Gamla testamentiðSaga
Nú héldu þeir kyrru fyrir í þrjú ár, og var enginn ófriður milli Sýrlands og Ísraels.
En á þriðja ári fór Jósafat konungur í Júda á fund ísraels-konungs.
Og Ísraels-konungur sagði við þjóna sína: Vita munuð þér, að vér eigum Ramót í Gíleað, en vér hafumst eigi að og tökum hana ekki frá Sýrlands-konungi.
Þá mælti hann við Jósafat: Hvort munt þú fara með mér í hernað til Ramót Í Gíleað? En Jósafat sagði við Ísraels-konung: Eitt skal yfir báða ganga, mig og þig, mína þjóð og þína þjóð, mína hesta og þína hesta.
Jósafat sagði við Ísraels-konung: Gakk þú fyrst til frétta og vit hvað Drottinn segir.
Þá stefndi Ísraels-konungur saman spámönnunum, um fjögur hundruð manns, og sagði við þá: Á eg að fara og herja á Ramót í Gíleað, eða á eg að hætta við það? Þeir svöruðu: Far þú, og Drottinn mun gefa hana í hendur konungi.
En Jósafat mælti: Er hér ekki enn einhver spámaður Drottins, að vér mættum leita frétta hjá honum?
SÍsraels-konungur mælti til Jósafats: Enn er einn eftir, er vér gætum látið ganga til frétta við Drottin; en mér er lítið um hann gefið, því að hann spáir mér aldrei góðu, heldur illu einu; hann heitir Míka Jimlason. En Jósafat sagði: Eigi skyldi konungur svo mæla.
Þá kallaði Ísraels-konungur einn af hirðmönnunum og mælti: Sæk sem skjótast Míka Jimlason.
En Ísraels-konungur og Jósafat Júda-konungur sátu hvor í sínu hásæti skrýddir purpuraklæðum úð fyrir borgarhliði Samaríu og allir spámennirnir spáðu frammi fyrir þeim.
Þá gjörði Zedekia Kenaanason sér horn úr járni og mælti! Svo segir Drottinn: Með þessum munt þú reka Sýrlendinga undir, UnZ þú hefir gjöreytt þeim.
Og allir spámennirnir spáðu á sömu leið og sögðu: Far þú til Ramót í Gíleað; þú munt giftudrjúgur verða, og Drottni mun gefa hana í hendur konungi.
En sendimaðurinn, sem farinn var að sækja Míka, mælti til hans á þessa leið: Sjá, spámennirnir hafa einum munni boðað konungi hamingju; mæl þú sem þeir og boða þú hamingju.
En Míka svaraði: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, það sem Drottinn til mín talar, það mun eg mæla.
Og er hann kom til konungs, mælti konungur til hans: Míka, eigum vér að fara og herja á Ramót í Gíleað, eða eigum vér að hætta við það? Þá sagði hann við hann: Far þú; þú munt giftudrjúgur verða, og Drottni mun gefa hana í hendur konungi!
Þá sagði konungur við hann: Hversu oft á eg að særa þig um, að þú segir mér eigi annað en sannleikann í nafni Drottins?
Þá mælti hann: Eg sá allan Ísrael tvístrast um fjöllin, eins og hirðislausa sauði, og Drottins sagði: Þessir hafa engan herra; fari þeir í friði hver heim til sín.
Þá sagði Ísraels-konungur við Jósafat: Fer nú eigi sem eg sagði þér: hann spáir mér aldrei góðu, heldur illu einu?
Þá mælti hann: Eigi er svo! Heyr orð Drottins! Eg sá Drottinn sitja í hásæti sínu og allan himins her standa á tvær hendur honum.
Og Drottinn sagði: Hver vill ginna Akab til þess að fara til Ramót í Gíleað og falla þar? Og einn sagði þetta og annar hitt.
Þá gekk fram andi, staðnæmdist frammi fyrir Drottni og mælti: Eg skal ginna hann. Og Drottinn sagði við hann: Með hverju?
Hann mælti: Eg ætla að fara og verða lygiandi í munni allra spámanna hans. Þá mælti hann: Þú skalt ginna hann og þér mun takast það. Far og gjör svo!
Þannig hefir þá Drottinn lagt lygianda í munn öllum þessum spámönnum þínum, þar sem Drottinn hefir þó ákveðið að leiða yfir þig ógæfu.
Þá gekk að Zedekía Kenaanason, laust Míka kinnhest og mælti: Hvaða leið hefir andi Drottins farið frá mér til þess að tala við þig?
Þá mælti Míka: Það munt þú sjá á þeim degi, er þú fer í felur úr einu herberginu í annað.
Þá mælti Ísraels-konungur: Tak Míka og fær hann Amón borgarstjóra og Jóas konungssyni
og seg: Svo segir konungur: Kastið manni þessum í dýflissu og gefið honum brauð og vatn af skornum skamti, þar til er eg kem aftur heill á húfi.
Þá mælti Míka: Komir þú aftur heill á húfi, þá hefir Drottinn eigi talað fyrir minn munn. Og hann mælti: Heyri það allir lýðir!
Síðan fóru þeir Ísraels-konungur og Jósafat Júda-konungur til Ramót í Gíleað.
Og Ísraels-konungur sagði við Jósafat: Eg mun klæðast dularbúningi og ganga í orustuna, en þú skalt vera klæddur búningi þínum. Klæddist þá Ísraels-konungur dularbúningi og gekk í orustuna.
En Sýrlands-konungur hafði boðið foringjunum fyrir vagnliði sínu, sem voru þrjátíu og tveir, á þessa leið: Þér skuluð eigi berjast við neinn, hvorki smáan né stóran, nema Ísraels-konung einan.
Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu Jósafat, sögðu þeir: Þetta er vissulega Ísraels-konungurinn, og sneru í móti honum til þess að berjast við hann. Þá kallaði Jósafat hátt.
Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu, að það var ekki Ísraels-konungur, þá hættu þeir að elta hann.
En maður nokkur lagði ör á streng og skaut af handahófi, og kom á Ísraels-konung milli brynbeltis og panzara. Þá mælti hann við kerrusvein sinn: Snú þú við og kom mér burt úr bardaganum, því að eg er sár.
Var bardaginn hinn harðasti um daginn, og konungur stóð í vagninum andspænis Sýrlendingum alt til kvelds, og blóðið úr sárinu rann ofan í vagninn, og dó hann um kveldið.
En um sólsetur kvað svolátandi óp við um allan herinn: Hver fari heim til sinnar borgar og síns lands,
því að konungur er dauður. Og þeir komu til Samaríu og jörðuðu konung í Samaríu.
En er vagninn var þveginn við Samaríutjörn, þá sleiktu hundar blóðið og portkonur lauguðu sig í því, eftir orði Drottins, því er hann hafði talað.
En það sem meira er að segja um Akab og alt, sem hann gjörði, og um filabeinshúsið, sem hann reisti, og: allar borgirnar, sem hann bygði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.
Og Akab lagðist tl hvíldar hjá feðrum sínum, og Ahasja sonur hans tók ríki eftir hann. Frá Jósafat, konungi í Júda.
Og Jósafat, sonur Asa, varð konungur yfir Júda á fjórða ríkisári Akabs, konungs í Ísrael.
Og Jósafat var þrjátíu og fimm ára að aldri, þá er hann tók ríki, og tuttugu og fimm ár ríkti hann í Jerúsalem. En móðir hans hét Asúba Sílhídóttir.
Og hann fetaði að öllu í fótspor Asa föður síns og veik ekki frá þeim, með því að hann gjörði það sem rétt var í augum Drottins.
Þó voru hæðirnar ekki afnumdar; enn þá fórnaði lýðurinn sláturfórnum og reykelsisfórnum á hæðunum.
Jósafat hafði frið við Ísraels-konung.
En það sem meira er að segja um Jósafat og hreystiverk hans, þau er hann vann, og hvernig hann herjaði, það er ritað í árbókum Júda-konunga.
Hann eyddi og úr landinu leifum þeirra manna, er helgað höfðu sig saurlifnaði og eftir höfðu orðið á dögum Asa föður hans.
Þá var enginn konungur í Edóm; jarl nokkur var þar konungur.
Jósafat hafði gjöra látið Tarsis-skip, er fara skyldu til Ófír að sækja gull, en eigi varð af ferðinni, því að skipin brotnuðu við Ezjón-Geber.
Þá sagði Ahasja Akabsson við Jósafat: Lát mína meni fara með þínum mönnum á skipunum. En Jósafat vildi ekki.
Og Asa lagðist tl hvíldar hjá feðrum sínum og Var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs forföður síns. Og Jósafat Sonur hans tók ríki eftir hann. Frá Nadab, konungi í Ísrael.
Ahasja sonur Akabs varð konungur í Samaríu yfir Ísrael á seyt jánda ríkisári Jósafats, konungs í Júda, og hann ríkti yfir Ísrael tvo ár.
Og hann gjörði það sem ilt var í augum Drottins og fetaði í fótspor föður síns og móður og í fótspor Jeróbóams Nebatssonar, er komið hafði Ísrael til að syndga.
Og hann dýrkaði Baal og tilbað hann og egndi Drottinn, Ísraels Guð, til reiði, alveg eins og faðir hans hafði gjört.