Gamla testamentiðLögmálið
af Og Drottni talaði við Móse og sagði:
Hefn þú Ísraelsmanna á Midíanítum; eftir það skalt þú safnast til þíns fólks.
Og Móse talaði við lýðinn og sagði: Hervæðið menn af yður til herfarar, og skulu þeir fara á móti Midíansmönnum, tl þess að koma fram hefnd Drottins á Midíansmönnum.
Skuluð þér senda þúsund manns af ættkvísl hverri af öllum ættkvíslum Ísraels til herfararinnar.
Voru þá látnir til af þúsundum Ísraels þúsund af ættkvísl hverri, tólf þúsund herbúinna manna.
Og Móse sendi þá, þúsund manns af ættkvísl hverri, til herfarar og með þeim Pínehas, son Eleasars prests, til herfarar, og hafði hann með sér hin helgu áhöld og hvellilúðrana.
Og þeir börðust við Midíansmenn, eins og Drottinn hafði boðið Móse, og drápu alla karlmenn.
Þeir drápu og konunga Midíansmanna, auk annara, er þeir feldu: Eví, Rekem, Zúr, Húr og Reba, fimm konunga Midíansmanna; Bíleam Beórsson drápu þeir og með sverði.
Og Ísraelsmenn tóku að herfangi konur Midíansmanna og börn þeirra og ræntu öllum eykjum þeirra, öllum lenaði þeirra og öllum eigum þeirra.
En þeir lögðu eld í allar borgir þeirra, sem þeir bjuggu í, og í allar tjaldbúðir þeirra.
Og þeir tóku alt ránsféð og alt herfangið, bæði menn og skepnur,
og lærðu Móse og Eleasar presti og söfnuði Ísraelsmanna hið herlekna fólk, herfangið og ránsféð í herbúðirnar, til Móabsheiða, sem eru við Jórdan gegnt Jeríkó.
En Móse og Eleasar prestur og allir höfuðsmenn safnaðarins gengu í móti þeim út fyrir herbúðirnar.
Reiddist Móse þá hersveitarforingjunum, bæði þeim er settir voru yfir þúsundir og þeim er settir voru yfir hundruð og komu úr leiðangrinum,
og sagði við þá: Gáfuð þér öllum konum Líf?
Sjá, það voru einmitt þær, sem urðu til efni til þess, að Ísraelsmenn að ráði Bíleams sýndu Drottinn ótrúmensku vegna Peórs, svo að plágan kom yfir söfnuð Drottins.
Drepið því öll piltbörn; drepið og allar þær konur, er samræði hafa átt við karl mann;
en látið öll stúlkubörn, er eigi hafa átt samræði við karlmann, lifa handa yður.
En sjálfir skuluð þér hafast við fyrir utan herbúðirnar í sjö daga; hver sem drepið hefir mann og hver sem snert hefir veginn mann, þér skuluð syndhreinsa yður á þriðja degi og sjöunda degi, svo og þeir, er þér hafið tekið að herfangi.
Þér skuluð og syndhreinsa allan klæðnað, alla hluti af skinni gjörva, alt sem gjört er úr geitahárum, svo og öll tréílát.
Og Eleasar prestur sagði við hermennina, er gengið höfðu í bardagann: Þetta er ákvæði í lögmálinu, er Drottinn hefir boðið Móse.
En láta skuluð þér gull, silfur, eir, járn, tin og blý —
alt sem eld þolir — ganga í gegnum eld, og er það þá hreint; þó skal það enn syndhreinsað með hreinsunarvatni. En alt, sem eigi þolir eld, skuluð þér láta ganga í gegnum vatn.
Og þér skuluð þvo klæði yðar á sjöunda degi, og eruð þá hreinir; eftir það megið þér koma í herbúðirnar.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Tel þú herfangið, bæði menn og skepnur, þú og Eleasar prestur og ætthöfðingjar safnaðarins;
og skift þú herfanginu til helminga milli þeirra, er vopnaviðskiftin áttu, þeirra er í leiðangurinn fóru, og alls safnaðarins.
Og þú skalt taka í skattgjald Drottins til handa af bardagamönnunum, þeim er í leiðangurinn fóru, eina sál af hverjum fimm hundruðum — af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði.
Takið það af þeirra helmingi, og skalt þú fá það Eleasar presti sem lyftifórn Drottins.
En af helmingi Ísraelsmanna skalt þú taka frá eina af hverjum fimtíu — af mönnum, nautgripum, ösnum og smáfénaði, af öllum skepnum, og fá Levítunum, sem annast búð Drottins.
Og Móse og Eleasar prestur gjörðu eins og Drottinn hafði boðið Móse.
En herfangið — það sem eftir var af ránsfé því, er herfólkið hafði rænt — voru sex hundruð sjötíu og fimm þúsundir af sauðfénaði,
sjötíu og tvær þúsundir af nautgripum
og sextíu og eitt þúsund asnar;
og alls þrjátíu og tvö þúsund manns, konur er eigi höfðu átt samræði við karlmann.
En helmingshlutur þeirra, er í leiðangurinn fóru, var að tölu þrjú hundruð þrjátíu og sjö þúsundir og fimm hundruð af sauðfénaði,
og skattgjaldið til handa Drottni af sauðfénaðinum var sex hundruð sjötíu og fimm,
af nautgripum þrjátíu og sex þúsundir, og skattgjaldið af þeim Drottinn til handa sjötíu og tveir,
asnarnir þrjátíu þúsund og fimm hundruð, og skattgjaldið af þeim Drottinn til handa sextíu og einn;
og mennirnir sextán þúsundir, og skattgjaldið af þeim Drottinn til handa þrjátíu og tvær sálir.
Og Móse fékk Eleasar presti lyftifórnarskattgjaldið Drottins til handa, eins og Drottinn hafði boðið Móse.
Og af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu og Móse skifti frá hermönnunum —
en í hluta safnaðarins kom: af sauðfénaði þrjú hundruð þrjátíu og sjö þúsundir og fimm hundruð,
erlaði þrjú hundruð þrjátíu og af nautgripum þrjátíu og sex þúsundir,
af ösnum þrjátíu þúsundir nan hundruð
og af mönnum sextán þúsundir
af helmingnum, er Ísraelsmenn fengu, tók Móse frá einn af hverjum fimtíu, bæði af mönnum og skepnum, og fékk Levítunum, er annast búð Drottins, eins og Drottinn hafði boðið Móse.
Höfuðsmennirnir yfir þúsundum hersins, fyrirliðarnir fyrir þúsundunum og fyrirliðarnir fyrir hundruðunum, gengu nú fram fyrir Móse
og sögðu við Móse: Vér þjónar þínir höfum talið bardagamennina, er vér áttum yfir að ráða, og vér söknum eigi neins af þeim.
Fyrir því færum vér Drottinn að fórnargjöf hver það, er hann hefir komist yfir af gullgripum: armhringa, armbönd, fingurgull, eyrnagull og hálsmen, til þess að friðþægja fyrir sálir vorar fyrir Drottni.
En þeir Móse og Eleasar tóku við gullinu af þeim; var það alls konar listasmíði.
En gullið, sem þeir færðu Drottni að lyftifórn, var alls sextán þúsund sjö hundruð og fimtíu siklar og var það frá fyrirliðunum fyrir þúsundunum og frá fyrirliðunum fyrir hundruðunum.
Hermennirnir höfðu rænt hver handa sér.
Og þeir Móse og Eleasar prestur tóku við gullinu af fyrirliðunum fyrir þúsundunum og hundruðunum og færðu það í samfundatjaldið, Ísraelsmönnum til minningar frammi fyrir Drottni.