Esrabók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esrabók 10

Meðan Esra baðst þannig fyrir og bar fram játning sína, grátandi og knéfallandi frammi fyrir musteri Guðs, safnaðist til hans mjög mikill skari Ísraelsmanna, karlar og konur og börn, því að fólkið grét hástöfum.

Þá tók Sekanja Jehíelsson, af niðjum Elams, til máls og sagði við Esra: Vér höfum brotið á móti Guði vorum, þar sem vér höfum gengið að eiga útlendar konur af hinum heiðnu íbúum landsins; þó er ekki öll von úti fyrir Ísrael í þessu efni.

Fyrir því skulum vér nú gjöra sáttmála við Guð vorn um að reka burt allar konur og börn þau, er af þeim eru fædd, eftir ráðum herra míns og þeirra manna, er óttast boðorð Guðs vors, og það skal verða farið eftir lögmálinu.

Rís upp, því að mál þetta hvílir á þér, og vér munum styðja þig; hertu nú upp hugann og framkvæmdu þetta.

Þá reis Esra upp og lét presta- og Levíta-höfðingjana og allan Ísrael vinna eið að því, að þeir skyldu hegða sér eftir þessu, og unnu þeir eiðinn.

Og Esra reis upp og gekk burt þaðan er hann hafði verið, fyrir framan musteri Guðs, og inn í herbergi Jóhanans Eljasíbssonar. Þar var hann um nóttina og neytti hvorki brauðs né drakk vatn, því að hann var hryggur yfir frygðrofi hinna herleiddu.

Og menn létu boð út ganga um Júda og Jerúsalem til allra þeirra, er heim voru komnir úr herleiðingunni, að safnast saman í Jerúsalem.

Og hver sá, er eigi kæmi innan þriggja daga, samkvæmt ráðstöfun höfðingjanna og öldunganna — allar eigur hans skyldu banni helgaðar og hann sjálfur rekinn úr söfnuði hinna herleiddu.

Þá söfnuðust allir Júda-menn og Benjamíns saman í Jerúsalem á þriðja degi; það var í níunda mánuðinum, á tuttugasta degi mánaðarins. Og alt fólkið sat á auða svæðinu fram undan musteri Guðs, skjálfandi út af þessu og af því að stórrigning var.

Þá stóð Esra prestur upp og mælti til þeirra: Þér hafið rofið trygðir, með því að ganga að eiga útlendar konur, til þess að auka á sekt Ísraels.

Gjörið því játningu frammi fyrir Drottni, Guði feðra yðvarra, og gjörið hans vilja og skiljið yður frá hinum heiðnu íbúum landsins og frá hinum útlendu konum.

Og allur söfnuðurinn svaraði og sagði með hárri röddu: Svo sem þú hefir sagt, þannig er oss skylt að breyta.

En fólkið er margt og rigningatími, svo að vér getum ekki staðið úti; þetta er og meira en eins eða tveggja daga verk, því að vér höfum margfaldlega brotið í þessu efni.

Gangi því höfðingjar vorir fram fyrir allan söfnuðinn; og allir þeir í borgum vorum, er gengið hafa að eiga útlendar konur, skulu koma, hver á tilteknum tíma, og með þeim öldungar hverrar borgar og dómarar hennar, þar til er þeir hafa snúið hinni brennandi reiði Guðs vors frá oss að því er mál þetta snertir.

Þeir Jónatan Asahelsson og Jahseja Tikvason einir mótmæltu þessu; og Mesúllam og Sabtaí Levíti studdu þá.

Og þeir, sem heim voru komnir úr herleiðingunni, gjörðu svo. Og Esra prestur valdi sér menn, ætthöfðingja hinna einstöku ætta, og þá alla með nafni, og settust þeir á ráðstefnu hinn fyrsta dag hins tíunda mánaðar, til þess að rannsaka málið.

Og þeir höfðu að öllu leyti útkljáð mál þeirra manna, er gengið höfðu að eiga útlendar konur, fyrir fyrsta dag hins fyrsta mánaðar.

En af niðjum prestanna fundust þessir, er gengið höfðu að eiga útlendar konur: Át niðjum Jesúa Józadakssonar og bræðrum hans: Maaseja, Elíeser, Jaríb og Gedalja;

Dlofuðu þeir með handsali að reka frá sér konur sínar og að fórna hrút vegna sektar sinnar.

Af niðjum Immers: Hananí og Sebadía.

Af afkomendum Haríms: Maaseja, Elía, Semaja, Jehiel og Úsia.

Af niðjum Pashúrs: Eljóenai, Maaseja, Ísmael, Netaneel, Jósabad og Elasa.

Og af Levítunum: Jósabad, Símeí og Kelaja — það er Kelíta —, Petahja, Júda og Elíeser.

Af söngvurunum: Eljasíb. Af hliðvörðunum: Sallúm, Telem og Úrí.

Og af Ísrael: Af niðjum Parós: Ramja, Jisía, Malkía, Míjamiín, Eleasar, Malkía og Benaja.

Af niðjum Elams: Mattanja, Sakaría, Jehíel, Abdí, Jeremót og Elía.

Af niðjum Saltú: Eljóenaí, Eljasíb, Mattanja, Jeremót, Sabad og Asísa.

Af niðjum Bebai: Jóhanan, Hananja, Sabbaí og Atlaí.

Af niðjum Baní: Mesúllam, Mallúk og Adaja, Jasúb, Seal, Jeramót.

Af niðjum Pahat-Móabs: Adna, Kelal, Benaja, Maaseja, Mattanja, Bezaleel, Binnúí og Manasse.

Og niðjar Harims: Elíeser, Jisía, Malkía, Semaja, Símeon,

Benjamín, Mallúk, Semarja.

af niðjum Hasúms: Matnaí, Mattatta, Sabad, Elífelet, Jeremaí, Manasse, Símeí;

Af niðjum Bani: Maadaí, Amram, Úel,

Benaja, Bedja, Kelúhí,

Vanja, Meremót, Eljasíb,

Mattanja, Matnai, Jaasaí,

Baní, Binnúí, Símeí,

Selemja, Natan, Adaja,

Maknadbai, Sasaí, Saraí,

Asareel, Selemja, Semarja,

Sallúm, Amarja, Jósef.

Af niðjum Nebós: Jeiel, Mattitja, Sabad, Sebina, Jaddaí, Jóel, Benaja.

Allir þessir höfðu gengið að eiga útlendar konur. Og það voru konur meðal þeirra, sem höfðu alið börn.; Nehemíabólk.