Gamla testamentiðSpámennirnir
Þegar þér skiftið landinu með hlutkesti til arfleifðar, skuluð þér gefa Drottni lyftifórn af því, heilaga landspildu, tuttugu og fimm þúsund álna á lengd og tuttugu þúsund álna á breidd; skal hún heilög vera innan takmarka sinna í allar áttir.
Þar af skal falla undir helgidóminn ferhyrndur flötur, fimm hundruð álna á hvern veg, og fimtíu álna teigur skal vera kring um hann.
Af þessum mælda teit skalt þú mæla spildu tuttugu og fimm þúsund álna langa og tíu þúsund álna breiða; á henni skal helgidómurinn, hinn háheilagi, standa.
Það er helgigjöf í jarðeign; skal hún tilheyra prestunum, þeim er Segna þjónustu við helgidóminn og nálgast mega Drottinn, til að þjóna honum; skal það vera húsastæði handa þeim og tilheyra helgidóminum Sem heilagt svæði.? Þar af skal falla undir helgidóminn ferhyrndur Hlötur, fimm hundruð álna á hvern veg, og fimtíu álna teigur skal vera kring um hann.
Og tuttugu og fimm þúsund álna löng landspilda og tíu þúsund álna breið skal falla undir Levítana, þá er þjónustu gegna við musterið, sem fasteign þeirra, borgir til þess að búa í.
Og sem fasteign borgarinnar skuluð þér tiltaka fimm þúsund álna breiða spildu og tuttugu og fimm þúsund álna langa, jafnlanga hinni heilögu lyftifórnargjöf. Skal hún vera eign allra Ísraelsmanna.
En handa landshöfðingjanum skuluð þér tiltaka landshluta beggja vegna við heilögu lyftifórnargjöfina og borgarreitinn, fyrir framan heilögu lyftifórnargjöfina og fyrir framan borgarreitinn, vestanmegin til vesturs og austanmegin til austurs, og skal hann vera jafnlangur einum erfðahluta ættkvíslanna frá vesturtakmörkum til austurtakmarka landsins.
Þetta skal vera landeign hans í Ísrael, svo að höfðingjar mínir veiti eigi framar þjóð minni yfirgang, heldur fái Ísraelsmönnum landið eftir ættkvíslum þeirra.
Svo segir Drottinn Guð: Látið yður nægja þetta, þér Ísraels höfðingjar; látið af ofríki og yfirgangi, en iðkið rétt og réttlæti; látið af að reka þjóð mína af eignum hennar! segir Drottinn Guð.
Þér skuluð hafa rétta vog, rétta efu og rétta bat.
Efa og bat skulu vera jafnar að máli, svo að bat taki tíunda part gómers og sömuleiðis efa tíunda part gómers. Eftir gómer skal hvortveggja mælast.
Sikill skal vera tuttugu gerur; fimm siklar skulu vera fimm og tíu siklar tíu, og fimtíu sikla skuluð þér láta vera í mínu.
Þetta er lyftifórnin, sem þér skuluð gefa: sjöttung efn af hverjum gómer hveitis og sjöttung efn af hverjum gómer byggs.
Og ákvæðið um olíuna er þetta: tíunda part úr bat af hverju kór; því að tíu bat eru í einu kór.
Enn fremur einn sauð af hjörðinni, af hverjum tveim hundruðum, sem lyftifórnargjöf frá öllum kynkvíslum Ísraels til matfórnar, brennifórnar og heillafórnar, til þess að friðþægja fyrir þá, segir Drottinn Guð.
Allur landslýðurinn skal vera skyldur til að færa landshöfðingjanum í Ísrael þessa lyftifórn.
En landshöfðinginn skal vera skyldur að Leggja til brennifórnir, matfórn og dreypifórn á hátíðum, tunglkomum og hvíldardögum við allar hátíðasamkomur Ísraelsmanna. Hann skal láta fram bera syndafórnina og matfórnina og brennifórnina og heillafórnirnar, til þess að friðþægja fyrir Ísraelsmenn.
Svo segir Drottinn Guð: Á fyrsta degi hins fyrsta mánaðar skalt þú taka ungan uxa gallalausan og syndhreinsa helgidóminn.
Og presturinn skal taka af blóði syndafórnarinnar og ríða á dyrustafi musterisins og á fjóra hyrninga altarisstallanna og á dyrustafi hliðsins að innri forgarðinum.
Og eins skalt þú gjöra á fyrsta degi hins sjöunda mánaðar vegna þeirra, sem af vangá eða fákænsku kynnu að hafa misgjört eitthvað, og þannig skuluð þér þiggja musterið í frið.
Á fjórtánda degi hins fyrsta mánaðar skuluð þér halda páskahátíðina; í sjö daga skulu etin ósýrð brauð.
Og á þeim degi skal Landshöfðinginn láta bera fram uxa í syndafórn fyrir sig og allan landslýðinn.
Og sjö daga hátíðarinnar skal hann láta fram bera sem brennifórn Drottins til handa sjö uxa og sjö hrúta gallalausa, á hverjum degi þessa sjö daga, svo og daglega geithafur í syndafórn.
Og sem matfórn skal hann láta fram bera efn með hverjum uxa og efn með hverjum hrút, og olíu, hin með hverri efn.
Á fimtánda degi hins sjöunda mánaðar, á hátíðinni, skal hann í sjö daga láta fram bera jafnmikið þessu, bæði syndafórn og brennifórn og matfórn og olíu.