Gamla testamentiðSaga
En orð Drottins kom til Jehú Hananísonar gegn Baesa, svolátandi:
Sakir þess að eg hefi hafið þig úr duftinu og gjört þig höfðingja yfir lýð mínum Ísrael, en þú fetar í fótspor Jeróbóams og kemur lýð mínum Ísrael til að syndga, svo að þeir egna mig til reiði með syndum sínum,
þá mun eg sópa burt Baesa og ætt hans, og fara með ætt þína eins og ætt Jeróbóams Nebatssonar.
Hvern þann, er deyr af Baesa innan borgar, munu hundar eta, og hvern þann, er deyr af honum úti á víðavangi, munu fuglar himins eta.
En það, sem meira er að segja um Baesa og það er hann gjörði og hreystiverk hans, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.
Og Baesa lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Tirza, og Ela sonur hans tók ríki eftir hann.
En fyrir munn Jehú spámanns Hananísonar kom dómsorð Drottins yfir Baesa og ætt hans, bæði vegna alls þess illa, er hann hafði aðhafst í augsýn Drottins, með því að egna hann til reiði með handaverkum sínum, svo að fyrir honum færi sem fyrir ætt Jeróbóams, og líka vegna þess, að hann hafði eytt henni.
Á tuttugasta og sjötta ríkisári Asa, konungs í Júda, varð Ela, sonur Baesa, konungur yfir Ísrael og ríkti hann tvö ár í Tirza.
En Simrí, þjónn hans, foringi fyrir helmingi vagnliðsins, hóf samsæri gegn honum. Og er hann drakk sig drukkinn í Tirza, í húsi Arza, dróttseta í Tirza,
þá kom þar Simrí og vann á honum og drap hann, á tuttugasta og sjöunda ríkisári Asa, konungs í Júda, og tók ríki eftir hann.
En er hann var konungur orðinn og seztur í hásæti, drap hann alla ættmenn Baesa — lét hann engan karlmann eftir verða af honum —, svo og vandamenn hans og vini.
Þannig gjöreyddi Simrí allri ætt Baesa, og rættist svo orð Drottins, sem hann hafði talað gegn Baesa fyrir munn Jehú spámanns,
sakir allra synda Baesa og synda Ela sonar hans, þeirra er þeir höfðu drýgt og komið Ísrael til að drýgja, að þeir egndu Drottinn, Guð Ísraels, til reiði með hinum fánýtu goðum sínum.
En það sem meira er að segja um Ela og alt sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.
Á tuttugasta og sjöunda ríkisári Asa, konungs í Júda, varð Simrí konungur og ríkti sjö daga í Tirza; en liðið sat þá um Gibbeton, sem Filistar áttu.
Og er liðið, sem lá í herbúðunum, frétti að Simrí hefði hafið samsæri og drepið konung, þá tók allur Ísrael Omrí, hershöfðingja í Ísrael, til konungs þann dag þar í herbúðunum.
Þá hélt Omrí og allur Ísrael með honum frá Gibbeton og settist um Tirza.
En er Símri sá að borgin var unnin, gekk hann inn í vígi konungshallarinnar og lagði eld í konungshöllina yfir höfði sér og beið svo bana,
sakir synda þeirra, er hann hafði drýgt, með því að gjöra það sem ilt var í augum Drottins, með því að feta í fótspor Jeróbóams og drýgja sömu syndirnar, sem hann hafði drýgt, með því að koma Ísrael til að syndga.
En það, sem meira er að segja um Simrí og samsærið, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.
Þá skiftist Ísraelslýður; fylgdi annar hluti lýðsins Tibní Gínatssyni og vildi gjöra hann að konungi, en hinn hlutinn fylgdi Omrí.
En þeir, sem Omrí fylgdu, urðu hinum yfirsterkari, þeim er fylgdu Tibní Gínatssyni. En er Tibní var dauður, varð Omrí konungur.
Á þrítugasta og fyrsta ríkisári Asa, konungs í Júda, varð Omrí konungur yfir Ísrael og ríkti tólf ár; sex ár ríkti hann í Tirza.
Hann keypti Samaríufjall af Semer fyrir tvær talentur silfurs og hann reisti bygð á fjallinu og kendi borgina, sem hann bygði, við Semer, er átt hafði fjallið, og nefndi Samaríu.
Og Omrí gjörði það sem ilt var í augum Drottins og hegðaði sér ver en allir þeir, sem verið höfðu á undan honum,
og fetaði að öllu leyti í fótspor Jeróbóams Nebatssonar og drýgði sömu syndirnar, sem hann hafði komið Ísrael til að drýgja, svo að þeir egndu Drottinn, Guð Ísraels, til reiði með hinum fánýtu goðum sínum.
En það, sem meira er að segja um Omrí og alt sem hann gjörði og hreystiverk hans, þau er hann vann, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.
Og Omrí lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Samaríu. Og Akab sonur hans tók ríki eftir hann.
Og Akab, sonur Omrí, varð konungur yfir Ísrael á þrítugasta og áttunda ríkisári Asa, konungs í Júda, og Akab, sonur Omrí, ríkti yfir Ísrael í Samaríu tuttugu og tvö ár.
Og Akab, sonur Omrí, gjörði það sem ilt var í augum Drottins, og hegðaði sér ver en allir þeir, sem verið höfðu á undan honum.
Og hann lét sér ekki nægja að drýgja sömu syndirnar og Jeróbóam Nebatsson, heldur gekk hann að eiga Ísebel, dóttur Etbaals Zídoninga-konungs; fór hann þá og þjónaði Baal og tilbað hann.
Og hann reisti Baal altari í musteri Baals, því er hann hafði gjöra látið í Samaríu.
Akab lét og gjöra aséru; og Akab gjörði enn fleira til að egna Drottinn, Guð Ísraels, til reiði, framar öllum Ísraels-konungum, sem á undan honum höfðu verið.
Á hans dögum reisti Híel frá Betel Jeríkó af nýju. Misti hann frumgetning sinn Abíram, er hann lagði undirstöður hennar, og yngsta son sinn Segúb, er hann reisti hlið hennar, samkvæmt orði Drottins, því er hann hafði talað fyrir munn Jósúa Núnssonar.