Fyrri Samúelsbók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Samúelsbók 13

Sál var …… ára gamall, þá er hann varð konungur, og ríkti …… ár yfir Ísrael.

Sál valdi sér þrjú þúsund manns af Ísrael; af þeim voru tvö þúsund hjá Sál í Mikmas og á Betel-fjöllum, en eitt þúsund hjá Jónatan í Gíbeu í Benjamín; hitt liðið lét hann brott fara, hvern heim til sín.

Og Jónatan braut niður súlu Filista, sem var í Geba og Filistar fréttu það. Og Sál lét þeyta lúður um alt landið og sagði: Hebrear skulu heyra það.

Og allur Ísrael heyrði sagt: Sál hefir brotið niður súlu Filista, og Filistum er orðið illa við Ísrael. Og liðinu var stefnt saman, til þess að fara með Sál til Gilgal.

Og Filistar söfnuðust saman til að berjast við Ísrael, þrjú þúsund vagnar og sex þúsund riddarar og fótgöngulið svo margt sem sandur á sjávarströndu, og þeir lögðu af stað og settu herbúðir sínar í Mikmas, fyrir austan Betaven.

Og er Ísraelsmenn sáu, að þeir voru komnir í kreppu, því að að þeim þrengdi, þá fal liðið sig í hellum, jarðholum, klettaskorum, gjótum og gryfjum,

og þeir fóru yfir vöðin á Jórdan yfir í Gaðs land og Gíleaðs. En Sál var enn í Gilgal; en alt liðið hafði flúið burt frá honum fyrir hræðslu sakir.

Og hann beið í sjö daga, til þess tíma, er Samúel hafði til tekið; en Samúel kom ekki til Gilgal, og fólkið dreifðist burt frá honum.

Þá sagði Sál: Færið mér hingað brennifórnina og heillafórnirnar. Og hann fórnaði brennifórninni.

En er hann hafði fórnað brennifórninni, sjá, þá kom Samúel. Og Sál gekk út á móti honum, til þess að heilsa honum.

Og Samúel mælti: Hvað hefir þú gjört? Sál svaraði: Þegar eg sá, að liðið dreifðist burt frá mér og að þú komst ekki á tilteknum tíma, en Filistar söfnuðust saman í Mikmas,

þá hugsaði eg: Nú munu Filistar fara ofan á móti mér til Gilgal, áður en eg hefi blíðkað Drottinn; fyrir því herti eg upp hugann og fórnaði brennifórninni.

Þá sagði Samúel við Sál: Heimskulega hefir þér farið; þú hefir ekki gætt skipunar Drottins, Guðs þíns, sem hann fyrir þig lagði; því að nú hefði Drottinn staðfest konungdóm þinn yfir Ísrael að eilífu.

En nú mun konungdómur þinn ekki standa. Drottinn hefir leitað sér að manni eftir sínu hjarta og hann hefir Drottinn skipað höfðingja yfir lýð sinn; því að þú hefir ekki gætt þess, er Drottinn fyrir þig lagði.

Þá tók Samúel sig upp og fór frá Gilgal og hélt leiðar sinnar: En leifarnar af liðinu fóru á eftir Sál í móti herliðinu. Og er þeir voru komnir frá Gilgal til Gíbeu í Benjamín, þá kannaði Sál liðið, sem hjá honum var, um sex hundruð manns.

Sál og Jónatan sonur hans og liðið, sem með þeim var, sátu í Geba í Benjamín, en Filistar höfðu sett herbúðir sínar í Mikmas.

Og ránssveit fór út úr herbúðum Filista í þrem hópum; einn hópurinn stefndi veginn til Ofra inn í Sjúal-land,

annar hópurinn stefndi veginn til Bet-Hóron og þriðji hópurinn stefndi veginn til hæðarinnar, sem gnæfir yfir Zebóim-dalinn gegn eyðimörkinni.

En enginn járnsmiður var til í öllu Ísraelslandi — því að Filistar hugsuðu: ella kynnu Hebrear að smíða sverð eða spjót —

heldur urðu allir menn í Ísrael að fara ofan til Filista, ef þeir vildu láta hvessa plógjárn sín, gref, axir og brodda,

þegar skörð komu í eggjar á plógjárnum, grefum, þríforkum og öxum, og til þess að rétta broddinn.

Þannig hafði gjörvalt liðið, sem var með Sál og Jónatan, hvorki sverð né spjót í höndum orustudaginn; en Sál og Jónatan sonur hans höfðu það.

En varðflokkur Filista fór og settist í skarðið hjá Mikmas.