Gamla testamentiðSaga
Synir Júda voru: Perez, Hezron, Karmí, Húr og Sóbal.
En Reaja, sonur Sóbals, gat Jahat, Jahat gat Ahúmaí og Lahad. Þetta eru ættir Zóreatíta.
Og þessir voru synir Etams: Jesreel, Jisma, Jídbas, en systir þeirra hét Hazelelpóní.
Enn fremur Penúel, faðir Gedórs, og Eser, faðir Húsa. Þetta eru synir Húrs, frumburðar Efrata, föður að Betlehem.
En Ashúr, faðir að Tekóa, átti tvær konur, Heleu og Naeru.
Og Naera ól honum Ahússam, Hefer, Temní og Ahastarita. Þetta eru synir Naeru.
Og synir Heleu voru: Zeret, Jízehar og Etnam.
En Kóz gat Anúb, Zóbeba og ættir Aharhels, sonar Harúms.
En Jaebez var fyrir bræðrum sínum, og móðir hans nefndi hann Jaebez og mælti: Eg hefi alið hann með harmkvælum.
Og Jaebez ákallaði Guð Ísraels og mælti: Ef þú blessar mig og eykur landi við mig og ef hönd þín er með mér, og ef þú bægir ógæfunni frá mér, svo að engin harmkvæli komi yfir mig..... Og Guð veitti honum það, sem hann bað um.
En Kelúb, bróðir Súha, gat Mehír; hann er faðir Estóns.
En Estón gat Bet-Rafa, Pasea og Tehinna, föður að borg Nahasar; þetta eru Reka-menn.
Og synir Kenas voru: Otníel og Seraja, og synir Otníels: Hatat.
En Meonotai gat Ofra, og Seraja gat Jóab, föður að Smiðadal, því að þeir voru smiðir.
En synir Kalebs Jefúnnesonar voru: trú, Ela og Naam, og synir Eta.... og Kenas.
Og synir Jehalelels voru: Síf, Sífa, Tirja og Asareel.
Og synir Esra: Jeter, Mered, Efer og Jalon. Og þessir eru synir Bitju, dóttur Faraós, er gekk að eiga Mered: hún ól Mirjam, Sammaí og Jísba, föður Estemóa.
En kona hans, er var Gyðingaættar, ól Jered, föður að Gedór, og Heber, föður að Sókó, og Jekútíel, föður að Sanóa.
Og synir konu Hódía, systur Nahams, voru: faðir Kegilu, Garmita, Estemóa og Maakatíta.
Og synir Símons voru: Amnon, Rinna, Ben-Hanan og Tílon, og synir Jísei: Sóhet og sonur Sóhets.
Synir Sela, sonar Júda, voru: Ger, faðir Leka, Laeda, faðir Maresa, og ættir baðmullarverkmannanna frá Bet-Asbea,
enn fremur Jókim og mennirnir frá Kóseba, Jóas og Saraf, er unnu Móab og Jasúbí-Lehem. Þetta eru fornar sögur.
Þeir voru leirkerasmiðir og hygðu Netaím og Gedera; hjá konungi, við þjónustu hans, þar bjuggu þeir. Kynkvísl Símeons.
Synir Símeons voru: Nemúel, Jamín, Jaríb, Sera, Sál;
hans sonur var Sallúm, hans son Mibsam, hans son Misma.
Og synir Misma voru: Hammúel, sonur hans, hans son Sakkúr, hans son Simei.
En Símei átti sextán sonu og sex dætur, en bræður hans áttu eigi margt barna, og ætt þeirra varð eigi svo fjölmenn sem Júdamenn.
En þeir bjuggu í Beerseba, Mólada, Hazar-Súal,
Bílha, Ezem, Tólad,
Betúel, Harma, Ziklag,
Rel-Markabót, Hazar-Súsim, RetRíreí og Saaraím. Þetta voru borgir þeirra, þangað til Davíð tók ríki.
Og þorp þeirra voru: Etam, Ain, Rimmon, Tóken og Asan — fimm borgir,
og auk þess öll þau þorp, er lágu kring um borgir þessar, alt til Baal. Þetta voru bústaðir þeirra, og höfðu þeir ættartal fyrir sig.
Enn fremur: Mesóbab, Jamlek, Jósa, sonur Amazja,
Jóel, Jehú, sonur Jósíbja, Serajasonar, Asíelssonar,
og Eljóenaí, Jaakoba, Jesóhaja, Asaja, Adíel, Jesímíel og Renajá,
Sísa, sonur Sifei, Allonssonar, Jedajasonar, Simrísonar, Semajasonar.
Þessir, sem hér eru nafngreindir, voru höfðingjar í ættum sínum, og hafa ættir þeirra orðið mjög fjölmennar.
Og þeir fóru þaðan, er leið liggur til Gedór, alt þar til kemur austur fyrir dalinn, til þess að leita haglendis fyrir sauði sína.
Og þeir fundu feitt og gott haglendi, og landrými var þar mikið, og rólegt var þar og friðsamlegt, því að þeir, er áður höfðu bygt þar, voru komnir af Kam.
Þá komu þeir, sem hér eru nafngreindir, á dögum Hiskía Júda-konungs, eyddu tjöldum þeirra og drápu Meúníta, sem þar voru, og gjöreyddu þeim alt fram á þennan dag og hjuggu þar eftir þá, því að þar var haglendi fyrir sauði þeirra.
Og af þeim Símeonsniðjum fóru fimm hundruð manns til Seír-fjalla, og voru þeir Pelatja, Nearja, Refaja og Ússíel, synir Jíseí, fyrir þeim.
Drápu þeir hinar síðustu leifar Amalekíta, og bjuggu þar alt fram á þennan dag.