Gamla testamentiðSpámennirnir
Á tólfta árinu, fyrsta dag hins tólfta mánaðar, kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, hef upp harmljóð yfir Faraó, Egiptalands konungi, og seg við hann: Þú ungljón meðal þjóðanna — það er úti um þig! og þó varst þú eins og krókódíll í sjónum, gusaðir með nösum þínum, gruggaðir upp vatnið með fótum þínum og rótaðir upp bylgjum þess.
Svo segir Drottinn Guð: Eg vil breiða net mitt yfir þig í söfnuði margra þjóða, til þess að þeir dragi þig upp Í neti mínu.
Og eg skal varpa þér upp á land, fleygja þér út á bersvæði; og eg skal láta alla fugla himinsins sitja á þér og seðja dýr allrar jarðarinnar á þér.
Og eg skal færa hold þitt út á fjöllin og fylla dalina hræi þínu.
Og eg skal vökva landið með útrensli þínu, af blóði þínu á fjöllunum, og árfarvegirnir skulu verða fullir af þér.
Þegar þú sloknar út, skal eg byrgja himininn og myrkva stjörnur hans; sólina skal eg hylja í skýjum, og tunglið skal ekki láta ljós sitt skína.
SÖÓll ljós á himninum skal eg láta verða myrk þín vegna og færa dimmu yfir land þitt, segir Drottinn Guð.
Og eg mun hrella hjörtu margra þjóða, er eg leiði hertekna menn þína út á meðal þjóðanna, til landa, sem þú þekkir ekki.
Og eg mun gjöra margar þjóðir felmtsfullar út af þér, og hryllingur mun fara um konunga þeirra þín vegna, þegar eg sveifla sverði mínu frammi fyrir þeim, og þeir skulu skjálfa án afláts af hræðslu um líf sitt, daginn sem þú fellur.
Því að svo segir Drottinn Guð: Sverð Babel-konungs skal koma yfir þig.
Eg skal láta glæsilið þitt falla fyrir kappa sverðum; það eru alt saman hinar grimmustu þjóðir; þeir skulu eyða skrauti Egiptalands, og alt viðhafnarprjál þess skal að engu gjört.
Og eg skal gjöreyða öllum skepnum þess og hrífa þær burt frá hinum miklu vötnum; enginn mannsfótur skal framar grugga þau, né heldur skulu klaufir nokkurrar skepnu grugga þau.
Þá skal eg láta vötn þeirra setjast Og leiða ár þeirra burt eins og olíu, segir Drottinn Guð,
þegar eg gjöri Egiptaland að auðn og það er eytt orðið og svift gnægtum sínum, er eg lýst alla þá, sem í því búa, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.
Þetta eru harmljóð og skulu menn syngja þau; dætur þjóðanna skulu syngja þau; þær skulu syngja þau yfir Egiptalandi og yfir öllu Slæsiliði þess, segir Drottinn Guð.;
Og á tólfta árinu, hinn fimtánda dag mánaðarins, kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, kveina þú yfir glæsiliði Egiptalands og söktu því, þú og dætur hinna voldugustu þjóða, niður í undirheima til þeirra, sem niður eru stignir í gröfina.
Af hverjum ber þú að yndisleik? Stíg ofan og legst til hvíldar meðal hinna óumskornu.
Þeir munu falla meðal vopnbitinna manna; sverðinu er það ofurselt; menn hrífa það burt og alt þess skraut.
Þá munu hinar hraustu hetjur hrópa til hans úr helju, til hans og liðveizlumanna hans: Niður Stignir eru, hér hvíla hinir óumskornu, hinir vopnbitnu.
Þarna er Ássúr og allur liðsafnaður hans, og eru grafir þeirra umhverfis hann, — alt saman vegnir menn, er fallið hafa fyrir sverði,
grafir þeirra eru •nst inni í grafhellinum; og sveit hans er umhverfis gröf hans, alt samvegnir menn, er fallið hafa fyrir sverði og eitt sinn létu standa ógn af sér á landi lifandi manna.
Þarna er Elam, og alt glæsilið hans liggur umhverfis gröf hans. Þeir eru allir saman vegnir menn, er fallið hafa fyrir sverði, er farið hafa óumskornir ofan í undirheima og eitt sinn létu standa ógn af sér á landi lifandi manna. Og nú bera þeir vanvirðu sína með þeim, sem niður stignir eru í gröfina.
Mitt á meðal veginna manna bjuggu þeir honum hvílurúm, ásamt öllu glæsiliði hans, og eru grafir þeirra umhverfis hann, alt saman óumskornir menn, er lagðir hafa verið sverði, — því að eitt sinn stóð ógn af þeim á landi lifandi manna. Og nú bera þeir vanvirðu sína með þeim, sem niður stignir eru í gröfina; meðal veginna manna voru þeir lagðir.
Þarna er Mesek, Túbal og allur mannfjöldi þeirra, og eru grafir þeirra umhverfis hann, alt saman óumskornir menn, sverði lagðir, er eitt sinn létu ógn af sér standa á landi lifandi manna.
Þeir liggja ekki hjá hetjunum, þeim er féllu í fyrndinni, þeim er fóru til heljar í hervopnum sínum, hverra sverð voru lögð undir höfuð þeirra og skildir þeirra lágu ofan á beinum þeirra; því að ótti stóð af hetjunum á landi lifandi manna.
Þú skalt og sundur molaður verða meðal óumskorinna og liggja hjá sverðbitnum mönnum.
Þar er Edóm, konungar hans og allir höfðingjar, sem þrátt fyrir hreysti sína voru lagðir Hjá vopnbitnum mönnum; þeir liggja hjá óumskornum mönnum og hjá þeim, sem niður eru stignir í gröfina.
þar eru stórhöfðingjar norðursins allir saman og allir Zídoningar, er niður stigu helsærðir; þrátt fyrir óttann, sem stóð af hreysti þeirra, eru þeir orðnir til skammar. Óumskornir liggja þeir hjá vopnbitnum mönnum og bera vanvirðu sína með þeim, er niður stignir eru í gröfina.
Þá mun Faraó sjá og huggast yfir öllu glæsiliði sínu; vopnbitinn er Faraó og allur hans her, segir Drottinn Guð.
Því að hann lét eitt sinn standa ógn af sér á landi lifandi manna; þess vegna skal hann lagður verða meðal óumskorinna, hjá vopnbitnum mönnum, Faraó og alt hans glæsilið, segir Drottinn Guð.