Fimmta Mósebók 23Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 23

Enginn sá, er meiddur hefir verið eistnamari eða hreðurskorinn, má vera í söfnuði Drottins.

Enginn bastarður má vera í söfnuði Drottins, jafnvel ekki tíundi maður frá honum má vera í söfnuði Drottins.

Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins; jafnvel ekki tíundi maður frá þeim má vera í söfnuði Drottins að eilífu,

vegna þess að þeir komu ekki í móti yður með brauð og vatn, þá er þér voruð á leiðinni frá Egiptalandi, og vegna þess að þeir keyptu í móti þér Bíleam Beórsson frá Petór í Mesópótamíu, til þess að bölva þér.

En Drottinn, Guð þinn, vildi ekki hlýða á Bíleam, og Drottinn, Guð þinn, sneri bölvaninni í blessun fyrir þig, af því að Drottinn, Guð þinn, elskaði þig.

Þú skalt aldrei alla æfi þína láta þér ant um farsæld þeirra og velgengni.

Þú skalt eigi hafa andstygð á Edómítum, því að þeir eru bræður þínir; þú skalt eigi hafa andstygð á Egiptum, því að þú dvaldir sem útlendingur í Landi þeirra.

Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.

Þegar þú fer í hernað móti óvinum þínum, þá skalt þú gæta þín við öllum illum hlutum.

Ef einhver, sem með þér er, er ekki hreinn vegna þess, sem hann hefir hent um nóttina, þá skal hann ganga út fyrir herbúðirnar og má eigi koma inn í herbúðirnar;

en að áliðnum degi skal hann lauga sig í vatni, og er sól er sezt, má hann aftur ganga inn í herbúðirnar.

Þú skalt og hafa afvikinn stað fyrir utan herbúðirnar; þangað skalt þú fara erinda þinna;

ogþúskall hafa spaða í tækjum þínum, og er þú þarft að setjast niður úti, þá skalt þú grafa holu með honum, moka því næst aftur yfir og hylja saurindin.

Því að Drottinn, Guð þinn, er á gangi um herbúðir þínar, til þess að frelsa þig og gefa óvini þína á þitt vald; fyrir því skulu herbúðir þínar helgar vera, svo að hann sjái ekkert óþokkalegt hjá þér og snúi sér burt frá þér.

Þú skalt eigi framselja í hendur húsbónda þræl, sem flúið hefir til þín frá húsbónda sínum.

Hann skal setjast að hjá þér, í landi þínu, á þeim stað er hann sjálfur vetur, í einhverri af borgum þínum; þar sem honum bezt líkar; þú skalt ekki sýna honum ójöfnuð.

Á meðal Ísraels dætra má engin vera, sú er helgi sig saurlifnaði, og á meðal Ísraels sona má enginn vera, sá er helgi sig saurlifnaði.

Þú skalt eigi bera skækjulaun eða hundsgjald inn í hús Drottins, Guðs þíns, eftir neinu heiti, því að einnig hvorttveggja þetta er Drottni, Guði þínum, andstyggilegt. Um fjárleigu, heit og afnot af annara eign.

Þú skalt ekki taka fjárleigu af bróður þínum, hvorki fyrir peninga, matvæli né nokkurn hlut annan, er Tjá má gegn leigu.

Af útlendum manni mátt þú taka fjárleigu, en af bróður þínum mátt þú ekki taka fjárleigu, til þess að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur, í landinu sem þú heldur nú inn í, til þess að taka það til eignar.

Þegar þú gjörir Drottni, Guði þínum, heit, þá skalt þú ekki láta dragast að efna það; því að ella mun Drottinn, Guð þinn, krefjast þess af þér og það verða þér til syndar.

En þótt þú sleppir því að gjöra heit, þá hvílir engin sekt á þér fyrir það.

Það sem komið hefir yfir varir þínar, skalt þú halda og breyta eftir því, eins og þú sjálfviljuglega hefir heitið Drottni, Guði þínum, það sem þú hefir talað með munni þínum.

Þegar þú kemur í víngarð náunga þíns, þá mátt þú eta vínber eins og þig lystir, þar til er þú ert mettur; en í ker þitt mátt þú ekkert láta.

Þegar þú kemur á kornakur náunga þíns, þá mátt þú tína öx með hendinni, en sigð mátt þú ekki sveifla yfir kornstöngum náunga þíns.