Gamla testamentiðSaga
Að því er snertir hliðvarðaflokkana, þá voru þar af Kóraílum: Meselemja Kóreson af Asafsniðjum.
En synir Meselemja voru: Sakaría, frumgetningurinn, annar Jedíael, þriðji Sebadja, fjórði Jatníel,
fimti Elam, sjötti Jóhanan, sjöundi Elíóenaí.
Synir Óbeð-Edóms voru: Semaja, frumgetningurinn, annar Jósabad, þriðji Jóa, fjórði Sakar, fimti Netaneel,
sjötti Ammiíel, sjöundi Íssakar, áttundi Pegúlletai, því að Guð hafði blessað hann.
En Semaja, syni hans, fæddust og synir, er réðu í ættum sínum, því að þeir voru hinir röskustu menn.
Synir Semaja voru: Otní, Refael, Óbeð og Elsabat; bræður þeirra voru Elíhú og Semakja, dugandi menn.
Allir þessir voru af niðjum Óbeð-Edóms, þeir og synir þeirra og bræður, dugandi menn, vel hæfir til þjónustunnar, sextíu og tveir alls frá Óbeð-Edóm.
Meselemja átti og sonu og bræður, dugandi menn, átján alls.
Og synir Hósa, er var af Meraríniðjum, voru: Simrí höfðingi; þótt eigi væri hann frumgetningurinn, þá gjörði faðir hans hann að höfðingja;
annar Hilkía, þriðji Tebalja, fjórði Sakaría. Synir og bræður Hósa voru þrettán alls.
Þessum hliðvarðaflokkum eftir ætthöfðingjum hlotnaðist starf við þjónustuna í húsi Drottins, þeim sem frændum þeirra.
Og menn vörpuðu hlutkesti um hvert hlið fyrir sig, eftir ættum, yngri sem eldri.
Fyrir hliðið gegnt austri féll hluturinn á Selemja. Menn vörpuðu og hlutkesti fyrir Sakaría son hans, hygginn ráðgjafa, og féll hans hlutur á hliðið gegnt norðri,
fyrir Óbeð-Edóm gegnt suðri, og fyrir son hans á geymsluhúsið,
fyrir Súppím og Hósa gegnt vestri við Saltekethliðið, við götuna, sem liggur upp eftir, hver varðstöðin við aðra.
Við hliðið gegnt austri voru sex Levítar, gegnt norðri fjórir dag hvern, gegnt suðri fjórir dag hvern, og við geymsluhúsið tveir og tveir;
við Parbar gegnt vestri: fjórir fyrir götuna, tveir fyrir Parbar.
Þessir eru hliðvarðaflokkarnir af. Kóraítaniðjum og af Meraríniðjum.
Og Levítar frændur þeirra höfðu umsjón með fjársjóðum Guðs húss og með helgigjafafjársjóðunum.
Niðjar Laedans, niðjar Gersonita, Laedans, ætthöfðingjar Laedansættar Gersonita, Jehíelítar,
niðjar Jehielita, Setam og Jóel bróðir hans, höfðu umsjón með fjársjóðum í húsi Drottins.
Að því er snertir Amramíta, Jízeharíla, Hebroníta og Ússíelíta,
þá var Sebúel Gersómsson, Mósesonar, yfirumsjónarmaður yfir fjársjóðunum.
Og að því er snertir frændur þeirra frá Elíeser, þá var Rehabja sonur hans, hans son Jesaja, hans son Jóram, hans son Síkri, hans son Selómit.
Höfðu þeir Selómíl þessi og bræður hans umsjón með öllum helgigjafafjársjóðunum, þeim er Davíð konungur og ætthöfðingjarnir, þúsundhöfðingjarnir og hundraðshöfðingjarnir og herforingjarnir höfðu helgað —
úr ófriði og af herfangi höfðu þeir helgað það, til þess að endurbæta með musteri Drottins,
og alt, er Samúel sjáandi, Sál Kísson, Abner Nersson og Jóab Zerújuson höfðu helgað, alt hið helgaða, var undir umsjón Selómíís og bræðra hans.
Af Jízeharítum höfðu þeir Kenanja og synir hans á hendi hin veraldlegu störf í Ísrael, sem embættismenn og dómarar.
AfHebronítum höfðu þeir Hasabja og frændur hans, dugandi menn, seytján hundruð alls, á hendi stjórnarstörf Ísraels hérnamegin Jórdanar, að vestanverðu; stóðu þeir fyrir öllum störfum Drottins og þjónustu konungs.
Til Hebroníta taldist Jería, höfðingi Helironíta eftir kyni þeirra og ættum — voru þeir kannaðir á fertugasta ríkisári Davíðs, og fundust meðal þeirra hinir röskustu menn í Jaeser í Gíleað —
og frændur hans, röskir menn, tvö þúsund og sjö hundruð ætthöfðingjar alls; setti Davíð konungur þá yfir Rúbensniðja, Gaðsniðja og hálfa kynkvísl Manasseniðja, að því er snertir öll erindi Guðs og erindi konungsins. Her Davíðs og embættismenn.