Fjórða Mósebók 15Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 15

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar þér komið í land það, sem eg mun gefa yður til bólfestu,

og þér færið Drottni eldfórn, hvort heldur er brennifórn eða sláturfórn, til að efna heit eða í sjálfviljafórn eða í tilefni af löghátíðum yðar, til þess að gjöra Drottinn þægilegan ilm af nautum eða sauðfénaði,

þá skal sá, er færir Drottni fórnargjöf sína, jafnframt bera fram í matfórn einn tíunda part úr efu af fínu mjöli, blönduðu við einn fjórða part úr hín af olíu.

En af víni í dreypifórn skalt þú fórna einum fjórða parti úr hín með brennifórn eða sláturfórn, með hverri sauðkind.

Eða sé það með hrút, þá skalt þú fórna tveim tíundu pörtum úr efu af fínu mjöli, blönduðu við þriðjung hínar af olíu, í matfórn;

en af víni í dreypifórn þriðjung hínar; skalt þú fram bera það sem þægilegan ilm Drottins til handa.

Og þegar þú fórnar ungneyti í brennifórn eða sláturfórn, til þess að efna heit, eða í heillafórn Drottins til handa,

þá skal fram bera í matfórn með ungneytinu þrjá tíundu parta úr efu af fínu mjöli, blönduðu við hálfa hín af olíu;

en af víni skalt þú fram bera í dreypifórn hálfa hín sem eldfórn þægilegs ilms Drottins til handa.

Skal svo gjört við sérhvern uxa, sérhvern hrút, við sérhvert lamb, hvort heldur er af sauðkindum eða geitum.

Eftir tölunni á því, sem þér fórnið, skuluð þér svo gjöra við hverja skepnu eftir tölu þeirra.

Sérhver innborinn maður skal fara eftir þessu, þegar hann færir Drottni eldfórn þægilegs ilms.

Og ef útlendingur dvelur um hríð meðal yðar eða einhver, sem tekið hefir sér fastan bústað meðal yðar, og hann fórnar Drottins eldfórn þægilegs ilms, þá skal hann gjöra svo sem þér gjörið.

Að því, er söfnuðinn snertir, þá skulu vera ein lög bæði fyrir yður og útlendan mann, er hjá yður dvelur; er það ævarandi lögmál frá kyni til kyns; fyrir Drottni gildir hið sama um útlendan mann sem um yður.

Ein lög og einn réttur skal vera bæði fyrir yður og útlendan mann, sem með yður dvelur.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Tala þú við Ísraelsmenn og seg við þá: Þegar þér komið í land það, er eg mun leiða yður inn í,

þá skuluð þér fórna Drottni lyftifórn, er þér etið af brauði landsins.

Sem frumgróða af deigi yðar skuluð þér fórna köku í lyftifórn; eins og lyftifórninni af láfanum, svo skuluð þér fórna henni.

Af frumgróðanum af deigi yðar skuluð þér gefa Drottni lyftifórn frá kyni til kyns.

Og ef yður yfirsést og þér haldið eigi öll þessi boðorð, sem Drottinn hefir lagt fyrir Móse,

alt það, sem Drottinn hefir boðið yður fyrir Móse, frá þeim degi, er Drottinn bauð það og upp frá því, frá kyni til kyns,

og ef misgjörðin er framin án þess söfnuðurinn viti af, þá skal allur söfnuðurinn fórna ungneyti í brennifórn, til þægilegs ilms fyrir Drottni, ásamt matfórn og dreypifórn, er því fylgja, að réttum sið, og geithafri í syndafórn.

Og presturinn skal friðþægja fyrir allan söfnuð Ísraelsmanna, og þeim mun fyrirgefið verða. Því að það var yfirsjón, og þeir hafa fram borið fórnargjöf sína, eldfórn Drottins til handa, svo og syndafórn sína fram fyrir Drottni vegna yfirsjónar sinnar.

Og öllum söfnuði Ísraelsmanna mun fyrirgefið verða, svo og útlendum manni, er meðal yðar dvelur; því að yfirsjónin féll á allan söfnuðinn.

En ef einhver maður syndgar af vangá, skal hann fórna veturgamalli geit í syndafórn.

Og presturinn skal frammi fyrir Drottni friðþægja fyrir þann, er yfirsjón hefir hent og syndgað hefir af vangá, til þess að friðþægja fyrir hann, og honum mun fyrirgefið verða.

Þér skuluð hafa ein lög fyrir þann, er gjörir eitthvað af vangá, bæði fyrir mann innborinn meðal Ísraelsmanna og fyrir útlending, er dvelur meðal þeirra.

En sá maður, er fremur eitthvað með uppreiddri hendi, hvort heldur er innborinn maður eða útlendingur, hann smánar Drottinn, og skal sá maður upprættur verða úr þjóð sinni.

Því að hann hefir virt orð Drottins að vettugi og brotið boðorð hans; slíkur maður skal vægðarlaust upprættur verða; misgjörð hans hvílir á honum.

Og meðan Ísraelsmenn voru í eyðimörkinni, stóðu þeir mann að því, að bera saman við á hvíldardegi.

Og þeir sem hittu hann, þar sem hann var að bera saman viðinn, færðu hann fyrir Móse og Aron og fyrir allan söfnuðinn.

Og þeir settu hann í varðhald, því að enginn úrskurður var til um það, hversu með hann skyldi fara.

En Drottinn sagði við Móse: Manninn skal af lífi taka; allur söfnuðurinn skal berja hann grjóti fyrir utan herbúðirnar.

Þá færði allur söfnuðurinn hann út fyrir herbúðirnar og barði hann grjóti til bana, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Tala þú við Ísraelsmenn og seg við þá, að þeir skuli gjöra sér skúfa á skaut klæða sinna, frá kyni til kyns, og festa snúru af bláum purpura við skautskúfana.

Og það skal vera yður merkiskraut: þegar þér horfið á það, skuluð þér minnast allra boðorða Drottins, svo að þér breytið eftir þeim og hlaupið ekki eftir fýsnum hjarta yðvarra né augna, en með því leiðist þér til hjáguðadýrkunar;

til þess að þér munið öll mín boðorð og breytið eftir þeim og séuð heilagir fyrir Guði yðar.

Eg er Drottinn, Guð yðar, sem leiddi yður út af Egiptalandi, til þess að vera yðar Guð; eg er Drottinn, Guð yðar.