Esrabók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esrabók 8

Og þessir eru ætthöfðingjar þeirra — og þetta er ættarskrá þeirra —, þeir er fóru með mér heim frá Babel, þá er Artahsasta konungur sál að völdum.

Af niðjum Pínehasar: Gersóm. Af niðjum ítamars: Daníel. Af niðjum Davíðs: Hattús,

sonur Sekanja. Af niðjum Parós: Sakaría, og með honum skráðir af karlmönnum hundrað og R fimtíu.

Af niðjum Pahat-Móabs: Eljehóenaí Serajason ög með honum tvö hundruð karlmanna.

Af niðjum Sattú: Sekanja Jahasíelsson og með honum þrjú hundruð karlmanna.

Af niðjum Adiíns: Ebed Jónatansson og með honum fimm tugir karlmanna.

Af niðjmn Elams: Jesaja Ataljason og með honum sjö tugir karlmanna.

Af niðjum Sefatja: Sebadía Míkaelsson og með honum átta tugir karlmanna.

Af niðjum Jóabs: Óbadía Jehíelsson og með honum tvö hundruð og átján karlmenn.

Af niðjum Baní: Selómít Jósifjason og með honum hundrað og sextíu karlmenn.

Af niðjum Bebaí: Sakaría Bebaíson og með honum tuttugu og átta karlmenn.

Af niðjum Asgads: Jóhanan Hakkatansson og með honum hundrað og tíu karlmenn.

Af niðjum Adóníkams: síðkomnir, og þessi voru nöfn þeirra: Elífelet, Jeíel og Semaja, og með þeim sextíu karlmenn.

Af niðjum Bigvai: Útaf og Sabbúd, og með þeim sjötíu karlmenn.

Og eg safnaði þeim saman við fljótið, sem rennur í Ahava, og lágum vér þar í tjöldum í þrjá daga. En er eg hugði að fólkinu og prestunum, þá fann eg þar engan af niðjum Leví.

Þá sendi eg eftir Elíeser, Aríel, Semaja, Elnatan, Jaríb, Elnatan, Natan, Sakaría og Mesúllam, ætthöfðingjum, og Jójaríb og Elnatan, kennara,

og bauð þeim að fara til Íddós, höfðingja í Kasifja-bygð, og lagði þeim orð í munn, er þeir skyldu flytja Íddó, bræðrum hans og musterisþjónunum í Kasifja-bygð, til þess að þeir mættu útvega oss þjónustumenn í musteri Guðs vors.

Og með því að hönd Guðs vors hvíldi náðarsamlega yfir oss, þá færðu þeir oss vel kunnandi mann af niðjum Mahelí Levísonar, Ísraelssonar, og Serebja og sonu hans og bræður — átján alls,

og Hasabja og með honum Jesaja af niðjum Merarí, bræður hans og sonu þeirra — tuttugu alls;

og af musterisþjónunum, sem Davíð og höfðingjar hans höfðu sett til að þjóna Levítunum: tvö hundruð og tuttugu musterisþjóna; þeir voru allir nefndir með nafni.

Og eg lét boða þar föstu við fljótið Ahava, til þess að vér skyldum auðmýkja oss fyrir Guði vorum, til að biðja hann um farsællega ferð fyrir oss, börn vor og allar eigur vorar.

Því að eg fyrirvarð mig að biðja konung um herlið og riddara til verndar fyrir óvinum á leiðinni. Því að vér höfum sagt konungi: Hönd Guðs vors hvílir yfir öllum þeim, sem leita hans, þeim til góðs, en máttur hans og reiði yfir öllum þeim, sem yfirgefa hann.

Vér föstuðum því og báðum Guð um þetta, og hann bænheyrði oss.

Síðan valdi eg tólf úr af presta-höfðingjunum og Serebja, Hasabja og með þeim tíu af bræðrum þeirra,

og vó þeim ul silfrið og gullið og áhöldin — gjöfina til húss Guðs vors, er konungur og ráðgjafar hans og höfðingjar hans og allir Ísraelsmenn, þeir er þar voru, höfðu gefið.

Og þannig vó eg í hendur þeirra sex hundruð og fimtíu talentur í silfri, hundrað talentur í silfuráhöldum, hundrað talentur í gulli;

auk þess tuttugu gullkönnur, þúsund daríka virði, og tvö ker af gullgljáum góðum eiri, dýrmæt sem gull.

Og eg sagði við þá: Þér eruð helgaðir Drottinn og áhöldin eru heilög, og silfrið og gullið eru sjálfviljagjöf tl Drottins, Guðs feðra yðvarra.

Gætið því þessa og varðveitið það, þar til er þér vegið það aftur út Í augsýn prestahöfðingjanna og Levítanna og ætthöfðingja Ísraels í Jerúsalem, í herbergi musteris Drottins.

Síðan tóku prestarnir og Levítarnir við silfrinu og gullinu og áhöldunum eftir vigt, til þess að flytja það til Jerúsalem, til musteris Guðs vors.

Því næst lögðum vér upp frá fljótinu Ahava hinn tólfta dag hins fyrsta mánaðar og héldum til Jerúsalem, og hönd Guðs vors hvíldi yfir oss, svo að hann frelsaði oss undan valdi óvina og stigamanna.

Og vér komum til Jerúsalem og dvöldumst þar í þrjá daga.

En á fjórða degi var silfrið og gullið og áhöldin vegin út í musteri Guðs vors í hendur Meremóts prests Úríasonar, — og með honum var Eleasar Pínehasson, og með þeim voru Levítarnir Jósaliad Jesúason og Nóadja Binnúíson —

alt saman með tölu og vigt; og öll vigtin var þá skrifuð upp.

þe ir er heim komu úr berleiðingunni, þeir hernumdu er aftur sneru, færðu Ísraels Guði brennifórnir: tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta, sjötíu og sjö lömb, tólf hafra í syndafórn — alt sem brennifórn Drottins til handa.

Og þeir fengu jörlum konungs og landstjórunum í héraðinu hinumegin Fljóts konungsboðin, og þeir aðstoðuðu lýðinn og musteri Guðs. Júðav reka frá sér hinar útlondu konur. þegar þessu var lokið, komu höfðingjarnir til mín og sögðu: