Fjórða Mósebók 36Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 36

En ætthöfðingjarnir af kynkvísl Gíleaðs sona, Makírssonar, Manassesonar, af kynkvíslum Jósefs sona, gengu fram og töluðu fyrir augliti Móse og fyrir augliti höfuðsmannanna, ætthöfðingja Ísraelsmanna,

og sögðu: Drottinn hefir boðið þér, herra, að fá Ísraelsmönnum landið til eignar með hlutkesti; þér var og, herra, boðið af Drottni að fá eignarhluta Zelofhaðs bróður vors dætrum hans í hendur.

Giftist þær nú einhverjum af sonum annara ættkvísla Ísraelsmanna, þá tekst erfð þeirra af erfð feðra vorra og bætist við erfð þess ættleggs, er þær giftast í, og tekst þannig af erfðahluta vorum.

Og þegar fagnaðarár Ísraelsmanna kemur, þá verður erfð þeirra bætt við erfð þess ættleggs, er þær giftast í, og erfð þeirra tekst af erfð ættleggs feðra vorra.

SÞá gaf Móse Ísraelsmönnum svofeld fyrirmæli að boði Drottins: Ættleggur Jósefs sona hefir rétt að mæla.

’etla eru fyrirmæli Drottins þeim dætur Zelofhaðs: Þær mega giftast hverjum sem þær vilja; aðeins skulu þær giftast einhverjum úr föðurætt sinni,

svo að erfð Ísraelsmanna gangi eigi frá einum ættlegg til annars; heldur skulu allir Ísraelsmenn halda fast í erfð föðurættar sinnar.

Og sérhver dóttir af ættkvíslum Ísraelsmanna, er erfð hlýtur, skal giftast í föðurætt sína, svo að hver Ísraelsmanna erfi föðurleifð sína

og erfð gangi eigi frá einum ættlegg til annars; heldur skulu allir ættleggir Ísraelsmanna halda fast í erfð sína.

Dætur Zelofhaðs gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse,

og giftust þær Mahla, Tirza, Hogla, Milka og Nóa, dætur Zelofhaðs, sonum föðurbræðra sinna.

Giftust þær mönnum af kynkvísl sona Manasse Jósefssonar, og varð erfð þeirra kyr í ættlegg föðurættar þeirra.

Þetta eru skipanir þær og ákvæði, er Drottinn setti Ísraelsmönnum fyrir Móse á Móabs-heiðum við Jórdan, gegnt Jeríkó.