór með Samúel og þeir bjuggu í Najót.
Nú var Sál sagt svo frá: Sjá, Davíð er í Najót í Rama!
Sendi Sál þá menn til að sækja Davíð. En er þeir sáu hóp spámanna, sem voru í spámannlegum guðmóði, og Samúel standa þar sem foringja þeirra, þá kom Guðs andi yfir sendimenn Sáls, svo að þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.
Og menn sögðu Sál frá þessu, og hann sendi aðra menn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð. Þá sendi Sál enn menn hið þriðja sinn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.
Þá fór hann sjálfur til Rama. Og er hann kom að brunninum á þreskivellinum, sem liggur uppi á skóglausu hæðinni, þá spurði hann og mælti: Hvar eru þeir Samúel og Davíð? Og menn sögðu: Þeir eru í Najót í Rama,
En er hann fór þaðan til Najót í Rama, þá kom og Guðs andi yfir hann og var hann stöðugt í spámannlegum guðmóði, þar til er hann kom til Najót í Rama.
Þá for hann og af klæðum sínum, og hann var og í spámannlegum guðmóði frammi fyrir Samúel og lá þar nakinn allan þennan dag og alla nóttina. Fyrir því segja menn: Er og Sál meðal spámannanna?