Fyrri Konungabók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Konungabók 14

Í þann tíma sýktist Abía, sonur Jeróbóams.

Þá sagði Jeróbóam við konu sína: Far nú og klæð þig dularbúningi, svo að enginn megi kenna, að þú ert kona Jeróbóams, og far til Síló. Þar er Ahía spámaður, sá er um mig sagði, að eg mundi verða konungur yfir lýð þessum.

Og tak með þér tíu brauð og kökur og krús með hunangi og gakk þú inn til hans. Hann mun segja þér, hvernig fara mun um sveininn.

Kona Jeróbóams gjörði svo, lagði af stað og fór til Síló og gekk inn í hús Ahia. En Ahía mátti ekki sjá, því að augu hans voru stirnuð af elli.

En Drottinn hafði sagt við Ahía: Sjá, kona Jeróbóams kemur, til þess að leita frétta hjá þér um son sinn, því að hann er sjúkur. Svo og svo skalt þú til hennar mæla. En er hún kom og lézt vera önnur en hún var,

og Ahía heyrði fótatak hennar, er hún kom að dyrunum, þá sagði hann: Kom þú inn, kona Jeróbóams! Hvers vegna læzt þú vera önnur en þú ert, þar sem eg þó er sendur til þín með hörð tíðindi?

Far þú og seg Jeróbóam: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Sakir þess að eg hóf þig upp af alþýðu manna og gjörði þig að höfðingja yfir lýð mínum Ísrael,

og svifli ætt Davíðs, konungdóminum og fékk þér hann í hendur, en þú hefir eigi verið sem þjónn minn Davíð, er hélt boðorð mín og var mér hlýðinn af öllu hjarta, svo að hann gjörði það eitt, er rétt var í mínum augum,

heldur hefir gjört meira ilt en allir þeir, sem á undan þér voru, hefir farið og gjört þér aðra guði, og það steypt líkneski, til þess að egna mig til reiði, og hefir kastað mér aftur fyrir þig —

sakir þessa leiði eg ógæfu yfir hús Jeróbóams og mun uppræta fyrir Jeróbóam hvern karlmann, bæði þræl og frelsingja í Ísrael, og mun sópa burt húsi Jeróbóams, eins og saur er sópað burt, unz úti er um hann með öllu.

Hvern þann er deyr af Jeróbóam innan borgar, munu hundar eta, og hvern þann, sem deyr úti á víðavangi, munu fuglar himins eta, því að Drottinn hefir talað það.

En statt þú nú upp og far heim til þín; Þegar þú stígur fæti inn í borgina, mun sveinninn deyja.

Og allur Ísrael mun harma hann, og menn munu grafa hann, því að hann er sá eini af Jeróbóam, er greftrun mun hljóta, af því að eitthvað hefir það verið í fari hans, er Drottni, Guði Ísraels, geðjaðist að í ætt Jeróbóams.

Og Drottinn mun skipa konung yfir Ísrael, er uppræta mun hús Jeróbóams. Þetta er dagurinn, og hvað er nú þegar farið að koma fram?

Og Drottinn mun slá Ísrael, eins og reyrinn riðar í vatninu, og hann mun útrýma Ísrael úr þessu góða landi, er hann gaf feðrum Þeirra, og tvístra þeim fyrir austan Fljótið, af því að þeir hafa gjört sér asérur og egnt Drottinn til reiði.

Og hann mun ofurselja Ísrael vegna synda þeirra, er Jeróbóam hefir drýgt og komið Ísrael til að drýgja,

Þá stóð kona Jeróbóams upp, hélt af stað og kom til Tirza, en er hún steig yfir þröskuld hússins, dó sveinninn.

Og þeir grófu hann og allur Ísrael harmaði hann, og rættist þannig orð Drottins, er hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Ahía spámanns.

En það, Sem meira er að segja um Jeróbóam, hvernig hann herjaði og hvernig hann ríkti, það er ritað í árbókum Ísraels-konunga.

Og sá tími, sem Jeróbóam ríkti, var tuttugu og tvö ár. Þá lagðist hann til hvíldar hjá feðrum sínum, en Nadab sonur hans tók ríki eftir hann.

En Rehabeam sonur Salómós varð konungur í Júda. Rehabeam hafði einn um fertugt, þá er hann varð konungur, og seytján ár ríkti hann í Jerúsalem, borginni, sem Drottinn hafði útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels, til þess að láta nafn sitt búa þar. En móðir hans hét Naama og var ammónítísk.

Ög Júda gjörði það sem út var Í augum save, og þeir vöktu vandlæting hans enn meir en feður þeirra höfðu SJört með öllum þeim syndum, er þeir drýgðu.

Því að einnig þeir gjörðu sér hæðir, merkissteina og asérur á öllum háum hólum og undir hverju grænu tré.

Þeir menn voru og í landinu, er helguðu sig saurlifnaði; þeir aðhöfðust alla þá sömu svívirðing, sem þær þjóðir frömdu, er Drottinn hafði stökt burt undan Ísraelsmönnum.

En á fimta ríkisári Rehabeams fór Sísak Egiptalands-konungur herför móti Jerúsalem

og tók fjársjóðu Drottins húss og fjársjóðu konungshallarinnar, tók það alt saman; hann tók og alla gullskjölduna, sem Salómó hafði gjöra látið.

En Rehabeam konungur lét í þeirra stað gjöra eirskjöldu og fékk þá höfuðsmönnum lífvarðarins til geymslu, þeim er geyma dyra á höll konungs.

Og í hvert sinn er konungur gekk í hús Drottins, báru varðliðsmennirnir þá, og fóru síðan með þá aftur í herbergi varðliðsmannanna.

En það sem meira er að segja um Rehabeam og alt, sem hann gjörði, það er ritað í árbókum Júdakonunga.

Og þeir lágu ávalt í ófriði saman, Rehabeam og Jeróbóam.

Og Rehabeam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður hjá feðrum sínum í Davíðsborg. En móðir hans hét Naama og var ammónítísk. Og Abíam sonur hans tók ríki eftir hann.