Gamla testamentiðLögmálið
Og eftir pláguna sagði Drottinn við Móse og Eleasar Aronsson prests:
Takið manntal alls safnaðar Ísraelsmanna, þeirra er tvítugir eru og þaðan af eldri, eftir ættum þeirra, allra þeirra sem vopnfærir eru í Ísrael.
Og Móse og Eleasar prestur skoruðu þá á Móabs-heiðum, við Jórdan gegnt Jeríkó,
frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, eins og Drottinn hafði boðið Móse. En Ísraelsmenn, þeir er fóru af Egiptalandi, voru:
Rúben, frumgetinn sonur Ísraels. Synir Rúbens voru: Hanok, frá honum er komin kynkvísl Hanokita, frá Pallú kynkvísl Pallúíta;
frá Hezrón kynkvísl Hezróníta, frá Karmí kynkvísl Karmíta.
Þessar eru kynkvíslir Rúbeníta. En þeir, sem taldir voru af þeim, voru fjörutíu og þrjár þúsundir sjö hundruð og þrjátíu.
Og synir Pallú voru: Elíab;
og synir Elíabs: Nemúel, Datan og Abíram; það voru þessi Datan og Abíram, fulltrúar safnaðarins, sem þráttuðu við Móse og við Aron í flokki Kóra, þá er þeir þráttuðu við Drottin.
Opnaði jörðin þá munn sinn og svalg þá og Kóra, þá er flokkurinn fórst, með því að eldur eyddi tvö hundruð og fimtíu manns, og urðu þeir til tákns.
En synir Kóra fórust þó ekki.
Synir Símeons, eftir kynkvíslum þeirra: frá Nemúel er komin kynkvísl Nemúelíta; frá Jamín kynkvísl Jamíníta, frá Jakín kynkvísl Jakíníta;
frá Sera kynkvísl Seraíta, frá Sál kynkvísl Sálíta.
Þessar eru kynkvíslir Símeoníta: tuttugu og tvær þúsundir og tvö hundruð.
Synir Gaðs, eftir kynkvíslum þeirra: frá Zefón er komin kynkvísl Zefóníta, frá Haggí kynkvísl Haggíta, frá Súní kynkvísl Súníta;
frá Osní kynkvísl Osníta, frá Erí kynkvísl Eríta;
frá Aród kynkvísl Aródíta, frá Arelí kynkvísl Arelíta.
Þessar eru ættkvíslir Gaðs sona, þeir er taldir voru af þeim: fjörutíu þúsundir og fimm hundruð.
Synir Júda voru Ger og Ónan; en Ger og Ónan dóu í Kanaanlandi.
En synir Júda, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sela er komin kynkvísl Selaníta, frá Perez kynkvísl Perezíta, frá Sera kynkvísl Seraíta.
Og synir Perez voru: frá Hezrón kynkvísl Hezróníta, frá Hamúl kynkvísl Hamúlíta.
Þessar eru kynkvíslir Júda, þeir er taldir voru af þeim: sjötíu og sex þúsundir og fimm hundruð.
Synir Íssakars, eftir kynkvíslum þeirra: frá Tóla er komin kynkvísl Tólaíta, frá Púva kynkvísl Púníta;
frá Jasjúb kynkvísl Jasjúbíta, frá Símron kynkvísl Símroníta.
Þessar eru kynkvíslir Íssakars, þeir er taldir voru af þeim: sextíu og fjórar þúsundir og þrjú hundruð.
Synir Sebúlons, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sered er komin kynkvísl Seredíta, frá Elon kynkvísl Eloníta, frá Jahleel kynkvísl Jahleelíta.
Þessar eru kynkvíslir Sebúlonita, þeir er taldir voru af þeim: sextíu þúsundir og fimm hundruð.
Synir Jósefs, eftir kynkvíslum þeirra: Manasse og Efraím,
Synir Manasse: frá Makír er komin kynkvísl Makíríta, en Makír gat Gíleað; frá Gíleað er komin kynkvísl Gíleaðíta.
Þessir eru synir Gíleaðs: Jeser, frá honum er komin kynkvísl Jesríta, frá Helek kynkvísl Helekíta,
frá Asríel kynkvísl Asríelíta, frá Sekem kynkvísl Síkemíta,
frá í Semída kynkvísl Semidaíta og frá Hefer kynkvísl Hefríta.
En Zelofhað sonur Hefers átti enga sonu, heldur aðeins dætur; og dætur Zelofhaðs hétu Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirza.
Þessar eru kynkvíslir Manasse, og þeir sem taldir voru af þeim, voru fimtíu og tvær þúsundir og sjö hundruð.
Þessir eru synir Efraíms eftir kynkvíslum þeirra: frá Sútela er komin kynkvísl Sútelaíta, frá Beker kynkvísl Bekeríta, frá Tahan kynkvísl Tahaníta.
En þessir voru synir Sútela: frá Eran kynkvísl Eraníta.
Þessar eru kynkvíslir Efraíms sona, þeir er taldir voru af þeim: þrjátíu og tvær þúsundir og fimm hundruð. Þessir eru synir Jósefs eftir kynkvíslum þeirra.
Synir Benjamíns, eftir kynkvíslum þeirra: frá Bela er komin kynkvísl Belaíta, frá Asbel kynkvísl Asbelíta, frá Ahíram kynkvísl Ahíramíta;
frá Sefúfam kynkvísl Súfamíta, frá Húfam kynkvísl Húfamíta.
En synir Bela voru Ard og Naaman; frá Ard er komin kynkvísl Ardíta og frá Naaman kynkvísl Naamíta.
Þessir eru synir Benjamíns eftir kynkvíslum þeirra, og þeir sem taldir voru af þeim, voru fjörutíu og fimm þúsundir og sex hundruð.
Þessir eru synir Dans eftir kynkvíslum þeirra: frá Súham er komin kynkvísl Súhamíta; þessar eru kynkvíslir Dans eftir kynkvíslum þeirra.
Allar kynkvíslir Súhamíta, þeir er taldir voru af þeim, voru sextíu og fjórar þúsundir og fjögur hundruð.
Synir Assers, eftir kynkvíslum þeirra: frá Jímna er komin kynkvísl Jímníta, frá Jísví kynkvísl Jísvíta, frá Bría kynkvísl Bríita;
frá sonum Bría: frá Heber kynkvísl Hebríta, frá Malkíel kynkvísl Malkíelíta.
Og dóttir Assers hét Sera.
Þessar eru kynkvíslir Assers sona, þeir er taldir voru af þeim: fimtíu og þrjár þúsundir og fjögur hundruð.
Synir Naftalí, eftir kynkvíslum þeirra: frá Jahzeel er komin kynkvísl Jahzeelíta, frá Gúní kynkvísl Gúníta;
frá Jezer kynkvísl Jizríta, frá Sillem kynkvísl Sillemíta.
Þessar eru kynkvíslir Naftalí eftir kynkvíslum þeirra, og þeir sem taldir voru af þeim, voru fjörutíu og fimm þúsundir og fjögur hundruð.
Þetta voru þeir, sem taldir voru af Ísraelsmönnum: sex hundruð og eitt þúsund sjö hundruð og þrjátíu.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Meðal þessara skal landinu skifta til eignar eftir nafnatölu.
Þeirri kynkvísl, sem mannmörg er, skalt þú fá mikið land til eignar, en þeirri, sem fámenn er, lítið land til eignar; sérhverjum skal land gefið til eignar í réttu hlutfalli við talda menn hans.
Þó skal landinu skift með hlutkesti, svo að þeir hljóti það til eignar eftir nöfnum ættstofnanna.
Eftir því sem hlutkestið segir til skal eignum skift milli þeirra, svo sem þeir eru margir og fáir til.
Og þessir eru Levítarnir, sem taldir voru, eftir kynkvíslum þeirra: frá Gerson er komin kynkvísl Gersoníta, frá Kahat kynkvísl Kahatíta, frá Merarí kynkvísl Meraríta.
Þessar eru kynkvíslir Leví: kynkvísl Libníta, kynkvísl Hebroníta, kynkvísl Mahelíta, kynkvísl Músíta, kynkvísl Kóraíta; en Kahat gat Amram.
Og kona Amrams hét Jókebed, dóttir Leví; fæddist hún Leví í Egiptalandi; en hún fæddi Amram þá Aron og Móse og systur þeirra Mirjam.
Og Aroni fæddust Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.
En Nadab og Abíhú dóu, er þeir báru annarlegan eld fram fyrir Drottni.
Og þeir, sem taldir voru af þeim, voru tuttugu og þrjár þúsundir, alt karlkyn mánaðargamalt og þaðan af eldra. Því að þeir voru ekki taldir með Ísraelsmönnum, af því að þeim var eigi fengið land til eignar meðal Ísraelsmanna.
Þetta eru þeir, sem skoraðir voru af Móse og Eleasar presti, þá er þeir skoruðu Ísraelsmenn á Móabsheiðum, við Jórdan gegnt Jeríkó.
Og meðal þessara var enginn þeirra, sem skoraðir voru af Móse og Aroni presti, þá er þeir skoruðu Ísraelsmenn í Sínaí-eyðimörku.
Því að Drottinn hafði sagt um þá: Þeir skulu vissulega deyja í eyðimörkinni; enda var enginn orðinn eftir af þeim nema Kaleb Jefúnneson og Jósúa Núnsson.