Fimmta Mósebók 34Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 34

Og Móse gekk neðan af Móabsheiðum upp á Nebó-fjall, Pisgatind, sem er gegnt Jeríkó; þaðan sýndi Drottinn honum gjörvalt landið: Gíleað alt til Dan,

alt Naftalí og Efraímsland og Manasse, og alt Júda-land alt til vesturhafsins,

og suðurlandið og Jórdansléttlendið, dalinn hjá Jeríkó, pálmaborginni, alt til Zóar.

Og Drottinn sagði við hann: Þetta er landið, sem eg sór Abraham, Ísak og Jakob, er eg sagði: Niðjum þínum vil eg gefa það! Eg hefi látið þig líta það eigin augum, en yfir um þangað skalt þú ekki komast.

Og Móse, þjónn Drottins, dó þar í Móabslandi, eins og Drottinn hafði sagt,

og hann var grafinn í dalnum í Móabslandi, gegnt Bet-Peór, en enginn maður veit enn til þessa dags, hvar gröf hans er.

Og Móse var hundrað og tuttugu ára gamall, er hann andaðist; eigi glapnaði honum sýn og eigi þvarr þróttur hans.

Og Ísraelsmenn grétu Móse á Móabsheiðum í þrjátíu daga; þá enduðu sorgargrátsdagarnir eftir Móse.

En Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda, því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann; og Ísraelsmenn hlýddu honum og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

En eigi reis framar upp í Ísrael annar eins spámaður og Móse, er Drottinn umgekst augliti til auglitis,

þegar litið er til allra þeirra tákna og undra, er Drottinn hafði sent hann til að gjöra í Egiptalandi á Faraó og öllum þjónum hans og öllu landi hans,

og þegar litið er til alls hins volduga máttar og allra hinna miklu og hræðilegu verka, er Móse gjörði í augsýn alls Ísraels.