Fimmta Mósebók 27Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 27

En Móse og öldungar Ísraels buðu lýðnum og sögðu: Varðveitið allar þær skipanir, sem eg legg fyrir yður í dag.

Og þegar þér eruð komnir yfir Jórdan inn í landið, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, þá skalt þú reisa upp stóra steina og strjúka þá utan kalki

Og rita á þá öll orð lögmáls þessa, þá er þú ert kominn yfir um, til þess að þú komist inn í landið, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, land, sem flýtur í mjólk og hunangi, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefir heitið þér.

Og þegar þér eruð komnir yfir Jórdan, þá skuluð þér reisa upp þessa steina, sem eg hefi mælt fyrir um í dag, á Ebal-fjalli, og strjúka þá utan kalki.

Þú skalt og reisa Drottni, Guði þínum, þar altari, altari af steinum; þú mátt ekki bera að þeim járntól.

Af óhöggnum steinum skalt þú reisa altari Drottins, Guðs þíns, og á því skalt þú fórna Drottni, Guði þínum, brennifórnum;

og þú skalt slátra heillafórnum og eta þær þar og gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði þínum.

Og þú skalt rita á steinana öll orð þessa lögmáls mjög greinilega.

Og Móse og Levíta-prestarnir töluðu til alls Ísraels og sögðu: Ver hljóður og hlýð á, Ísrael! Í dag ert þú orðinn lýður Drottins, Guðs þíns;

fyrir því skalt þú hlýða raustu Drottins, Guðs þíns, og halda skipanir hans og lög, sem eg legg fyrir þig í dag.

Þennan sama dag bauð Móse lýðnum og sagði:

Þessir skulu standa á Garísím-fjalli, til þess að blessa lýðinn, þegar þér eruð komnir yfir Jórdan: Símeon, Leví, Júda, íssakar, Jósef og Benjamín;

og þessir skulu standa á Ebal-fjalli til að lýsa bölvan: Rúben, Gað, Asser, Sebúlon, Dan og Naftalí.

Og Levítarnir skulu taka til máls og segja með hárri raustu við alla Ísraelsmenn:

Bölvaður er sá maður, sem býr til skurðgoð eða steypt líkneski,; andstygð Drottinn, handaverk smiðs, og reisir það á laun! Og allur lýðurinn skal svara og segja:

Bölvaður er sá, sem óvirðir föður sinn eða móður sína! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem færir úr stað landamerki náunga síns! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem leiðir blindan mann af réttri leið! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem hallar rétti útlends manns, munaðarleysingja eða ekkju! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem legst með konu föður síns, því að hann hefir flett upp ábreiðu föður síns! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem hefir samlag við nokkura skepnu! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem legst með systur sinni, hvort heldur hún er dóttir föður hans eða dóttir móður hans! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem legst með tengdamóður sinni! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem vegur náunga sinn á laun! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem lætur múta sér til þess að vega saklausan mann! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.

Bölvaður er sá, sem eigi heldur í gildi orðum þessa lögmáls með því að breyta eftir þeim! Og allur lýðurinn skal segja: Amen.