Gamla testamentiðSaga
Og Davíð konungur mælti til alls safnaðarins: Salómó sonur minn, hinn eini, er Guð hefir kjörið, er ungur og óreyndur, en starfið er mikið, Því að eigi er musteri þetta manni ætlað, heldur Drottni Guði.
Eg hefi af öllum mætti dregið að fyrir musteri Guðs míns, gull í gulláhöldin, silfur í silfuráhöldin, eir í eiráhöldin, járn í járnáhöldin og tré í tré-áhöldin, sjóamsteina og steina til að greipa inn, gljásteina og mislita steina, alls konar dýra steina og afarmikið af alabastursteinum.
Enn fremur vil eg, sakir þess að eg hefi mætur á musteri Guðs míns, gefa það, er eg á af gulli og silfri, til musteris Guðs míns, auk alls þess, er eg hefi dregið að fyrir helgidóminn:
þrjú þúsund talentur af gulli og það af Ófírgulli, sjö þúsund talentur af skíru silfri, til þess að klæða með veggina í herbergjunum,
og til þess að útvega gull í gulláhöldin og silfur í silfuráhöldin, og til alls konar listasmíða. Hver er nú fús til þess að færa Drottni riflega fórnargjöf í dag?
Þá kváðust ætthöfðingjarnir, höfðingjar kynkvísla Ísraels, þúsundhöfðingjarnir og hundraðshöfðingjarnir og ráðsmennirnir yfir störfum í konungsþjónustu vera fúsir til þess,
og þeir gáfu til Guðs húss fimm þúsund talentur gulls, tíu þúsund Daríus-dali, tíu þúsund talentur silfurs, átján þúsund talentur eirs og hundrað þúsund talentur járns.
SOg hver sá, er átti gimsteina, gaf þá í féhirzlu húss Drottins, er Jehíel Gersoníli hafði umsjón yfir.
Þá gladdist lýðurinn yfir örlæti þeirra, því að þeir höfðu af heilum hug fært Drottni sjálfvilja-gjafir, og Davíð konungur gladdist einnig stórum.
Þá lofaði Davíð Drottins, að öllum söfnuðinum ásjáanda, og Davíð mælti: Lofaður sért þú, Drottinn, Guð Ísraels, forföður vors, frá eilífð til eilífðar.
Þín, Drottinn, er tignin, mátturinn og dýrðin, vegsemdin og hátignin, því að alt er þitt, á himni og jörðu. Þinn er konungdómurinn, Drottinn, og sá, er gnæfir yfir alla sem höfðingi.
Auðlegðin og heiðurinn koma frá þér, þú drotnar yfir öllu; máttur og megin er Í hendi þinni, og á þínu valdi er það, að gjöra hvern sem vera skal mikinn og mátkan.
Og-nú, Guð vor, vér lofum þig og tignum þitt dýrlega nafn.
Því að hvað er eg, og hvað er lýður minn, að vér skulum vera færir um að gefa svo mikið sjálfviljuglega? Nei, frá þér er alt, og af þínu höfum vér fært þér gjöf.
Því að vér erum aðkomandi og útlendingar fyrir þér, eins og allir feður vorir; sem skuggi eru dagar vorir á jörðunni og engin er vonin.
Drottinn, Guð vor, öll Þessi auðæfi, er vér höfum dregið að, til þess að reisa þér — þínu heilaga nafni — hús, frá þér eru þau og alt er það þitt.
Og eg veit, Guð minn, að þú rannsakar hjartað og hefir þóknun á hreinskilni. Eg hefi með hreinum hug og sjálfviljuglega gefið alt þetta, og eg hefi með gleði horft á, hversu lýður þinn, sem hér er, færir þér sjálfvilja-gjafir.
Drottinn, Guð feðra vorra, Abrahams, Ísaks og Jakobs, varðveit þú slíkar hugrenningar í hjarta lýðs þíns að eilífu, og bein hjörtum þeirra til þín.
En gef þú Salómó syni mínum einlægt hjarta, að hann megi varðveita boðorð þín, vitnisburði og fyrirskipanir, og að hann megi gjöra alt þetta og reisa musterið, er eg hefi dregið að föng til.
Síðan mælti Davíð til alls safnaðarins: Lofið Drottin, Guð yðar! Lofaði þá allur söfnuðurinn Drottins, Guðs feðra sinna, hneigðu sig og lutu Drottni og konungi.
Og næsta morgun færðu þeir Drottni sláturfórn og færðu Drottni í brennifórn: þúsund naut, þúsund hrúta og þúsund lömb, og drykkjarfórnir, er við áttu, svo og sláturfórnir í ríkum mæli fyrir allan Ísrael.
Átu þeir svo og drukku frammi fyrir Drottni þann dag, í miklum fagnaði, og tóku Salómó, son Davíðs, öðru sinni til konungs og smurðu hann þjóðhöfðingja Drottins tl handa, en Zadók til prests.
Sat Salómó þannig sem konungur Drottins í hásæti í stað Davíðs föður síns og var auðnumaður, og allir Ísraelsmenn hlýddu honum.
Og allir höfðingjarnir og kapparnir, svo og allir synir Davíðs konungs, hyttu Salómó konung.
Og Drottinn gjörði Salómó mjög vegsamlegan í augum allra Ísraelsmanna og veitti honum tignarmikinn konungdóm, svo að enginn konungur í Ísrael hafði slíkan haft á undan honum. Andlát Davíðs. Heimildir fyrir sögu hans.
Davíð Ísaíson ríkti yfir öllum Ísrael.
En sá tími, er hann ríkti yfir Ísrael, var fjörutíu ár. Í Hebron ríkti hann sjö ár, en í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú.
Dó hann í góðri elli, saddur lífdaga, auðæfa og sæmdar, og tók Salómó sonur hans ríki eftir hann.
En saga Davíðs konungs frá upphafi til enda er skráð í sögu Samúels sjáanda, svo og í sögu Natans spámanns og í sögu Gaðs sjáanda.
Þar er og sagt frá öllum konungdómi hans og hreystiverkum, svo og atburðum þeim, er fyrir hann komu og fyrir Ísrael og öll ríki landanna.