Fimmta Mósebók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 3

Snerum vér nú á leið og héldum veginn, sem liggur til Basan. En Óg, konungur í Basan, fór í móti oss með öllu liði sínu, til þess að heyja bardaga hjá Edreí.

Þá sagði Drottinn við mig: Eigi Skalt þú óttast hann; því að eg gef hann og lið hans alt og land hans Í þínar hendur, og skalt þú svo fara með hann, eins og þú fórst með Síhon, Amórita konung, er bjó í Hesbon.

Drottinn, Guð vor, gaf oss þannig Og í hendur Óg, konung í Basan, og lið hans alt, og vér feldum hann, Svo að enginn var eftir skilinn, er undan kæmist.

Þá unnum vér allar borgir hans; var engin sú borg, að vér eigi næðum henni frá Þeim: sextíu borgir, alt Argób-hérað, konungsríki Ógs í Basan.

Voru þetta borgir víggirtar háum múrveggjum, hliðum og slagbröndum, auk mikils fjölda af óumgirtum þorpum.

Og vér gjöreyddum þær, Eins og vér höfðum áður gjört við Síhon, konung í Hesbon, með því að Björeyða hverja borg að karlmönnum, konum og börnum.

En fénaðinn allan og ránsfenginn úr borgunum tókum vér að herfangi.

Þannig tókum vér í það skifti úr höndum beggja Amoríta konunga land alt hinumegin Jórdanar frá Arnoná til Hermon-fjalls —

Hermon kalla Zídoningar Sirjon, en Amorítar kalla það Senír —,

allar borgir á sléttlendinu, Gíleað alt og Basan, alla leið til Salka og Edreí, þær borgir í Basan, er heyrðu konungsríki Ógs.

Því að Óg, konungur í Basan, var sá eini, sem eftir var af Refaítum; sjá, steinlíkkista hans var gjör úr stuðlabergi og er enn til í Rabba hjá Ammónítum; hún er níu álna löng og fjögra álna breið eftir venjulegu alinmáli.

Þetta land tókum vér þá til eignar. Frá Aróer, sem liggur við Arnoná, og hálft Gíleað-fjalllendi og borgirnar í því gaf eg Rúbenítum og Gadítum;

en það, sem eftir var af Gíleað, og alt Basan, konungsríki Ógs, gaf eg hálfri ættkvísl Manasse, alt Argób-hérað; þetta Basan alt er kallað Refaltaland.

Drottinn, son Manasse, nam alt Argób-hérað alt að landamærum Gesúríta og Maakatíta og kallaði það, sem sé Basan, eftir nafni sínu Jaírs-þorp, og helzt það nafn enn í dag.

Makir gaf eg Gileað;

og Rúbenítum og Gadítum gaf eg land frá Gíleað suður að Arnoná, í dalinn miðjan, — voru það suðurtakmörkin — og alla leið að Jábboká, sem er á landamærum Ammóníta;

enn fremur sléttlendið með Jórdan á mörkum, frá Kinneret-vatni suður að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, undir Pisga-hlíðum, austanmegin.

Þá bauð eg yður og sagði: Drottinn, Guð yðar, hefir gefið yður þetta land til eignar; farið vígbúnir fyrir bræðrum yðar, Ísraelsmönnum, allir þér sem vopnfærir eruð.

En konur yðar og börn og búsmali yðar — eg veit að þér eigið mikinn fénað — skal verða eftir í borgunum, sem eg hefi gefið yður;

þar til er Drottinn, Guð yðar, veitir bræðrum yðar hvíld, eins og yður, og þeir hafa líka tekið til eignar land það, er Drottinn, Guð yðar, gefur þeim hinumegin Jórdanar; þá megið þér snúa aftur, hver til óðals síns, er eg hefi gefið yður.

Og Jósúa bauð eg þá og sagði: Þú hefir séð alt það með eigin augum, sem Drottinn, Guð yðar, hefir gjört þessum tveimur konungum; eins mun Drottinn fara með öll þau konungaríki, sem þú ert á leið til.

Eigi skuluð þér óttast þau, því að Drottinn, Guð yðar, berst fyrir yður.

Þá bað eg Drottinn líknar og sagði:

Ó Drottinn Guð! þú hefir nú þegar sýnt þjóni þínum, hve mikill þú ert og hve sterk hönd þín er; því að hver er sá guð á himni eða jörðu, sem gjöri önnur eins verk og þú og jafnmikil máttarverk?

Æ, leyf mér að fara yfir um og sjá landið góða, sem er hinumegin Jórdanar, þetta fagra fjalllendi og Líbanon.

En Drottinn reiddist mér yðar vegna og bænheyrði mig ekki; og Drottinn sagði við mig: Nóg um það; tala eigi meira um þetta mál við mig.

Far þú upp á Pisga-tind og horf þú í vestur, norður, suður og austur og lít það með augum þínum; því að þú munt ekki komast yfir hana Jórdan.

En skipa þú Jósúa foringja og tel hug í hann og gjör hann öruggan, því að hann skal fara yfir um fyrir þessu fólki og hann skal skifta milli þeirra landinu, sem þú sér.

Dvöldum vér nú um hríð í dalnum á móts við Bet-Peór.