Þess vegna, mínir elskuðu og eftirþráðu bræður, gleði mín og kóróna, standið þannig fastir í drotni, þér elskuðu.
Evodíu áminni eg og Sýntýke áminni eg um að vera samlyndar í drotni.
Já, eg bið einnig þig, trúlyndi samþjónn, hjálpa þú þeim, því að þær börðust með mér við boðun fagnaðarerindisins ásamt Klemens og öðrum samverkamönnum mínum, hverra nöfn standa í lífsins bók.
Verið ávalt glaðir í drotni; eg segi aftur: Verið glaðir.
Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.
Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni ásamt þakkargjörð.
Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.
Að öðru leyti, bræður, alt sem er satt, alt sem er sómasamlegt, alt sem er rétt, alt sem er hreint, alt sem er elskuvert, alt sem er gott afspurnar, hvað sem er dygð, og hvað sem er lofsvert, íhugið það.
Þetta, sem þér hafið bæði lært og numið og heyrt og séð til mín, það skuluð þér gjöra; og Guð friðarins mun vera með yður.
En eg varð mjög glaður í drotni yfir því, að þér hafið loksins aftur blómgast svo, að þér gátuð hugsað til mín, sem þér að sönnu hafið hugsað um, en þér áttuð ekki hægt með það.
Ekki segi eg þetta vegna þess, að eg hafi liðið skort, því að eg hefi lært að vera ánægður með það, sem eg á við að búa;
bæði kann eg að búa við lítinn kost; eg kann einnig að hafa alsnægtir; hvervetna og í öllum hlutum hefi eg lært þann leyndardóm bæði að vera mettur og að vera hungraður, bæði að hafa allsnægtir og að líða skort.
Alt megna eg í honum, sem gjörir mig styrkan.
Engu að síður gjörðuð þér vel í því, að taka þátt með mér í þrengingu minni;
þér vitið og, Filippímenn, að í upphafi fagnaðarboðskaparins, þegar eg fór burt úr Makedóníu, hafði enginn söfnuður samfélag við mig í að láta af hendi og taka á móti, nema þér einir.
Því að jafnvel í Þessaloníku senduð þér mér einu sinni, já tvisvar, til nauðsynja minna.
Ekki að eg þrái mjög gjöfina, heldur þrái eg mjög ávöxtinn, sem ríkulega fellur í yðar sjóð.
En nú hefi eg alt og hefi allsnægtir; eg hefi yfirfljótanlegt, síðan eg meðtók af hendi Epafrodítusar sendinguna frá yður, ilm reykelsis, þekka fórn, Guði velþóknanlega.
En minn Guð mun uppfylla sérhverja þörf yðar eftir auðlegð sinni, með dýrð í Kristi Jesú.
En Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.
Heilsið sérhverjum heilögum í Kristi Jesú.
Yður heilsa bræðurnir, sem hjá mér eru; yður heilsa allir hinir heilögu, en einkanlega þeir, sem heyra til húsi keisarans.
Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.