Esekíelsbók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 8

það var á sjötta ári, fimta dag hins sjötta mánaðar, þá er eg sat í húsi mínu, og öldungar Júda sátu frammi fyrir mér, að hönd Drottins Guðs kom þar yfir mig.

Og eg sá, og sjá, þar var mynd, ásýndum sem maður; þar í frá, sem mér þóttu lendar hans vera, og niður eftir, var eins og eldur; en frá lendum hans og upp eftir var að sjá sem bjarma, eins og ljómaði af lýsigulli.

Og hann rétti út líkast sem hönd væri, og tók í höfuðhár mitt, og andinn hóf mig upp milli himins og jarðar og flutti mig til Jerúsalem í guðlegri sýn, að dyrum innra hliðsins, er snýr mót norðri, þar er líkansúlan stóð, sú er vakti vandlæti Drottins.

Og sjá, þar var dýrð Ísraels Guðs, alveg eins og í sýn þeirri, er eg hafði séð í dalnum.

Og hann sagði við mig: Manns-son, hef upp augu þín og lít í norðurátt! Og eg hóf upp augu mín og leit í norðurátt; stóð þá þessi vandlætis-líkansúla norðanmegin við altarishliðið, rétt þar sem inn er gengið.

Og hann sagði við mig: Mannsson, sér þú, hvað þeir eru að gjöra? Mildar svívirðingar eru það, sem Ísraelsmenn hafa hér í frammi, svo að eg verð að vera fjarri helgidómi mínum; en þú munt enn sjá miklar svívirðingar.

Og hann leiddi mig að dyrum forgarðsins. Óg er eg leit á, var þar gat eitt á veggnum.

Og hann sagði við mig: Manns-son, hrjót þú gat í gegnum vegginn. Og er eg braut gat í gegnum vegginn, þá voru þar dyr.

Og hann sagði við mig: Gakk inn og sjá hinar vondu svívirðingar, sem þeir hafa hér í frammi.

Eg gekk inn og litaðist um; voru þar ristnar alt umhverfis á vegginn alls konar myndir viðbjóðslegra orma og skepna og öll skurðgoð Ísraelsmanna.

Og þar voru sjötíu menn af öldungum Ísraels húss og Jaasanja Safansson mitt á meðal þeirra svo sem forstjóri þeirra, og hélt hver þeirra á reykelsiskeri í hendi sér og sté þar upp af ilmandi reykelsismökkur.

Og hann sagði við mig: Hefir þú séð, manns-son, hvað öldungar Ísraels húss hafast að í myrkrinu, hver í sínum myndaherbergjum? Því að þef hugsa: Drottinn sér oss ekki, Drottinn hefir yfirgefið landið.

Því næst sagði hann við mig: Þú munt enn sjá miklar svívirðingar, er þeir hafa í frammi.

Og hann leiddi mig að dyrunum á norðurhliði musteris Drottins; þar sátu konurnar, þær er grétu Tammús.

Og hann sagði við mig: Sér þú það, manns-son? Þú munt enn sjá svívirðingar, sem meiri eru en þessar.

Og hann leiddi mig inn í innra forgarð húss Drottins, og voru þá þar fyrir dyrum musteris Drottins, milli forsalsins og altarisins, um tuttugu og fimm menn; sneru þeir bökum við musteri Drottins, en ásjónum sínum í austur, og tilbáðu sólina í austri.

Og hann sagði við mig: Sér þú það, manns-son? Nægir Júdamönnum það eigi, að hafa í frammi þær svívirðingar, sem þeir hér fremja, þó að þeir ekki þar á ofan fylli landið með glæp og reiti mig hvað eftir annað til reiði? Sjá, hversu þeir halda vöndlinum upp að nösum sér.

Fyrir því vil eg og fara mínu fram í reiði: eg vil ekki líta þá vægðarauga og enga meðaumkun sýna. Og þótt þeir þá kalli hárri röddu í eyru mín, þá mun eg ekki heyra þá.